Dagrenning - 01.12.1946, Blaðsíða 18

Dagrenning - 01.12.1946, Blaðsíða 18
hamri. Hún er það ekki fyrir þessi hátíða- höld æskufólksins í byggðinni, heldur fyrir það, að þarna er nú risið upp eitthvert merk- asta byggðasafn á Norðurlöndum. Þessum degi er ekki betur varið til annars en að skoða þetta merkilega byggðasafn. Næsta dag á þar einnig að vera mikil veizla fyrir gesti á kaupstaðaþinginu og þá verður þeim leiðbeint eftir beztu föngum. Mér vcrður þessi heimsókn á Maihaugen óglevm- anleg og þess vegna þykir mér rétt að fara nokkrum orðunr um þennan sérkennilega stað. Menn hafa stundum, nú á seinni tímum, við og við lievrt þetta orð — byggðasafn — notað, en cg efa að menn almennt hafi gcrt sér grein fyrir því, hvað í því felst eða hvað við er átt með því. Ég segi það eins og það er, að sjálfum var mér það alls ekki fylli- lega ljóst fyrr en ég kom á erlend byggða- söfn og skoðaði þau, og þá sérstaklega þetta bvggðasafn á Litlahamri. Á byggðasöfnum er safnað saman göml- um húsum og gömlum munum, bæði innán- stokksmunum, atvinnutækjum ýmsum' og búsáhöldum. Þessu er revnt að koma þannig fyrir, að hverju húsi fylgi öll þau áhöld og tæki, sem tilheyrðu þeim tíma, sem húsið er frá, svo að menn geti fengið sem gleggst yfirlit vfir það tímabil, bæði í atvúnnulegu og menningarlegu tilliti. Að koma inn í slíkt hús eða húsaþvrpingu er því í raun og veru sama og hverfa aftur í timann um svo og svo marga áratugi eða aldir og sjá nreð eigin augum við hvað for- feðurnir hafa búið, og livernig þcir af van- efnum þeirra tíma liafa reynt að leysa hin ýmsu vandamál. Maðurinn, sem stofnaði byggðasafnið á Litlahamri, hefir látið svo um mælt um til- gang sinn með því fvrirtæki: „Ég lít svo á, að þegar Maihaug-safnið verður að fullu tilbúið, eigi það að vera safn af hcimildum, þar sem hægt sé að ganga inn til þess fólks, sem þar hefir lifað og starfað, og læra að skilja við liver lífskjör það bjó, starf þess og lifnaðarháttu, því að í formi og útbúnaði heimilisins lifir myndin af fólkinu, sem þar bjó, og í hinum görnlu ættaróðulum er það ekki aðeins mynd hins cinstaka eiganda, sem speglar sig, heldur ætt- in kvnslóð eftir kvnslóð. Og það er ekki néifi handahófs söfnun af húsum og mun- um, sem ég vil reyna að varðveita á Mai- hæðinni frá eyðileggingu og glötun. Nei, allt byggðarlagið hér vil ég reyna að varðveita í þessari miklu myndabók. Ekki aðeins býlin með hinum mörgu og stóru húsum sínum, búnum eins og stolt margra ættliða krafðist, lieldur einnig heimili smábóndans og leigu- liðans í allri fátækt sinni og kotbýli sveitar- smiðsins með því, sem honum fylgir, og selið i skógarhlíðinni." Einmitt á þennan hátt á að byggja upp bvggðasafn. Þá fæst sá heildarsvipur og sú samræming, sem þarf til þess að menn skilji til hlítar, hvað vinnst við þessi söfn. Byggða- safnið í Osló er margfalt stærra en .byggða- safnið á Maíhæðinni hjá Litlahamri. En Oslóarsafnið er ekki nærri eins aðlaðandi eins og Litlahamars safnið, og orsökin er áreiðan- lega sú, að á hinu síðarnefnda er lögð meiri rækt við að samræma allt, bæði inni og úti. Mér þykir rétt að skýra hér frá fáeinum atriðum, er snerta þetta merkilega safn á Maíhæðinni hjá Litlahamri, ef einhver, sem aldrei hefir séð byggðasafn, gæti frekar feng- ið hugmynd um, hvernig góðu byggðasafni þarf að vera fyrir komið. * Höfundur bvggðasafnsins á Litlahamri hcitir Andres Sandvig og er tannlæknir. Hann er orðinn gamall rnaður og rnest öll æfi hans frá tvítugsaldri hefir gengið til þess að skapa þetta byggðasafn. Safnið er því fyrst og fremst hans verk. Á síðari árum hefir hann 16 DAGRENN ING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.