Ægir - 01.02.2014, Page 34
34
„Verkið gengur samkvæmt
áætlun og því á að vera lokið
þann 1. júní,“ segir Ingólfur
Árnason hjá Skaganum hf. en
nú stendur sem hæst uppsetn
ing búnaðar í nýrri uppsjávar
verksmiðju hjá Skinney
Þinganesi á Höfn í Hornafirði.
Settir verða upp 10 frystar með
tilheyrandi vinnslu og frysti
kerfum en Kælismiðjan Frost
annast frystikerfi verksmiðj
unnar.
Samningur Skagans hf. við
Skinney-Þinganes er sá stærsti
sem Skaginn hefur gert hér á
landi en uppsjávarverksmiðjan
er í öllum meginatriðum hlið-
stæð þeim sem fyrirtækið hefur
þegar sett upp á Suðurey í Fær-
eyjum og mun setja upp í
Fuglafirði í Færeyjum í sumar.
„Afköst verksmiðjunnar á
Höfn verða um 700 tonn á sól-
arhring en í henni erum við að
koma fram með nýjungar í
vigtun og pökkun sem bæði
skila meiri gæðum afurða og
auknum afköstum. Þær lausnir
munum við líka nota í verk-
smiðjunni í Fuglafirði,“ segir
Ingólfur en samkvæmt samn-
ingum á að skila því verki þann
1. ágúst. Uppsetning búnaðar
er ekki hafin í Færeyjum en nú
er verið að ljúka smíðum fryst-
anna og tilheyrandi vinnslu-
kerfa á Akranesi og fer þá
mannskapur frá Skaganum og
Kælismiðjunni Frost utan til að
setja verksmiðjuna upp.
Auk uppsjávarverksmiðj-
unnar á Höfn annaðist Skaginn
einnig breytingar á vinnslukerfi
í bolfiskvinnslu Skinneyjar-
Þinganess og var þeim hluta
verkefnisins lokið fyrr í vetur.
Þar er um að ræða nýtt inn-
mötunarkerfi fyrir slægingu og
flatningu. „Það kerfi er komið í
fullan gang og afkastaði um 13
tonnum á klukkustund núna á
vertíðinni og við erum mjög
sáttir við þann árangur,“ segir
Ingólfur.
Saltkaup hf. • Cuxhavengata 1 • 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 • www.saltkaup.is
Uppsetning frytiskápa Skagans er í fullum gangi.
Skinney-Þinganes á Höfn í Hornafirði:
Ný uppsjávar-
verksmiðja
á áætlun
F
isk
v
in
n
sla