Ægir - 01.02.2014, Page 20
20
Viljum aukið samstarf við
framleiðendur
„Þær áherslubreytingar í
rekstrinum sem við höfum gert
að undanförnu miða að því að
einfalda félagið og styrkja jafn-
framt samband okkar og sam-
starf við fiskframleiðendur hér
heima á Íslandi. Þær einingar
sem Icelandic Group hefur látið
frá sér að undanförnu, svo sem
Selmer í Frakklandi og Picken-
pac í Þýskalandi, höfðu í sjálfu
sér ekki þörf fyrir íslenskan fisk
og því má segja að jafnt og þétt
séum við með þessum
breytingum að hækka hlutfall á
íslenskum fiski sem fer í gegn-
um okkar kerfi. Mikilvægi hrá-
efnis frá Íslandi er þannig að
aukast og við undirstrikum enn
frekar áherslu okkar hér heima
með kaupum á fyrirtækinu Ný-
fiski í Sandgerði. Þar erum við
að koma inn í bæði landvinnslu
og útgerð sem skilar okkur
margháttuðum ávinningi. Bæði
erum við með þessu að taka
þátt í vöruþróun, auka okkar
færni í virðiskeðjunni í heild og
svara þannig kalli sem við heyr-
um frá neytendum á öllum okk-
ar mörkuðum. Framleiðsla Ný-
fisks er ekki stór hluti af því
heildarmagni sem fer í gegnum
okkar kerfi en bæði þessi kaup
og nánara samstarf við
fiskframleiðendur á Íslandi
undirstrika þann ásetning okkar
að vinna á öllum sviðum virðis-
keðjunnar,“ segir Magnús. Ekki
eru áform um frekari beina
þátttöku í landvinnslu eða út-
gerð enda leggur Magnús
áherslu á að að innkoma fyrir-
tækisins í Nýfisk hafi þann til-
gang að mæta ákveðnu ákalli á
afurðamörkuðunum. Lykilatriði
er að Icelandic Group sé mark-
aðsdrifið fyrirtæki.
„Okkar stoðir í rekstrinum
eru þrjár. Í fyrsta lagi að vera
markaðdrifið fyrirtæki sem fjár-
festir í sínum vörumerkjum og
öðrum þáttum í markaðsstarf-
inu. Í öðru lagi að búa yfir öflug-
um innviðum sem hafa burði til
að koma vörunni frá auð-
lindinni og inn á markaðina og í
þriðja lagi að hafa aðgengi að
auðlindinni, þ.e. eiga hið nána
samstarf við framleiðendur
bæði erlendis og í auknum
mæli á Íslandi,“ segir Magnús
en um helmingur þess magns
sem Icelandic Group selur kem-
ur frá framleiðendum á Íslandi.
Vökul augu neytenda
Markaðir eru síbreytilegir og
það á að sönnu við um afurða-
markaði í fiski, ekki síður en
aðra neytendavörumarkaði.
Gagnsæi og ábyrgð eru stóru
atriðin sem fiskafurðamarkaðir
leggja áherslu á í dag.
„Krafan er um 100%
gagnsæi og að í virðiskeðjunni
sé aðili sem beri ábyrgð á vör-
unni frá upphafi til enda. Ef við
tökum sem dæmi okkar starf-
semi í Bretlandi og Belgíu þá er-
um við í samstarfi við leiðandi
verslunarkeðjur sem vilja að við
berum fulla ábyrgð á vörunni
alla leið inn á gólf til þeirra.
Þetta er almennt mjög vaxandi
krafa og sú uppákoma sem
varð fyrir rúmu ári síðan þegar
upp komst um notkun á
hrossakjöti í lasagna þrýsti enn
frekar á um þessa ábyrgðar-
kröfu. Neytendur gera þá kröfu
í dag að þeir fái örugga vit-
neskju um hvað þeir eru að
borða og geti treyst vörunni.
Krafa þeirra um þessa þætti er
meiri en áður var en um leið er
þetta tækifæri fyrir okkur vegna
þess hversu mikið gegnsæi við
höfum á allri keðjunni frá auð-
lind til neytanda.
Krafan um aukna skilvirni er
líka áberandi og henni mætum
við með nánara samstarfi við
okkar lykilbirgja og loks má
The Saucy Fish Co. er annað aðal vörumerki Iclandic Group og
er í mikilli sókn, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Leiðin til að hámarka verðmæti í framleiðslu
fiskafurða er að skilja markaðina og uppfylla
þarfir þeirra.