Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
B
ókaútgáfan Tindur hefur gefið út
bókina Íslensk knattspyrna 2013
eftir Víði Sigurðsson en þetta er 33.
árið í röð sem árbók knattspyrn-
unnar á Íslandi kemur út. Í ár eru tímamót
í útgáfu bókarinnar því að hún er nú öll
litprentuð í fyrsta sinn. Áður hafa mest 37
prósent hennar verið í lit og fyrir vikið er
uppsetning hennar og efnisröðun talsvert
breytt að þessu sinni.
Bókin fjallar um viðburðaríkasta og lík-
ast til besta árið í sögu fótboltans á Íslandi.
Karlalandsliðið náði lengra en nokkru sinni
fyrr, þegar það komst í umspil um sæti í
lokakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu.
Kvennalandsliðið komst í átta liða úrslit
Evrópukeppninnar í Svíþjóð. Öll yngri lands-
lið Íslands komust áfram í Evrópukeppn-
inni og 21-árs landslið karla er í góðri stöðu.
Öll karlaliðin komust áfram í Evrópumót-
um félagsliða og tvö þeirra léku í þremur
umferðum. Íslenskir leikmenn gerðu það
gott erlendis, börðust um markakóngs-
titla og unnu meistaratitla í Svíþjóð, Dan-
mörku, Hollandi og Englandi, og fleiri
Íslendingar spila nú í meistaradeild Evrópu
en nokkru sinni fyrr.
Í bókinni er viðtal við Aron Einar Gunn-
arsson landsliðsfyrirliða, fjallað er sérstak-
lega um Gylfa Þór Sigurðsson, Alfreð Finn-
bogason og Katrínu Jónsdóttur, þjálfarar
ÍSLENSK KNATTSPYRNA 201
3
Víðir Sigurðsson
NA
2013
bestu leikmanna Íslandsmótsins, Björns
Daníels Sverrissonar og Hörpu Þorsteins-
dóttur, segja frá þeim, KR-ingurinn Baldur
Sigurðsson skrifar sjálfur um sigur Vestur-
bæinga á Íslandsmótinu og margt fleira
um fótboltann á árinu er þar að finna.
Fjallað er ítarlega um Íslandsmótið 2013
í öllum deildum og flokkum. Mest er skrif-
að um efstu deildir karla og kvenna en
einnig um neðri deildirnar og yngri flokk-
ana. Bikarkeppni karla og kvenna er gerð
ítarleg skil og fjallað um önnur mót innan-
lands og margt fleira sem tengist íslensk-
um fótbolta á árinu 2013.
Í bókinni er m.a. opinberað hvaða leik-
menn áttu flestar stoðsendingar í efstu
deildum karla og kvenna á árinu en viðkom-
andi leikmenn eru verðlaunaðir af bóka-
útgáfunni Tindi við útkomu bókarinnar.
Þá er í bókinni afar nákvæm tölfræði um
alla leikmenn í efstu deildum karla og
kvenna, liðsskipanir allra liða í öllum deild-
um meistaraflokks koma fram ásamt leikja-
og markafjölda og öll úrslit og lokastöður
í öllum yngri flokkum á Íslandsmótinu. Þar
má finna hverjir hafa spilað mest og skorað
mest í öllum deildum, hvaða íslensku knatt-
spyrnumenn hafa spilað flesta leiki á ferl-
inum, hvaða Íslendingar hafa spilað í
meistaradeild Evrópu og ótalmargt fleira.
Bókin er 256 blaðsíður, allar í lit sem fyrr
sagði. Hún er prýdd um 370 myndum, m.a.
liðsmyndum af sigurvegurum í öllum flokk-
um á Íslandsmótinu, ásamt mörgum fleiri
liðum og einstaklingum.
ÍSLENSK KNATTSPYRNA 2013