Skinfaxi - 01.11.2013, Page 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Nú, þegar haustönninni er lokið í Ung-
menna- og tómstundabúðunum á Laug-
um, er beðið með eftirvæntingu eftir nýja
árinu og næstu önn og það er gaman að
velta fyrir sér hvað það er sem gerir okkur
að því sem við erum.
Markmið búðanna er ekki aðeins að
bjóða upp á skemmtilega og eftirminni-
lega dvöl í fallegu umhverfi. Við viljum líka
efla og styrkja krakkana sem hingað koma,
bæði sem einstaklinga og innan hópsins.
Unnið er að því að skapa aðstæður þar sem
Reynum af fremsta megni
að ná því besta fram í öllum
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum:
persónulegur þroski getur átt sér stað í hví-
vetna. Mikið er lagt upp úr því að þátttak-
endur fái það á tilfinninguna að þeir séu
hluti af einni heild og að þeir uppskeri
jákvæða reynslu af dvöl sinni hér.
Nemendur úr
Hvaleyrarskóla
og Salaskóla í
skemmtilegum
leik.
Jörgen Nilsson, tóm-
stundaleiðbeinandi í
ungmennabúðunum,
á göngu með krökk-
unum.