Skinfaxi - 01.11.2013, Page 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Gerplustúlkur urðu Norðurlandameist-arar í hópfimleikum en mótið fór fram
í Odense í Danmörku helgina 8.–10. nóv-
ember sl. Það voru 10 lið sem kepptu í
kvennaflokki, tvö frá hverju landi. Fyrirfram
var búist við harðri keppni þar sem töluverð
endurnýjun hefur átt sér stað í Gerpluliðinu
frá því á Evrópumótinu í Danmörku. Stúlk-
urnar lögðu af stað með það að markmiði
að verja titil sinn en sú staðreynd að ekkert
lið hefur náð að verja titilinn frá fyrir 20
árum þegar sænska liðið GK Hermes gerði
það varð til þess að sigurinn nú er enn
sætari fyrir vikið. Keppnin var hörð og
harðari en hún hefur verið í þó nokkur ár.
Fyrir síðustu umferð var því mikil spenna
og allt opið en stúlkurnar stóðust álagið
og lönduðu enn einum titlinum í safnið.
Þetta eru fjórðu gullverðlaun Íslands í
röð í hópfimleikum kvenna. Íslenska lands-
liðið hefur unnið tvö síðustu Evrópumót
og Gerpla varði nú Norðurlandameistara-
titil sinn í fyrsta sinn. Gerplustelpurnar
hafa líka skipað íslenska landsliðið.
Þetta er ennfremur í þriðja sinn sem
Gerpla vinnur Norðurlandameistara-
titilinn. Þær unnu í fyrsta sinn árið 2007,
náðu ekki að verja titilinn 2009, en unnu
hann svo 2011 og svo aftur núna 2013.
Lokastaðan í keppni kvenna:
1. Gerpla ................................................ 53.833
2. Örebro GF ......................................... 52.800
3. Höganäs GF ..................................... 52.483
4. Bolbro Gymnasterne ................... 49.700
5. Tampereen Voimistelijat............. 48.016
6. Stjarnan ............................................. 47.500
7. TeamGym Greve ............................ 47.183
8. Helsingfors GK ................................ 46.650
9. Arendal .............................................. 43.075
10. Trondhjem ....................................... 38.316
Einkunnir íslensku liðanna:
Gerpla
Gólf: 19.583
Dýna: 16.950
Trampólín: 17.300
Stjarnan
Trampólín: 16.600
Gólf: 18.800
Dýna: 12.100
Gerpla Norðurlandameistari í hópfimleikum
Gerpla í einu sýn-
ingaratriða sinna á
Norðurlandamótinu.