Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2014, Qupperneq 21

Ægir - 01.02.2014, Qupperneq 21
21 segja að við séum í vaxandi mæli að horfa til vara úti á mörkuðunum þar sem fiskur er í aðalhlutverki. Við höfum verið með framleiðslu á tilbúnum réttum í Grimsby í Bretlandi sem við munum hætta á þessu ári í samræmi við þessa stefnumörkun okkar. Sjávar- fang er okkar sérgrein og út frá þeim punkti er okkar aðal áhersla,“ segir Magn- ús. Sérstöðu íslenskra þorskafurða á að auka Vörumerkið Icelandic á að baki sér áratuga sögu á afurðamörk- uðum víða um heim en annað aðal vörumerki Icelandic Group er „The Saucy Fish Co“. Vörur eru seldar undir hinu síðar- nefnda í flestum stórmörkuð- um í Bretlandi og nýverið hafa yfir 400 verslanir á austurströnd Bandaríkjanna tekið þessar vör- ur í sölu. Það er til marks um ár- angur af uppbyggingu vöru- merkisins The Saucy Fish Co að í árlegri skoðanakönnun um vörumerki í Bretlandi þótti það með þeim svölustu á breskum markaði og skipaði sér á lista með ekki ómerkari vörumerkj- um en Apple, Facebook og Nike. Magnús er ekki í vafa um að tækifæri felist í uppbyggingu beggja vörumerkjanna og fjár- festingum á þessu sviði. „Við sjáum tækifæri til að gera þessa hluti enn betur en áður. Það er augljóslega ekki sjálfgefið að við fáum alltaf hæstu verðin fyr- ir þorsk frá Íslandi úti á mörk- uðunum. Við þurfum að vinna fyrir því að skapa okkur þann sess og getum til að mynda horft til þess hvernig framleið- endum á laxi hefur tekist að ná markaðslegri stöðu með öflugu vörumerkja- og markaðsstarfi. Ég tel að við getum náð enn betri stöðu með þorskinn okkar og það gerum við með því að skapa honum aukna sérstöðu. Frá Noregi kemur mikið magn af þorski sem selt er í vinnslu annars staðar í heiminum þar sem hann er þýddur upp og fer þá tvífrystur út á afurðamarkað- inn. Þetta er tækifæri fyrir okk- ur. Við höfum að bjóða ferskan þorsk eða einfrystan í hæsta gæðaflokki. Ein leiðin af mörgum í þessari vinnu er að nota vöru- merki, líkt og t.d. Icelandic, til að standa að baki þessari ímynd, uppruna og gæðum af- urðarinnar,“ segir Magnús. Þurfum að taka þátt í þróun Asíulanda Icelandic Group er stærsti útflytjandi á sjávarfangi frá Ís- landi og selur á markaði víða um heim. Tækifærin eru víða en ekki hvað síst í Asíulöndum. „Þar erum við að fara dýpra inn á markaðinn, ef svo má segja, auka vitund hans fyrir gæðum þeirra vara sem við erum að selja frá Íslandi. Styrkleiki okkar Allt til línuveiða www.isfell.is Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi • Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1 • Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1 • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.isNýfiskur í Sandgerði er nú í eigu Icelandic Group og þar með er fyrirtækið orðið beinn þátttakandi í fiskvinnslu og útgerð. Forstjóri Icelandic Group telur að marka þurfi íslenskum þorskafurðum meiri sérstöðu á mörkuðunum. Í því felist tækifæri til sóknar með þessar dýrmætu af- urðir.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.