Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari
Íslands í skák, verður gerður að
heiðursborgara Reykjavíkur við há-
tíðlega athöfn í Höfða á morgun.
„Ég er afskaplega snortinn yfir því
að vera sýnd þessi virðing,“ segir
hann.
Stórmeistarinn hélt upp á áttræð-
isafmælið í gær og var að vonum
hinn kátasti. „Dagurinn er ekki til
mæðu,“ sagði afmælisbarn gærdags-
ins og bætti við að aldursbreytingin
væri rétt eins og að stíga yfir lágan
þröskuld.
Úr bæ í borg
Friðrik er mikill Reykvíkingur og
segir að sér þyki vænt um þessa við-
urkenningu. „Mér þykir vænt um
Reykjavík og ég hef alist upp með
Reykjavík samfara því að hún
breyttist úr bæ í borg. Það eru svo
margar minningar sem tengjast
borginni,“ rifjar hann upp. Bætir við
að margt hafi breyst frá því sem áð-
ur var og margt sé horfið, en minn-
ingarnar gleymist ekki.
Ungur hóf Friðrik taflmennsku.
Hann var 11 ára þegar hann tefldi
fyrst á Skákþingi Íslands. Hann
varð fyrst Íslandsmeistari 17 ára,
Norðurlandameistari 18 ára og sigr-
aði á sterku skákmóti í Hastings um
áramótin 1955-56. Friðrik varð stór-
meistari 1958 og var um tíma á með-
al bestu skákmanna heims.
Með heiðursborgaratitlinum vill
Reykjavíkurborg þakka Friðriki
fyrir árangur hans og afrek á sviði
skáklistarinnar. „Ég er hreykinn af
því að lífsferill minn verðskuldi
svona nafnbót og ég get ekki annað
en verið þakklátur fyrir það.“
Friðrik Ólafsson er sjötti ein-
staklingurinn sem gerður er að heið-
ursborgara Reykjavíkurborgar.
Hinir eru séra Bjarni Jónsson 1961,
Kristján Sveinsson augnlæknir
1975, Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Íslands, 2010, Guð-
mundur Guðmundsson myndlist-
armaður, öðru nafni Erró, 2012 og
Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns
Lennons, 2013.
Friðrik segir að sér mikill sómi
sýndur og ekki síst af því að vera
tekinn inn í góðan félagsskap. „Ég
get ekki hafnað þessu,“ segist hann
hafa sagt þegar honum voru flutt
tíðindin.
Meistarinn afskaplega snort-
inn vegna sýndrar virðingar
Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák, gerður að heiðursborgara Reykjavíkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jafntefli Friðrik Ólafsson var með vænlegri stöðu en bauð Agnari Tómasi Möller jafntefli í afmælisskák gærdagsins.
Í gær var nýtt merki Reykjavíkur-
skákmótsins afhjúpað og við sama
tækifæri undirrituðu Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, og Agnar Tómas Möller,
fyrir hönd Gamma, samstarfs-
samning vegna Reykjavíkur-
skákmótsins til fjögurra ára.
Í gær höfðu 25 stórmeistarar í
skák skráð sig á Reykjavíkur-
skákmótið sem fer fram í Hörpu
10. til 18. mars nk.
Friðrik Ólafsson var viðstaddur
undirskrift samstarfssamnings
Skáksambandsins og Gamma og
tefldi skák við Agnar Tómas Möll-
er. Sá síðarnefndi þáði jafntefli
þegar það bauðst.
Samstarf við Gamma
NÝTT MERKI REYKJAVÍKURSKÁKMÓTSINS AFHJÚPAÐ
Raforkuvinnsla
með jarðhita
Í grein Jónasar Elíassonar prófess-
ors um raforkuvinnslu með jarðhita
sem birtist í blaðinu í gær átti að
birtast skýringarmyndin sem hér
er.
Vestan við byggðina
Í dálkinum Myndagáta, sem birtist
í Sunnudagsmogganum um helgina,
sagði að Systrastapi væri austan
við byggðina á Kirkjubæjar-
klaustri. Rétt er að stapinn er vest-
an við byggðina.
Stjórnarformaður
Samskip Holding
Í frétt um samstarfssamning Au-
rora velgerðarsjóðs í Síerra Leóne
var annar stofnenda sjóðsins, Ólaf-
ur Ólafsson, sagður stjórnar-
formaður Samherja. Hið rétta er
að Ólafur er stjórnarformaður
Samskip Holding. Er beðist vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Meiri lækkun
á útsölu
20%
aukaafsláttur
af útsöluverði
Tíska & förðun
PÖNTUN AUGLÝSINGA, fyrir kl. 16 mánudaginn 9. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir, sími: 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út
glæsilegt
sérblað um
Tísku og
förðun
föstudaginn
13. febrúar
2015
Viðskiptatækifæri
Áhugasamir aðilar hafi samband við Guðna Halldórsson
sími 414 1200, gudni@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Veiðivöruverslun
Til sölu ein vinsælasta veiðivöruverslun landsins. Verslunin
hefur verið rekin um nokkura ára skeið og notið mikilla
vinsælda. Hafa eigendur lagt áherslu góða þjónustu og
hágæða vörur fyrir vandláta veiðimenn. Verslunin nýtur
sérstöðu meðal annars vegna góðra umboða í veiði- og
útivistarvörum, sérstaklega tengdum fluguveiði.
Reksturinn hefur gengið vel, er í stöðugum vexti og hefur
skilað góðum hagnaði.
Spennandi tækifæri fyrir áhugamenn um veiði og útivist.
Stærsti sölutíminn framundan.
H
a
u
ku
r
0
1
.1
5
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
mbl.is
alltaf - allstaðar