Dagrenning - 01.12.1946, Síða 9

Dagrenning - 01.12.1946, Síða 9
sem fræðimenn segja, að afkomendur ísraels- manna hafi farið á leið sinni norður í heim. Væri því hægt að rekja uppruna merkis þessa til forfeðra þeirra, mundi það enn vera, ásamt ótal mörgu öðru, stoð undir kenn- inguna um það, að núverandi afkomenda ísraelsmanna sé að leita á Norðurlöndum, Englandi og víðar. Vér skulum því athuga, hvort vér getum fengið nokkrar upplýsingar eða leiðbeining- ar um þetta í elztu ritum Gvðinga, Gamla testamentinu. Leitin ber árangur. í 17. kapítula 2. Móse bókar (8.—16. v.) lesum vér þessa frásögn: „Þá komu Amalekítar og héldu orustu við ísraelsmenn í Refídím. Þá sagði Móses við Jósúa: vel oss lið og far út og berst við Ama- lekíta; en ég mun á morgun standa efst uppi á hæðinni, og hafa staf Guðs í hendi mér. Jósúa gerði sem Móses hafði sagt fyrir um bardagann við Amalekíta; en þeir Móses og Aron og Húr gengu upp á hæðina. Þá gerðist það, að alla þá stund, er Móses hélt upp hendi sinni, Jxí höfðu Israelsmenn betur, en þegar er hann lét síga höndina, þá veitti Amalekítum betur. En með Jrví að Móses urðu Jaungar hendurnar, þá tóku þeir stein og létu undir hann og settist hann þar á; en þeir Aron og Húr studdu hendur hans, sinn á hvora hlið, og héldust þannig hendur hans stöðugt uppréttar, allt þar til komið var sólarlag. En Jósúa felldi Amalekíta og menn þeirra með sverðseggjum. Þá sagði Drottinn við Móses: rita þú þetta á bókina til minnis og minn Jósúa á, að ég vilji sannarlega afmá minningu Amalekíta af jarðríki. Þar reisti Móses altari og kallaði það: „Drottinn mitt hermerki." Og hann sagði: hermerki Drottins er á lofti, Drottinn vill halda ófrið við Amalekíta um aldur og ævi.“ Er þetta ekki einmitt lausn gátunnar? Er ekki þetta tákn, hin upprétta hönd, eða uppréttu hendur, sem fundizt hefir svo víða á fornum gripum, komið frá Móses, og bundið við þennan merkisdag, er ísraels- menn unnu sigur í fyrstu orustunni, sem þeir háðu. „Hermerki Drottins er á lofti.“ Guð sagði Móses að færa það inn í „bók- ina“, svo að Jrað geymdist um aldur og ævi. IJermerki Drottins, hin upprétta hönd, er Bionzemyndii há Kákasus og Suður-Rússlandi. á legsteinunum í Danmörku, í helluristun- um í Svíþjóð og Noregi, á steinkistunum hjá Bremen. Og leirmyndir þær, sem fundizt hafa í Ukraníu, Kákasus, Donárlöndum og á Krít, sýna einnig hermerki Drottins. Nú munu sumir segja, að hér sé of djúpt tekið í árinni. Ilermerki þetta muni hafa fallið niður með Móses. En svo er ekki. Það voru ekki hendur Móses, sem færðu ísraelsmönnum sigur, heldur „hermerkið". Og að það hafi ekki fallið niður, sést á Jósúa- bók (8. kap., 18.—19. og 26. v.). Þar segir svo: „Þá sagði Drottinn til Jósúa: útréttu það spjót, sem þú hefir í hendi Jjér, gegn Aí, því að ég vil gefa borgina á Jritt vald. En Jósúa rétti spjótið, sem hann hélt á, gegn borg- inni. Þegar Aíbúar litu við, sáu J^eir reykinn, sem lagði af bænum til liimins, og gátu nú í enga átt flúið, því að þeir, sem áður flúðu fyrir þeim á leið til eyðimerkurinnar, sneru nú við og eltu Jjá. DAGRENNING 7

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.