Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 12

Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 12
12 Fiskiðjan Bylgja í Ólafsvík veitir um 50 manns vinnu í fisk­ vinnslu en fyrirtækið byggir al­ farið á hráefni frá fiskmörkuð­ um, auk beinna hráefniskaupa af útgerðum ef á þarf að halda. Fyrirtækið hefur nokkra sér­ stöðu meðal íslenskra fisk­ vinnslna vegna fjölbreytni í framleiðslu sinni, framleiðir bæði frystar og ferskar fisk­ afurðir úr yfir 15 fisktegund­ um. Fiskiðjuna Bylgjuna stofn­ aði Ívar Baldvinsson árið 1977 og þá um vinnslu á fisktegund­ um sem lítið var þá hirt um að koma í verð. Með tíð og tíma jókst fjölbreytileikinn í vinnsl­ unni og árið 1991 urðu nokkur straumhvörf þegar tengsl sköp­ uðust við viðskiptavini í Belgíu og þangað flutti fyrirtækið m.a. ferskan fisk. Árið 1997 tók sonur Leifur Ívarsson, sonur stofnandans, við keflinu og er nú eigandi að 75% á móti belgíska fyrirtækinu Marine Harvest Pieters N.V. Afhendingaröryggi er lykilatriði „Við sérhæfum okkur ekki í einni fisktegund umfram aðra, vinnum allt okkar í frosið og ferskt. Það má segja að við höf- um tekið upp þráðinn aftur í ferska fiskinum sem við vorum að framleiða á árum áður og sá hluti er alltaf að sækja á í fram- leiðslunni,“ segir Leifur. Hann segir að með lækkandi verðum á frosnum afurðum hafi áherslan færst yfir í ferska fisk- inn. „Það eru nánast allar fisk- tegundir komnar yfir í ferskt í dag og lykilatriði í þessu er að ná að standa við afhendingu á vörunni til kaupenda. Framleið- endur eru fljótir að missa við- skiptavini ef þeir ná ekki að skila því sem þeir hafa samið um,“ segir Leifur en framleiðsla Fiskiðjunnar Bylgju fer að stærstum hluta til Marine Har- vest Pieters í Belgíu og dreifist þaðan út til verslanakeðja og veitingahúsa. „Veturinn var mjög erfiður fyrir okkur, gæftaleysi og óstöð- ugleiki í hráefnisframboðinu. Minna framboð á ýsu vegna minni kvóta hefur líka áhrif á okkur,“ segir Leifur en segja má að Fiskiðjan Bylgja framleiði um 20 tonn af vörum að jafnaði á viku yfir árið. Hörð samkeppni við Norðmenn Fiskiðjan Bylgja breytti fyrir skömmu merki sínu og má glöggt sjá á því nýja hversu rík áhersla er lögð á hreinleikann, ferskleikann og Ísland, m.a. með fánalitunum. „Stórkaupendur erlendis horfa talsvert til hreinleikans og upprunamála, m.a. MSC vottun- arinnar og Iceland Responsible Fisheries en neytendurnir sjálfir eru, að minnsta kosti enn sem komið er, uppteknastir af verði vörunnar. Við seldum um tíma til verslunarkeðju sem lagði áherslu á að vera með íslenskar vörur en þeir hafa lagt þá áherslu til hliðar. Við finnum glögglega fyrir því hve Norð- menn hafa komist langt í sínu markaðsstarfi að undanförnu og við verðum að taka okkur tak á þessu sviði. Það kostar tíma, fé og fyrirhöfn og þarf að gerast með sameiginlegu átaki á landsvísu. Þetta er ekki verk- efni sem er á færi einstakra fyr- irtækja. Við heyrum kaupendur okkar erlendis tala um vaxandi sókn Norðmanna og til að mynda er stutt síðan að kom al- gjört stopp í markaðinn fyrir okkur í Belgíu þegar Norðmenn efndu til svokallaðrar skrei-viku. Þá snerist allt um norskan þorsk. Á meðan sitjum við á hliðarlínunni en í hvert skipti sem Norðmönnum tekst að koma með svona átak inn á markaðinn ná þeir nýjum við- skiptavinum á sitt band. Þessu verðum við að mæta af fullum krafti og eigum að mínu mati að keyra upp sérstöðu okkar með hreinleikanum og gæðum okkar afurða. Við eigum fyrir- mynd í markaðsátakinu Inspired by Iceland og getum byggt á því.“ Brýnt að efna til kynningar- átaks á mörkuðum Leifur Ívarsson hjá Fiskiðjunni Bylgju í Ólafsvík segir Norðmenn sækja hart fram á mörkuðum fyrir íslenskar sjávarafurðir:. Vinnsla hjá Fiskiðjunni Bylgju í Ólafsvík. F isk v in n sla

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.