Ægir - 01.02.2014, Page 33
33
Landsins mesta úrval
af viftum. Skoðaðu
úrvalið á viftur.is
Viftur
ísvélar
1 T
Framleiddu eigin ís
5 T
Stærsti og virtasti
framleiðandi heims
Leitaðu tilboða!
Ammoníak
Frystiklefar
Allt í kælikerfið á einum staðíshúsiðS: 566 6000 | Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur 30ára reynsla
198
3 - 2013
Hágæða kæli- eða
frystiklefar.
Hagstætt verð!
tilboð
Reiknaðu hagnaðinn: isvelar.is
inu sama dag. Verðmyndun á
fiski á Íslandi er því mjög gölluð
svo vægt sé til orða tekið og
ekki er eingöngu hægt að
kenna „stóru“ fyrirtækjunum
um það.“
Barningur í fiskvinnslunni
Þá hafi gengisþróunin ekki verið
jákvæð fyrir útflutnings-
greinarnar undanfarið. „Fisk-
vinnsla sem þarf að leita annað
eftir hráefni en til eigin útgerðar
er ekki öfundsverð í dag. Ég
held að nær sé að segja að fisk-
vinnsla sé barningur um þessar
mundir.“
Þorsteinn segir að meintur
virðisauki af meiri vinnslu á sjáv-
arafurðum verði að mjög litlu
leyti eftir á Íslandi. „Mér finnst
oft eins og virðisaukinn sé mun
meiri fyrir milliliði úti í Evrópu.
Þeir geta selt vöruna áfram á
svipuðu verði en fengið hana á
lægra verði þar sem framboðið
er stöðugt að aukast. Þarna
kemur auðvitað að því hvernig
við Íslendingar stöndum að
markaðssetningu á afurðum
okkar. Það er eins og við höld-
um ennþá að þetta geri sig bara
sjálft. Ég held að núverandi
ástand sýni sig að greinin þurfi
að hysja upp um sig brækurnar í
markaðssetningu afurðanna og
standa að einhverju leyti saman
að henni í stað þess að innlendir
framleiðendur séu að berjast
innbyrðis úti á mörkuðunum.
Það hlýtur að vera mjög gaman
að vera evrópskur milliliður
þessa dagana að kaupa fisk af
sundruðum framleiðendum og
söluaðilum frá Íslandi.
Svo er það umræðan um
fullvinnsluna sem mér finnst
vera á reiki. Fyrir mér getur heill
þorskur alveg eins verið
fullvinnsla að því gefnu að
kaupandinn óski eftir vörunni í
því ástandi. Mér finnst það eiga
við um flestar greinar fiskvinnsl-
unnar að öfugur virðisauki sé
bundinn í frekari vinnslu afurð-
anna. Það virðist oftar en ekki
gilda að eftir því sem varan er
meira unnin því minna fæst fyrir
hana. Verðbilið milli óunnin
fisks og unninni vöru er ekki
nógu mikið. Við fáum oftast
mest fyrir þorskinn með því að
skera af honum hausinn, pakka
honum ofan í kassa og senda
kaupanda,“ segir Þorsteinn.
Ferskar afurðir komnar í kassa og tilbúnar í útflutning.