Ægir - 01.02.2014, Page 28
28
Sveinbjörn Sigmundsson
verksmiðjustjóri segir að
breytingin miðist fyrst og
fremst við afkastaaukningu.
„Aukningin fer eingöngu fram
með rafmagni og varaafl með
olíu verður ekki til staðar. Ef við
lendum í skerðingum þá er
stækkunarhlutinn fyrstur út,“
segir Sveinbjörn.
Hann segir að það sé ekki
bjart framundan hvað varðar
afhendingu á ótryggri orku. „Í
mínum huga er ástandið býsna
alvarlegt, ekki hvað síst þegar
kemur að flutningsgetu á raf-
orku út á land. Það er rætt um
að flytja út raforku til annarra
landa um sæstreng en svo virð-
ist sem við getum ekki flutt ork-
una á milli landshluta. Flutn-
ingskerfið er að liðast í sundur
og þetta er háalvarlegt mál,“
segir Sveinbjörn.
25 til 30 tonn af olíu á sólarhring
Fiskmjölsverksmiðja HB Granda
hefur undanfarin ár nýtt raf-
skautaketil til framleiðslunnar í
stað hinna gömlu olíukatla og
hefur það haft í för með sér
sparnað á orkukostnaði og
dregið úr innflutningi á erlendu
jarðefnaeldsneyti. Sveinbjörn
Sveinbjörn Sigmundsson verksmiðjustjóri segir raforkuflutningskerfið vera að
liðast í sundur.
Afkasta-
geta aukin
um 300
tonn á
sólarhring
Stækkun á fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði hófst strax í
lok loðnuvertíðar. Verksmiðjan afkastar núna 850 tonnum af hrá
efni á sólarhring en eftir stækkun verður afkastagetan 1.150 tonn.
Stækkunarhluti verksmiðjunnar verður einungis knúinn raforku
þannig að komi til skerðingar á afhendingu á raforku verður af
kastagetan áfram óbreytt 850 tonn.
Fiskmjölsverksmiðja HB Granda á Vopnafirði.
F
isk
v
in
n
sla