Dagrenning - 01.12.1946, Blaðsíða 40
"Mylnur
Guðs”
í hinni fróðlegu og athyglisverðu grein
„Afnám konungsríkjanna" í síðasta (3.) hefti
Dagrenningar segir að til sé erlendur orðs-
kviður, er þýddur hafi verið á íslenzku
„Guðs kvörn malar hægt.'‘ Þetta er hárrétt,
það sem það nær. En venjulega er ekki látið
staðar nurnið við þessi fjögur orð, heldur
hins og getið, að kvörnin mali smátt.
Þýzka skáldið Friedrich von Lenau, sem
uppi var fyrra hluta seytjándu aldar, er
höfundur margra spaklegra vísna, þar á
meðal þeirrar, er hefst á þessum orðum. Á
frummálinu er hún þannig:
Gottes Múhlen mahlen langsam,
mahlen aber trefflich klein;
Ob aus Langmut er sich sáumet,
bringt mit Schárf’ er alles ein.
Longfellow sneri þessu þannig á ensku:
Though the mills of God grind slowly,
yet they grind exceeding small;
Though with patience He stands waiting,
with exactness grinds He all.
í þessari þýðingu hefir vísan flogið um
alla veröld, svo að segja má að fyrri helm-
ingur hennar sé á allra þeirra vörum, er á
þá tungu mæla. Og nálega ávallt eru orðin
tilfærð í þýðingu Longfellow’s, en ekki á
frummálinu. Á íslenzku hefir vísan verið
þýdd á þessa leið:
Mylnur Guðs þó mali’ í hægðum,
mala þær samt undrasmátt;
þó hann tefji þolinmóður,
þá mun eftir skilið fátt.
Um alla æfi mannkynsins hefir mátt sjá
það, hve undrasmátt þessar mylnur mala, en
aldrei sáust þær mala í svo ægilega stórum
stíl sem nú síðustu áratugina þrjá. Þó er
vísast eftir ennþá stórfelldari rnölun, og fyrir
allra hluta sakir hæfir það okkar litlu þjóð,
að gefa gætur að táknurn tímanna. „Því að
þá daga mun verða slík þrenging, að engin
hefir verið þvílík frá upphafi sköpunarinn-
ar.“ Sn. J.
„THE DEAD END“.
Eftirfarandi Reutersfrétt birtist í Morgunblaðinu
12. desember s.l.:
„Sameinuðu þjóðunum boðin stórgjöí.
New York i gærkvöldi.
Milljónamæringurinn John D. Rockefeller hefir
boðið sameinuðu þjóðunum meir en tvær milljónir
sterlingspunda, til kaupa á lóð í New York undir
aðalbækistöðvar stofnunarinnar. Lóð, eða lóðir þessar
eru í því hverfi borgarinnar, sem nefnt hefir verið
„Dead End“.
Bækistöðvanefnd Sameinuðu þjóðanna var tilkynnt
boð Rockefellers í dag. — Það skilyrði fylgir þó
gjöfinni, að ákvörðun um það, hvort þiggja beri
hana, verði að hafa verið tekin innan 30 daga.
Sérstök undirnefnd liefir verið skipuð til að fjalla
um þetta mál.“
Þingi U.N. (Sameinuðu þjóðanna) lauk 16. des.
og var þá tilkynnt, að samþykkt hefði verið að taka
þessu boði Rockefellers.
Það er „einkennileg tilviljun", að „leið þjóðanna"
eins og hún er sýnd í Pýramidanum mikla, liggur frá
1944—1994 gegnum þröngan „gang", sem á íslenzku
hefir verið nefndur „lokagangurinn oplausi", en á
ensku er nefndur „The Dead End“.
38 DAGRENNING