Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2013, Side 29

Skinfaxi - 01.11.2013, Side 29
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29 Gerplustúlkur urðu Norðurlandameist-arar í hópfimleikum en mótið fór fram í Odense í Danmörku helgina 8.–10. nóv- ember sl. Það voru 10 lið sem kepptu í kvennaflokki, tvö frá hverju landi. Fyrirfram var búist við harðri keppni þar sem töluverð endurnýjun hefur átt sér stað í Gerpluliðinu frá því á Evrópumótinu í Danmörku. Stúlk- urnar lögðu af stað með það að markmiði að verja titil sinn en sú staðreynd að ekkert lið hefur náð að verja titilinn frá fyrir 20 árum þegar sænska liðið GK Hermes gerði það varð til þess að sigurinn nú er enn sætari fyrir vikið. Keppnin var hörð og harðari en hún hefur verið í þó nokkur ár. Fyrir síðustu umferð var því mikil spenna og allt opið en stúlkurnar stóðust álagið og lönduðu enn einum titlinum í safnið. Þetta eru fjórðu gullverðlaun Íslands í röð í hópfimleikum kvenna. Íslenska lands- liðið hefur unnið tvö síðustu Evrópumót og Gerpla varði nú Norðurlandameistara- titil sinn í fyrsta sinn. Gerplustelpurnar hafa líka skipað íslenska landsliðið. Þetta er ennfremur í þriðja sinn sem Gerpla vinnur Norðurlandameistara- titilinn. Þær unnu í fyrsta sinn árið 2007, náðu ekki að verja titilinn 2009, en unnu hann svo 2011 og svo aftur núna 2013. Lokastaðan í keppni kvenna: 1. Gerpla ................................................ 53.833 2. Örebro GF ......................................... 52.800 3. Höganäs GF ..................................... 52.483 4. Bolbro Gymnasterne ................... 49.700 5. Tampereen Voimistelijat............. 48.016 6. Stjarnan ............................................. 47.500 7. TeamGym Greve ............................ 47.183 8. Helsingfors GK ................................ 46.650 9. Arendal .............................................. 43.075 10. Trondhjem ....................................... 38.316 Einkunnir íslensku liðanna: Gerpla Gólf: 19.583 Dýna: 16.950 Trampólín: 17.300 Stjarnan Trampólín: 16.600 Gólf: 18.800 Dýna: 12.100 Gerpla Norðurlandameistari í hópfimleikum Gerpla í einu sýn- ingaratriða sinna á Norðurlandamótinu.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.