Skinfaxi - 01.11.2013, Síða 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Á
rið 2013 er senn á enda liðið. Margs
er að minnast þegar viðburðir árs-
ins eru rifjaðir upp og erfitt að gera
upp á milli margra þeirra. Unglinga-
landsmótið á Höfn í Hornafirði, Landsmótið
á Selfossi, Landsmót UMFÍ 50+ í Vík í Mýrdal,
almenningsíþróttaverkefnin, starfsemin í
Ungmenna- og tómstundabúðunum á Laug-
um, heimsóknir til sambandsaðila og sam-
starfsaðila UMFÍ og ársþing UMFÍ eru meðal
þeirra viðburða sem koma fyrst upp í hug-
ann, auk vissunnar um öll þau verkefni, stór
og smá, sem grasrótin vinnur að á sínum vett-
vangi. Öllum þeim sem hafa komið að og
tekið þátt í starfsemi ungmennafélagshreyf-
ingarinnar færi ég kærar þakkir fyrir árangurs-
ríkt starf, gott samstarf og góð samskipti.
Árið 2014 gengur senn í garð og vonandi
verður það íþrótta- og æskulýðsstarfinu í
landinu happadrjúgt. Ýmis teikn eru þó á lofti
sem gera það að verkum að áhyggjur kvikna
um að starfsemin muni eiga erfitt um vik.
Óneitanlega hefur maður af því áhyggjur
að tekjur til starfseminnar eru sífellt að drag-
ast saman. Þrátt fyrir góð fyrirheit hefur stjórn-
völdum ekki tekist að standa með okkur vörð
um það mikilvæga starf sem við stöndum
fyrir og höldum úti. Þetta segi ég vegna þess
að fjárframlög hins opinbera til íþrótta- og
æskulýðssamtaka hafa dregist saman jafnt
og þétt frá 2008. Þessi staðreynd gerir það
að verkum að alltof mikill tími fer í það hjá
forystufólki og sjálfboðaliðum félaga og sam-
taka að afla fjár til starfseminnar. Þetta er svo
sem ekki eitthvað sem við erum að standa
frammi fyrir í fyrsta sinn en það er erfiðara að
fá fjármagn og það fer lengri tími og mikil
orka í það hjá fólki að ná í fjármagnið svo ekki
sé nú minnst á það bil sem hið opinbera skil-
ur eftir, sem þarf að brúa.
Þrátt fyrir þetta hefur okkur tekist að halda
úti öflugu starfi og við höfum ekki látið deig-
an síga. Fyrir þennan dugnað og einurð vil
ég þakka ykkur en um leið hvetja ykkur,
ágætu félagar, til þess að gefa hvergi eftir við
þessi skilyrði svo við náum að vinna áfram
þau góðu verk sem vinna þarf hvern einasta
dag. Laun erfiðisins eru öll þau fallegu bros
og sú mikla gleði sem sjá má og finna hjá öllu
því fólki sem nýtur þess að taka þátt í því sem
er í boði. Svo við minnumst nú ekki á for-
varnirnar sem felast í þátttökunni og spara
þjóðarbúinu mikil útgjöld á öðrum sviðum.
Kærar þakkir fyrir árangursríkt starf
Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar
eru bætt lýðheilsa og forvarnastarf meðal for-
gangsverkefna og samfélagslegt mikilvægi
frjálsra félagasamtaka og sjálfboðaliðastarf
innan þeirra viðurkennt. Í sáttmálanum er
lýst yfir vilja til þess að greiða götu slíkrar
starfsemi og mikilvægi félagasamtaka til að
vinna að því markmiði að efla og bæta
íslenskt samfélag. Okkur, sem vinnum í þriðja
geiranum, var það mikið fagnaðarefni að
lesa þessar yfirlýsingar í stjórnarsáttmálan-
um. Það er grasrótinni mikilvægt að upplifa
hið samfélagslega mikilvæga og skilgreinda
hlutverk sitt með þeim hætti sem í honum
er lýst. Nú bíðum við spennt eftir því hvort
ríkisstjórn og stjórnvöld fylgi eftir þessum
góðu fyrirætlunum, ekki bara með orðum
heldur einnig í verki.
Mörg spennandi verkefni bíða okkar á
nýju ári, m.a. Unglingalandsmót á Sauðár-
króki og Landsmót UMFÍ 50+ á Húsavík
ásamt fjöldanum af öðrum verkefnum. Ver-
um virk í starfinu á nýju ári, fáum fleiri til að
taka þátt, ræktum líkama og sál og látum
gott af okkur leiða.
Ungmennafélagar, verum öflug á nýju ári
og látum hendur standa fram úr ermum.
Fyrir hönd stjórnar og starfsmanna Ung-
mennafélags Íslands óska ég ykkur gleðilegs
nýs árs með óskum um gott og farsælt sam-
starf og samskipti á nýju ári.
Íslandi allt!
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Frá fundi starfsmanna og stjórnar UMFÍ í desember sl.
Ungmennaráð UMFÍ hefur
síðustu ár haldið svokallaðar skemmti-
helgar. Þessar helgar eru haldnar tvisvar
á ári og eru opnar öllum 16–30 ára.
Vímuefni eru með öllu bönnuð.
Helgina 15.–17. nóvember var
helgin haldin á Sólheimum í Gríms-
nesi en leigt var gistihús á staðnum til
afnota. Helgarnar eru haldnar í þeim
tilgangi að ungt fólk, sem hefur ákveðið
að sniðganga áfengi og önnur vímu-
efni, geti hist og skemmt sér saman.
Þátttakendur mættu á föstudags-
kvöldi og byrjað var á nokkrum nafna-
og icebreaker-leikjum til að hrista hóp-
inn saman. Það kemur alltaf jafn mikið
Vel heppnuð skemmtihelgi
hjá ungmennaráði á óvart hvað
stuttan tíma tekur
fyrir krakkana,
sem mæta, að
verða ófeimin við þá sem þeir þekkja
ekki og koma sjálf með hugmyndir að
hlutum til að gera saman.
Um helgina var farið í göngutúr um
Sólheima í snjónum, farið í sund, kynnt
starfsemi ungmennaráðsins og farið í
alls konar leiki, bæði í íþróttahúsinu og
á gistihúsinu. Mikil samvinna er milli
fólks en á milli dagskrárliða hjálpuðust
allir að við að taka til eða gera matinn
kláran. Seinasta daginn var farið í nokkra
kveðjuleiki og svo var ekið aftur heim
eftir vel heppnaða skemmtihelgi.