Skinfaxi - 01.11.2013, Qupperneq 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
F
orvarnastarf er samofið starfi íþrótta-
og héraðssambanda. Margar leiðir
hafa verið farnar í þeim efnum, stuðst
við fræðslu, íþróttaiðkun, vitundar-
vakningu og margt fleira. Í gegnum tíðina
hefur það verið talin ein helsta forvörnin
gegn ávana- og fíkniefnum að börn og
ungmenni stundi íþróttir eða taki þátt í
skipulögðu félagsstarfi. Sum íþróttafélög
hafa gengið skrefi lengra og látið þá sem
æfa og keppa með t.a.m. meistaraflokkum
skrifa undir samning þar sem þeim er gert
skylt að vera tóbakslausum. Lýðheilsustöð,
sem var og hét, útbjó texta sem íþrótta-
félög gátu gert að sínum í tengslum við
slíka samninga við iðkendur félagsins. Svo
eru íþróttafélög sem hafa látið yngri flokka
skrifa undir vímuvarnasamning og hafa
oftar en ekki haft gulrót á endanum eins
og að fá þátttökurétt á móti erlendis á veg-
um félagsins. Í þessu samhengi er vert að
nefna Íþróttafélagið Völsung sem hefur
gert þetta frá árinu 2004 meðal knatt-
spyrnuiðkenda sem eru í 3. og 4. flokki.
Þeir iðkendur sem standast vímuvarna-
samninginn fá að fara í keppnisferð
erlendis ásamt því að uppfylla lágmarks-
mætingu á æfingar. Framhaldsskólinn á
Húsavík býður svo nemendum sínum upp
á afreksmannabraut í samstarfi við Völs-
ung. Á þeirri braut skrifa nemendurnir und-
ir sams konar vímuvarnasamning og geta
unnið sér inn aukaeiningar með íþrótta-
ástundun sinni. Þessi braut er því fyrir þá
sem kjósa lífsstíl án vímuefna.
Athygli vekur að vímuvarnasamningur
Völsungs virðist hafa veruleg áhrif á lifn-
aðarhætti nemenda í Framhaldsskólan-
um á Húsavík. Samkvæmt skýrslum Rann-
sóknar og greiningar haldast unglings-
stelpur í Framhaldsskólanum á Húsavík
mun lengur í íþróttum en víða annars
staðar á landinu, ásamt því að tíðni
áfengis- og tóbaksneyslu er með því
lægsta sem um getur í framhaldsskólum
á Íslandi. Útfærsla Völsungs er snilldarleg
í ljósi tölulegra upplýsinga Rannsóknar
og greiningar á tíðni tóbaks- og áfengis-
notkunar.
Umbun fyrir að virða kaupaldur áfengis
og tóbaks er í anda verkefnis UMFÍ, „Flott
fyrirmynd“, sem áður var „Flott án fíknar“
og margir þekkja.
„Flott fyrirmynd“ byggist á sænsku for-
varnaverkefni sem ber nafnið Local Hero
en verið er að forprófa verkefnið á Íslandi.
Í febrúar á þessu ári komu sænskir leiðbein-
endur til landsins og héldu námskeið fyrir
sjö félagsmiðstöðvar sem eru að forprófa
verkefnið. Eins og nafnið gefur til kynna er
verkefnið byggt á að styrkja og efla ein-
staklinginn til að vera flott fyrirmynd. Í
gegnum verkefnið styrkir einstaklingur-
inn sjálfsmynd sína og sjálfstraust, setur
sér markmið og fær hvatningu og efnivið
til að ná því. Markmið geta t.a.m. falið í sér
að vera áfengis-, tóbaks- og vímuefnalaus.
Að sjá fyrir sér hvar viðkomandi verði eftir
fimm ár og hvernig sé hægt að komast
þangað. Einnig að átta sig á hvaða fyrir-
myndir hafa áhrif á viðkomandi og hvort
það séu góðar fyrirmyndir. Verkefnið hvet-
ur til þess að viðkomandi hrósi öðrum og
sendi jákvæða strauma út í samfélagið.
Slík fyrirmynd getur svo smitað út frá sér
sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum.
Einn stærsti þátturinn í verkefninu er jafn-
ingjafræðsla og það að virða skoðanir og
væntingar ungmennanna sjálfra.
Spennandi verður að fylgjast með fram-
vindu verkefnisins „Flott fyrirmynd“ og
geta íþróttafélög horft hýru auga á að
innleiða það á komandi árum og jafnvel
verið í samstarfi við félagsmiðstöðvar á
sínu svæði.
Skýrslu um verkefni Völsungs má sjá á
heimasíðu Völsungs (volsungur.is).
F.h. lýðheilsunefndar UMFÍ
Jóhanna S. Kristjánsdóttir
Flott fyrirmynd
Jóhanna S.
Kristjánsdóttir
Færni til framtíðar er handbók um örvun
hreyfifærni barna úti í nánasta umhverfi.
Bókin á erindi við alla sem hafa áhuga á því
að efla hreyfingu og hreyfifærni barna og
nýta til þess náttúruna okkar.
Bókin fæst í verslunum Eymundsson
og hjá höfundi í síma 898-2279 eða
á netfanginu sabinast@simnet.is