Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 25
25
Reynslan af nýju M800 roð-
dráttarvélinni sýnir góða nýt-
ingu á hráefni og afburða góð
flakagæði, ekki síst í vandmeð-
förnu hráefni, s.s. ýsu. Benda
notendur M800 um borð í
frystiskipum á að t.d. séu
sporðaklippingar áberandi
minni en í samkeppnisvélum.
Einnig er mikilvægt atriði að
roðvélin er einföld, hljóðlát,
einstaklega viðhaldslétt og er
afar fyrirferðalítil sem þykir mik-
ill kostur, ekki síst um borð í
vinnsluskipum.
Eins og í hönnun og smíði
allra fiskvinnsluvéla Vélfags var
í hönnun M800 roðdráttarvélar-
innar lögð rík áhersla á að þrif
væru auðveld og örverumeng-
un þannig haldið í lágmarki.
M700 flökunarvélar og M500
hausarar frá Vélfagi eru einnig í
notkun hjá bæði öflugum land-
vinnslufyrirtækjum og sjófrysti-
skiskipum á Íslandi og erlendis
og hafa þessar vélar hvarvetna
hlotið lof fyrir afköst, endingu,
lága bilanatíðni og góða hrá-
efnisnýtingu. M800 roðdráttarvélin.