Ægir - 01.02.2014, Qupperneq 6
6
Fiskvinnsla er þemaefni þessa tölublaðs Ægis, þar sem rætt er við
bæði aðila í vinnslufyrirtækjum, sem og sölu- og markaðsmálum.
Það er enda við hæfi, svo náið sem fyrirtæki á þessum sviðum starfa
saman og verða í raun að starfa saman, eigi hámarksárangur að
nást.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem fjallað er um er Stormur Seafood í
Hafnarfirði og í viðtali vekur Þorsteinn Magnússon, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, máls á stöðu sölu- og markaðsmálanna.
Samkeppni innlendra framleiðenda á mörkuðum erlendis sé ógn
fremur en tækifæri.
„Það er eins og við höldum ennþá að þetta geri sig bara sjálft. Ég
held að núverandi ástand sýni að greinin þurfi að hysja upp um sig
brækurnar í markaðssetningu afurðanna og standa að einhverju
leyti saman að henni í stað þess að innlendir framleiðendur séu að
berjast innbyrðis úti á mörkuðunum. Það hlýtur að vera mjög
gaman að vera evrópskur milliliður þessa dagana að kaupa fisk af
sundruðum framleiðendum og söluaðilum frá Íslandi,“ segir
Þorsteinn.
Í Ægisviðtali blaðsins segir Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic
Group, að fyrirtækið ætli sér að auka samvinnu við
fiskframleiðendur hér á landi og hann telur að almennt muni
fjárfesting í markaðsstarfi fyrir sjávarafurðir fara vaxandi. „Við sjáum
tækifæri til að gera þessa hluti enn betur en áður. Það er
augljóslega ekki sjálfgefið að við fáum alltaf hæstu verðin fyrir
þorsk frá Íslandi úti á mörkuðunum. Við þurfum að vinna fyrir því að
skapa okkur þann sess og getum til að mynda horft til þess hvernig
framleiðendum á laxi hefur tekist að ná markaðslegri stöðu með
öflugu vörumerkja- og markaðsstarfi. Ég tel að við getum náð enn
betri stöðu með þorskinn okkar og það gerum við með því að skapa
honum aukna sérstöðu. Frá Noregi kemur mikið magn af þorski
sem selt er í vinnslu annars staðar í heiminum þar sem hann er
þýddur upp og fer þá tvífrystur út á afurðamarkaðinn. Þetta er
tækifæri fyrir okkur. Við höfum að bjóða ferskan þorsk eða
einfrystan í hæsta gæðaflokki. Ein leiðin af mörgum í þessari vinnu
er að nota vörumerki, líkt og t.d. Icelandic, til að standa að baki
þessari ímynd, uppruna og gæðum afurðarinnar.“
Engum sem fylgist með fiskvinnslu og markaðsmálum í dag
blandast hugur um að Norðmenn hafa bitið í skjaldarrendur og náð
umtalsverðum árangri með afurðir sínar úr laxi og þeir eru á fullri
ferð í markaðsátaki með þorskafurðir og mæta til leiks á mörkuðum
þar sem Íslendingar eiga mikilla hagsmuna að gæta. Þeim þurfa
framleiðendur og markaðsfyrirtæki að mæta af fullum þunga.
Bjallan hringir.
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar
Bjallan hringir
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5100 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
MAKING MODERN LIVING POSSIBLE
Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is
Danfoss stjórnbúnaður fyrir íslenskan iðnað
Rofabúnaður • Mjúkræsar • Segullokar
Hitastillar • Hitanemar
Stjórnbúnaður með áratuga reynslu
við íslenskar aðstæður
Hitaliðar •
Þrýstiliðar • Þrýstistillar • Þrýstinemar
R
itstjórn
a
rp
istilll