Ægir - 01.02.2014, Page 27
27
inn og enginn skilur neitt í því
að við skulum ekki fá að veiða
meira þegar það er svona mikil
fiskgegnd og það vantar aura í
ríkiskassann. Ég get ekki betur
séð en að hafið sé morandi í
fiski. Margar lagnir hafa verið að
skila á milli 20 og 30 tonnum.
Það hefðu einhvern tíma þótt
ágæt aflabrögð,“ segir Guðjón.
Kópur er nú kominn í slipp
og er verið að útbúa hann fyrir
væntanlega makrílvertíð. Menn
bíði nú eftir að komast á makríl
og eftir nýju fiskveiðiári.
„Það er dálítil bið í nýtt fisk-
veiðiár en biðin er samt ekki
eins löng og maður upplifði
hana eftir jólunum í gamla
daga. Nú hellast jólin yfir mann
áður en maður veit af því. Það
sama á við um nýtt fiskveiðiár.“
Þegar kvótastaðan er ekki
betri en þetta sækir Guðjón á
fiskmarkaðina til að halda fisk-
vinnslunni í gangi. „Svo fer nú
strandveiðin að hefjast hver
sem árangurinn af henni verð-
ur. Í fyrrasumar klikkaði skak-
vertíðin alveg hjá okkur. Ég
man ekki til þess að það hafi
gerst áður. Það var mokafli fyrir
norðan Djúp en bara erfiðleikar
hjá okkur. Nokkrir beittu á krók-
ana og þeim gekk betur. Það
var fiskur þarna en af einhverj-
um ástæðum gaf hann sig
ekki.“
Selt til Evrópu og Kanada
Þórsberg er mest í vinnslu á
þorski, ýsu og steinbít. „Það er
búið að minnka svo stein-
bítskvótann að það er svo sem
ekki eftir miklu að slægjast. Og
ýsan er bara meðafli en það er
ekki reynt að veiða hana. Á
grunnslóð er mikið af henni en
það er auðveldara að forðast
hana á fjærmiðum. Grunnið og
allir firðir virðast fullir af ýsu.
Þegar hún kemur sem meðafli
höfum við reynt að leigja kvóta
og nýta Hafróheimildirnar. En
þá fæst líka lítið fyrir hana,“ seg-
ir Guðjón.
Þórsberg flytur út ferskan,
frosinn og saltaðan fisk, mest til
Evrópulanda en einnig til
Kanada. „Þar er ágætur markað-
ur og þangað hefur mest farið
ferskt og frosið. Þessi viðskipti
hafa frekar aukist. En að öðru
leyti er staðan ágæt og svo sem
ekki yfir neinu að kvarta. Ég er
bjartsýnn að eðlisfari og öðru-
vísi er ekki hægt að vera í
þessari grein,“ segir Guðjón.
Kvótinn er búinn en þá er fiskur keyptur á markaði til að halda uppi fiskvinnsl-
unni.