Morgunblaðið - 27.01.2015, Page 20
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Lífeyrissjóðurinn Gildi mun ekki
taka þátt í Hagvaxtarsjóði Íslands.
Forsvarsmenn Framtakssjóðsins
hafa á síðustu misserum unnið að
stofnun hans en honum er ætlað að
fjárfesta í verkefnum sem tengjast
innviðum samfélagsins, þar á meðal
í orkumálum og bankaþjónustu.
Höfðu þeir væntingar um að
stærstu lífeyrissjóðir landsins yrðu
þátttakendur í verkefninu en Gildi
er þriðji stærsti lífeyrissjóður lands-
ins.
Harpa Ólafsdóttir, stjórnarfor-
maður Gildis, staðfestir að stjórn
sjóðsins hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að taka ekki þátt. „Þeir
komu og kynntu þetta fyrir okkur
og okkur leist ekki á það,“ segir hún
og ítrekar að sjóðurinn hafi ekki
tekið endanlega ákvörðun um það
hvort og með hvaða hætti hann
muni koma að innviðafjárfestingu á
komandi misserum hérlendis.
Sjóðurinn þriðjungi minni
Upphaflega var gert ráð fyrir að
Hagvaxtarsjóðurinn yrði 30 millj-
arðar að stærð og þegar Þorkell Sig-
urlaugsson, stjórnarformaður
Framtakssjóðs Íslands, var spurður
af Morgunblaðinu í nóvember síð-
astliðnum hvort vera kynni að sjóð-
urinn yrði eitthvað minni í sniðum
sagði hann: „við stefnum enn að því
að hann verði 30 milljarðar.“ Nú,
tveimur mánuðum síðar, er hins
vegar annað hljóð komið í strokkinn.
„Það var metnaðarfullt af okkur að
stefna að 30 milljarða sjóði í upphafi
og við göngum núna út frá því að
sjóðurinn verði 20 milljarðar,“ segir
Þorkell og bætir við að það verði síð-
an unnið áfram að því að stækka
sjóðinn síðar.
Ólík afstaða stóru sjóðanna
Hægar hefur gengið að koma
sjóðnum á fót en vonast var eftir á
síðasta ári. Fyrstu áætlanir gerðu
ráð fyrir að hann yrði fullfjármagn-
aður fyrir áramót. Seinkunin mun
helst hafa ráðist af því að erfiðlega
hefur gengið að fá tvo af þremur
stærstu lífeyrissjóðum landsins til
að skuldbinda sig til þátttöku.
Nú þegar Gildi hefur gefið út að
ekki verði af þátttöku hans við
stofnun Hagvaxtarsjóðsins á svar
enn eftir að berast frá Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins (LSR) um
hvort vænta megi þátttöku hans eða
ekki. Baldur Vilhjálmsson, forstöðu-
maður eignastýringar LSR, segir að
málið sé enn í skoðun hjá sjóðnum.
Snemma í ferlinu barst vilyrði frá
Lífeyrissjóði verslunarmanna (LV)
um þátttöku sem næmi allt að 20%
af heildarfjármögnun sjóðsins. Að-
spurð segir Ásta Rut Jónasdóttir,
stjórnarformaður LV, að allt bendi
til að hann leggi um 4 milljarða inn í
Hagvaxtarsjóðinn. Ef fyrstu áætlan-
ir hefðu gengið eftir hefði framlag
LV þó orðið nær 6 milljörðum
króna.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að sérstök áhersla sé lögð á aðkomu
LSR að stofnun Hagvaxtarsjóðsins
og að aðkoman verði með áþekku
sniði og LV. Því má gera ráð fyrir að
þátttaka LSR geti ráðið miklu um
hvort Hagvaxtarsjóðurinn verði að
veruleika í þeirri mynd sem lagt var
upp með, þó að stærðin verði nokk-
uð minni en væntingar stóðu til í
fyrstu.
Lífeyrissjóðnum Gildi leist
ekki á Hagvaxtarsjóð Íslands
Fjárfestingar Hagvaxtarsjóður Íslands verður minni en vonir stóðu til.
Ljóst að sjóðurinn nær ekki 30 milljarða króna stærð eins og að var stefnt
Innviðasjóður
» Hagvaxtarstjóðurinn verður
rekinn af Framtakssjóði Ís-
lands, sem er í eigu lífeyr-
issjóða og Landsbankans.
» Sjóðurinn mun einbeita sér
að fjárfestingum í innviðum,
þar með talið í bönkum, sam-
göngum og orkutengdum verk-
efnum.
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
N1 greiddi hæsta arðinn í hlutfalli
af upphafsgengi hlutabréfa í félag-
inu á síðasta ári, eða 7,8%. Önnur fé-
lög sem greiddu arð á síðasta ári
voru VÍS, TM, Hagar, Icelandair,
Eimskip og Össur. Jafnframt fóru
N1 og Össur í stór einskiptiskaup á
eigin bréfum á síðasta ári, auk þess
sem VÍS, TM og Vodafone stunda
regluleg endurkaup á markaði. Ís-
landsbanki gerir ráð fyrir að þau fé-
lög sem voru skráð á síðasta ári,
Sjóvá og HB Grandi, muni fylgja yf-
irlýstri stefnu um arðgreiðslur.
Þau félög sem greiddu arð í fyrra
munu væntanlega halda áfram að
koma hagnaði til hluthafa í formi
arðgreiðslna eða kaupa á eigin
hlutabréfum í ár, segir í Morgun-
korni Íslandsbanka. Mörg þeirra fé-
laga sem nú eru á markaði séu hluti
af grunninnviðum hagkerfsins og
hafi lítil tækifæri til vaxtar á þeim
mörkuðum þar sem þau starfa. Þau
muni því skila hagnaði sínum áfram
til hluthafa með arðgreiðslum eða
endurkaupum á markaði, segir í
Morgunkorni.
Skila hagnaði áfram til hluthafanna
Lítil vaxtartækifæri skráðra félaga
Morgunblaðið/Kristinn
Arður Skráð félög munu áfram leggja áherslu á útgreiðslu hagnaðar.
● Smábátaeigendur í Skagafirði hafa
stofnað með sér félagið Drangey –
Smábátafélag Skagafjarðar. Félagið
stefnir á að verða aðili að Lands-
sambandi smábátaeigenda. Þá skoraði
stofnfundurinn, sem fram fór á laug-
ardag, á sjávarútvegsráðherra að beita
sér fyrir því að Skagafjörður verði
áfram lokaður fyrir dragnótaveiðum.
Vilja Skagafjörð lokað-
an fyrir dragnótaveiðum
!"
#
"$!
$
$
%
$%#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$%
#%"
%
#
""
$#
!$
!!!!
$
%
$
!!
$
#"
"
$#%
!
!%
$$$
%!
Lífeyrissjóður
verslunarmanna
tilkynnti lækkun
vaxta á verð-
tryggðum sjóðs-
félagalánum fyr-
ir helgi. Nú eru
fastir vextir
3,7% en breyti-
legir 3,99%. Til
samanburðar
býður Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins fasta
vexti á sömu kjörum og LV en
breytilegir vextir standa nú í
3,4%. Þá geta sjóðsfélagar Al-
menna lífeyrissjóðsins sótt sér
verðtryggð lán með 3,85% föstum
vöxtum og 3,93% breytilegum.
Gildi býður fasta vexti á verð-
tryggðum lánum á 3,8% og breyti-
lega á 3,35%.
Misjöfn kjör
lífeyrissjóða
Lán Lífeyrissjóðir
bjóða misjöfn kjör.
Vextir sjóðfélagalána
LV taka breytingum
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og
Kaskur ehf., fjárfestingafélag í eigu
Inga Guðjónssonar, hafa fjárfest í
Kaptio fyrir um 120 milljónir króna.
Hingað til hefur fyrirtækið verið
fjármagnað af stofnendum og
tekjustofni sem aðallega hefur
byggst á tekjum af ráðgjafastörfum
við innleiðingu á Salesforce CRM.
Fjármögnun þessi, þar sem fagfjár-
festar koma að uppbyggingu fyr-
irtækisins, er liður í að byggja und-
ir vöruþróun og vöxt í sölu á Kaptio
Travel-lausninni sem gerir ferða-
skrifstofum og ferðaskipuleggjend-
um kleift að halda utan um tilboðs-
ferli og bókanir viðskiptavina sinna
á skilvirkan hátt.
Nýir fjárfest-
ar í Kapito
Fjárfest Kapito fær nýja hluthafa.
STUTTAR FRÉTTIR ...