Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 10

Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Hópferð með Fúsa á Brekku 7. árið í röð 16. - 21. september Færeyjaferð með Fúsa á Brekku og Svenna frá Hafursá. Skoðunar- ferðir, skemmtun, gisting í 4 nætur á Hótel Færeyjum. Hálft fæði og íslensk fararstjórn. Verð á mann í tveggja manna herbergi . . . kr. 145.900 Miðað við 2 saman. Verð á mann í eins manns herbergi. . . . kr. 164.900 Bókaðusnemma! Uppseltöll árin Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gera þarf bragarbætur ágöngubrautinni upp á Úlf-arsfell, segir Ólafur Stein-ar Björnsson, Grafarvogs- búi og göngugarpur. Fjallið sem er áberandi kennileiti í borginni og sést víða frá, er 295 metrar á hæð. Auð- gengt og fjölfarið er þangað upp, en hægt er að velja um nokkrar leiðir. Margir fara úr skógræktarsvæðinu í Hamrahlíð við Vesturlandsveg, sem er innan landamerkja Mosfells- bæjar. Jafnvel fleiri binda þó á sig gönguskóna og taka fram stafina á bílastæði sem er við nýbygginga- svæðið í Úlfarsárdal og leggja þar á brattann upp fjallið sunnanvert. Fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í fjallamennsku er Úlf- arsfellið upplagt til æfinga. Hægt er að koma sér í form; það er að „ganga sig í gang“ ef svo mætti segja. Einstigi og stiklað á steinum Fyrir vant fólk er um hálfrar til einnar klukkustundar gangur á Úlf- arsfellið. Ágætt er þó að gefa sér einn til einn og hálfan tíma í ferðina, en úr nýbyggðinni í dalnum er góð og greið leið. Þó ber að taka fram að þegar komið er í urðir í suðvest- urhlíðum fjallsins verður að príla í einstigi og stikla á steinum. Þar er til dæmis nánast ómögulegt fyrir fólk að mætast nema leggja ein- hverskonar lykkju á leið sína. „Þarna þyrfti að mínu mati setja upp tröppur til að auðvelda fólki uppgönguna. Ég legg til að menn fari þarna upp með haka, skóflu, sleggju og nokkra járnteina sem reknir yrðu niður og fjalir sett- ar við þá. Þannig er hægt að búa til Vill tröppur fyrir sáralítinn pening Úlfarsfellið er útivistarparadís. Ólafur Steinars Björnsson er kominn vel á áttræðisaldur og heldur sér frískum og fjörugum með fjallgöngum. Hann segir leiðina á fjallið þó vera varasamt einstigi sem þarf að bæta. Fjallafólk Á sumrin má hjóla upp á Úlfarsfell, eins og gert var í fyrra. Frá vinstri Arnbjörg Hafliðadóttir, Pétur Óli Hafliðason og Bragi Reynisson. Útsýni Af Úlfarsfelli er víðsýnt. Borgin er fyrir fótum fólks og hér sést Staðarhverfi í Grafarvogi og Geldinganesið, sem teygir sig út á Kollafjörð. Fyrir áhugafólk um flug er vefsíðan flugheimur.is algjörlega ótæmandi fróðleiksbrunnur. Þar er meðal ann- ars að finna skrá yfir allar íslenskar flugvélar, uppruna þeirra, eigenda- sögu og fleira slíkt. Þá eru tengingar af síðunni inn á timarit.is þar sem finna má fréttir sem tengjast t.d. við- komandi flugvél. Einnig eru á síðunni skrár yfir alla flugvelli landsins svo og tenglar á ýmis önnur vefsetur um þetta sama efni. Á Facebook eru einnig ágætar og vinsælar flugsíður. Margir fara á Allt um flug, sem er fréttaveita flugtíð- inda á heimsvísu. Flugnördar er önn- ur síða í svipuðum anda. Þar skiptast bæði atvinnu- og einkaflugmenn á skoðunum og miðla upplýsingum og er óhætt að segja að umræður í þessu starfræna samfélagi þeirra séu oft og tíðum allt í senn: líflegar, fræð- andi og skemmtilegar. Vefsíðan www.flugheimur.is Morgunblaðið/Þórður Piper Flogið á 69 ára gamalli vél yfir Borgarfjörðinn á fallegum degi í janúar. Flogið um í stafrænni veröld Í dag, þriðjudaginn 27. janúar klukk- an 16, verður upphafi árs ljóssins á Íslandi og stórafmæli Sameinuðu þjóðanna fagnað með samkomu í há- tíðasal Háskóla Íslands. Þar verður dagskrá ársins kynnt meðal annars og ráðherrar mennta- og utanríkis- mála flytja ávörp. Markmið SÞ með ári ljóssins er að bæta skilning almennings á því hvernig ljós og tækni sem byggist á ljósi snertir líf okkar allra og að ýta undir frekari þróun þar til vistvænnar framtíðar. Helstu áherslusvið þessa átaks verða á sviði orkumála, mennt- unar, landbúnaðar og heilbrigðis. Dagskrá árs ljóssins hefst í dag Hluti af vist- vænni þróun Morgunblaðið/Rax Sólmyrkvi Ljósið er langt og mjótt. Hinum ólíklegustu brögðum er beitt til að draga næturgesti að her- bergjum sem í boði eru fyrir ferða- menn úti í hinum stóra heimi. Í dýragarðinum La Fleche í Frakk- landi er til dæmis hægt að gista í her- bergi þar sem ein rúðan gefur sýn út í sundlaug þar sem hvítabjörninn Taiko syndir og leikur sér. Kona þessi hefur greinilega kosið að njóta félagsskapar þessarar stóru og tign- arlegu skepnu á gististað sínum og ekki annað að sjá en hún skemmti sér ágætlega við að spjalla við bangsa og máta smáan lófa sinn við stóra hramma hans. Fyrir þá sem kjósa félagsskap dýra Í Frakklandi er hægt að gista með syndandi hvítabirni AFP Spjall Ætli hún skilji bangsamál? Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.