Morgunblaðið - 27.01.2015, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 27.01.2015, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015 Ádagskrá Sinfóníuhljóm-sveitar Íslands síðastliðiðfimmtudagskvöld voru tvösinfónísk ljóð frá mótunar- árum tveggja tónskálda, Richards Strauss og Jeans Sibelius. Hljóm- heimur beggja tengist miðevrópskri síðrómantík, blóði og sálarangist; söguhetjurnar Kullervo og Macbeth stigu upp úr raddskrám, gengu aftur og styttu stundir með nokkrum glundroða og geðshræringu. Kvöldið var einnig eftirminnilegt fyrir þær sakir að áheyrendur hlýddu á íslensk- an frumflutning á rúmlega hundrað ára tónverki Sibeliusar. Tónskáldið sjálft stjórnaði fyrsta flutningi í Helsinki í apríl 1892 er vakti afar jákvæð hughrif áheyrenda. Stundin markaði eins tímamót í finnskri tónlistarsögu þar sem þá hljómaði fyrsta sinni innborið finnskt sinfónískt tónverk. Strauss hafði þegar hér var komið samið tvær sinfóníur er hann ákvað að snúa sér að tónaljóðum hvar form- ið er ekki aðeins knappara, heldur einnig opnara fyrir nýjungum og til- raunamennsku, en þangað stefndi Strauss. Við flutning Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands á Macbeth mátti vel skynja að um fyrstu atrennu var að ræða, og þá eins hversu vel tón- skáldið náði að þroska tónaljóða- formið næstu árin sem liðu, t.d. í Till Ugluspegill. Helsta karaktereinkenni Richards Strauss er ríkulegur málmblástur svo nokkuð mæddi á málmblásarasveit- inni hvar mátti greina m.a. bassat- rompet. Minni háttar ónákvæmni sólótrompets í upphafi gleymdist strax. Hljómsveitin sótti vel á og und- ir lokin var spilamennskan glansandi, ef ekki sanserandi enda yfirgengileg geðbrigði Macbeth undir en með of- urmetnaði og ofsóknarbrjálæði gerð- ist hann konungur Skotlands en steypti loks sjálfum sér, drottningu og þegnum í glötun. Allt á 18’30’’! Eftir hlé gat að hlýða á samsvar- andi tilraun. Flestir vita að Kalevala- kvæðabálkurinn er samofinn finnskri menningu líkt og Íslendingasögurnar Íslendingum. Ófáir bera miðjunafn úr Kalevala líkt og sá sem hélt um tónsprotann, Petri Kullervo Sakari. Þrátt fyrir hinn epíska söguþráð úr Kalevala, er miðar djúpt á uppruna og sjálfsvitund finnskrar þjóðarsálar, gat Sibelius stuðst við harla fátt heimafyrir er viðkom klassískri arf- leið við gerð tónvefsins. Hann hóf á námsárum í Vínarborg smíði á Kull- ervo og lauk verkinu tveimur árum seinna á mótunarskeiði sem tónskáld, tuttugu og sjö ára gamall. Sú stað- reynd skýrir að einhverju leyti til- raunakennt handbragð, t.d. úrval takt- og tóntegundaskipta sem og sviptinga í geðslagi. Heilt yfir kom á óvart óvenjulegt tónmál er gaf Kullervo-sinfóníunni ferskan en jafnframt fornfálegan brag, jafnvel forspárlegan því hljóm- ar og litir ómuðu ef til vill ókunnug- lega við frumflutning árið 1892 hvar ýmislegt í hljómvef gaf vísbendingu á litapalletu tónskálda tuttugu árum síðar. Sibelius hvarf þó frá þeirri leit- an yfir í klassískari siði, t.a.m. við tón- smíði sinnar fyrstu sinfóníu tíu árum síðar. Sterk melankólísk taug og sköpunarmáttur, helstu kennimerki Sibeliusar, skildu eftir fingraför á Kullervo. Á meðal söguhetja Kalevala er Kullervo andhetjan, harmrænn og að því best verður séð bölsamur mun- aðarleysingi er þráir heitast að vitja uppruna síns, gerist hugrakkur stríðsmaður er leitar hefnda fyrir hönd föður og móður en verður í þeim erindum fyrir því óláni að lokka syst- ur sína (sem var honum að öllu óþekkt) til kynmaka. Þegar upp kemst er skömmin svo yfirgengileg að systirin drekkir sér og Kullervo lætur sig falla á eigið sverð. Hermt er að Sibelius hafi ákveðið að hlífa kvensöngvurum í lengstu lög við frásögn hinna hispurslausu tíð- inda blóðskammar og víga. Hann spennti því karlakór fyrir söguþráð- inn í stað blandaðs kórs: „Mætti hann þá meyju einni, / brjóstnælu hún bar úr tini … Kullervo, Kalervos sonur, / blásokkaður bur þess gamla, / tók nú meyna og setti á sleðann, / upp í sleð- ann henti hann henni, / lagði hana á loðna feldi, / breiddi yfir ábreið- urnar“. Einsöngshlutverkin eru í raun smáhlutverk (cameo) en mikilvæg innan hinnar hröðu framvindu. Þau Þóra Einarsdóttir og Jorma Hynn- inen stigu fram og dróu upp skýrum dráttum mynd af hinum ólánssömu persónum, botnuðu frásögn kórsins á atvikum og staðháttum og hægðu á allri framvindu. Sérlega eftirminni- legur var söngur Hynninens undir lok þriðja þáttar: „Vei, mér örmum, öllum dögum / ævi minnar, húsi og frændum, / ég hef svívirt systur mína, / smánað dóttur móður minnar! Vei sé föður, vei sé móður, / vei sé yður, virtu áar!“ Þessi virðulegi bassabaritón mætti vel einbeittur til leiks, markaður til- finningaþrunginni dýpt er á hápunkti léði hinum baldna Kullervo sársauka og skömm. Þóra Einarsdóttir söng sem rós meðal þyrna. Finnskan var engin hindrun, þvert á móti var sem hún gripi tækifærið og kannaði nýjar lendur þjáningar og sakleysis. Karlakórarnir tveir héldu friðinn og gott betur. Þeir hófu fyrst upp raust sína í þriðja kafla í samstiga áttundum með taktboða í 5/4 sem þessi rúmlega hundrað manna stór- kór leysti farsællega. Karlarnir stóðu keikir með innkomur réttar er gátu á stundum reynst snúnir með hljóm- sveitina í flóknum hendingum. Það var ekki síður upplifun að heyra alla þessa íslensku karlmenn syngja á lýtalausri finnsku. Ein sólóinnkoma undir lokin er hreint smotterí í hinu stóra samhengi hlutanna. Það tekur því varla að telja upp ágalla. Heilt yfir gekk flutningurinn hnökralaust fyrir sig þrátt fyrir mannmergð og tilfinningavímu. Áheyrendur voru flestir vel stemmd- ir og réðu sumir vart við sig milli þátta þegar þögnin ein ríkir alla jafna. Það var Mahler sem fyrstur tók að flytja heilu tónverkin til enda án viðbragða hlustenda, en taka mætti slíka fagurfræðivinkla til skoð- unar. Það var mikill fengur í að heyra loks þetta sjaldheyrða tónverk. Raunar er verkið svo sjaldan flutt að Petri Sakari stjórnaði því nú öðru sinni á yfir þrjátíu ára ferli. Í því sam- hengi er athyglisvert að Sibelius leyfði í sextíu og fimm ár aðeins flutn- ing á öðrum og fjórða kafla verksins, þ.e. aðeins þeim hljómsveitarköflum sem hin hispurslausi sögutexti er víðs fjarri. Petri Sakari stjórnaði afburða vel og af mikilli yfirvegun. Hraðaval hans í Kullervo var nokkuð hægara en gengur og gerist sem gaf aftur flutningnum næði og tóm. Petri er fyrir löngu orðinn einn af „liðinu“ og verður svo vonandi um ókomna tíð. Kullervo fáum við hinsvegar tæpast að heyra aftur. Geðshræringar með Sinfóníunni Harpa – Eldborg Sinfóníuhljómsveit Íslandsbbbbn Makbeð, sinfónískt ljóð eftir Richard Strauss. Kullervo, sinfónískt ljóð eftir Jean Sibelius. Einsöngvarar: Jorma Hynninen og Þóra Einarsdóttir. Kórar: Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóstbræður. Stjórnandi: Petri Sakari. Fimmtudaginn 22. janúar 2015. INGVAR BATES TÓNLIST Morgunblaðið/Eggert Stjórnandinn „Það var mikill fengur í að heyra loks þetta sjaldheyrða tónverk. Raunar er verkið svo sjaldan flutt að Petri Sakari stjórnaði því nú öðru sinni á yfir þrjátíu ára ferli,“ skrifar rýnir um flutninginn á Kullervo. Gríski söngvarinn Demis Roussos, einn vinsælasti dægurlagasöngvari áttunda áratugarins, er látinn 68 ára að aldri. Hann hafði glímt við veikindi um tíma og lést á sjúkra- húsi í Aþenu. Um 60 milljón eintök af plötum með söng Roussos seldust út um heimsbyggðina. Meðal vinsælustu laga hans má nefna „Forever and Ever“, „Goodbye“ og „Quand je t’aime“. Árið 1975 áttu sænska hljómsveitin ABBA og Roussos flest lög á vinsældalistum Vesturlanda. Auk þess að koma fram undir eigin nafni var Roussos um tíma meðlimur rokkhljómsveitarinnar Aphrodite’s Child ásamt tónlistar- manninum Vangelis. Árið 1978 ákvað Roussos að láta fara minna fyrir sér og settist að í Bandaríkjunum. Hann komst í heimsfréttirnar sjö árum síðar þeg- ar liðsmenn Hezbollah rændu flug- vél sem hann var farþegi í og var hann gísl þeirra í fjóra daga. Í kjöl- farið fór Roussos aftur að koma fram og naut mikilla vinsælda. Söngvarinn Demis Roussos látinn AFP Vinsæll Frægðarsól Demis Roussos reis hæst á áttunda áratug liðinnar aldar. Óperan Spaða- drottningin (Pi- que dame) eftir Tsjajkovskíj verður sýnd beint á netinu frá Vínaróper- unni á morgun, miðvikudaginn 28. janúar. Út- sendingin er klukkan 18 til 21.15 en kynning á verkinu hefst klukkan 17.15. Sýningin er aðgengileg fram á laugardaginn kemur og kostar fjórtán evrur. Barítónsögvarinn góðkunni, Tómas Tómasson, er í tveimur hlutverkum í uppfærslunni og syngur þá Tomskí og Plútó. Mar- jana Lipovsek, sem er að nálgast sjötugt, er í hlutverki greifynj- unnar. Tómas hefur komið fram í fjölda óperuhúsa á síðustu árum, austan hafs og vestan. Slóðin á útsendinguna er: www.staatsoperlive.com/en/live/. Tómas í netútsendingu Vínaróperunnar Tómas Tómasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.