Morgunblaðið - 27.01.2015, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015
Árlegir tónleikar til heiðurs W.A.
Mozart verða haldnir á Kjarvals-
stöðum í dag kl. 18 á fæðingardegi
tónskáldsins.
Á efnisskránni eru tvær sónötur
fyrir píanó og fiðlu sem og sönglög,
en tónleikunum lýkur með flutningi
á Exultate Jubilate.
Flytjendur eru Þóra Einarsdóttir
sópran, Björn Jónsson tenór, Alad-
ár Rácz á píanó og Laufey Sigurð-
ardóttir á fiðlu, sem jafnframt er
umsjónarmaður tónleikanna.
Atli Heimir Sveinsson tónskáld
fjallar um Mozart og tónlistina sem
flutt verður. Aðgangur er ókeypis.
Ungur Mozart fæddist í Salzburg 27. janúar árið 1756 og lést í Vín 5. desember 1791.
Tónleikar á fæðingardegi Mozarts
Þrátt fyrir hvimleiðan vestan-garra fóru næstsíðustu tón-leikar Kammermúsík-klúbbsins á þessum vetri
fram fyrir fullum Norðurljósasal s.l.
sunnudagskvöld. Bryndís Halla
Gylfadóttir lauk þar með seinni helm-
ingsúttekt sinni á sex sellósvítum
Bachs eftir að sögn vel heppnaðan
fyrripart fyrir réttu ári á sama vett-
vangi, og hafði sá flutningur eflaust
sitt að segja um aðsóknina. Fyrir nú
utan ævarandi gæði og orðspor þess-
ara nafntoguðu meistaraverka frá
hirðmúsíkárum tónskáldsins hjá Leo-
pold fursta af Anhalt-Köthen 1717-23,
er standa enn einstök meðal merk-
ustu tónsmíða fyrr og síðar fyrir knéf-
iðlu án undirleiks.
Það er að sama skapi fæstum sell-
istum léttvægt mál að takast á við því-
líka helgidóma, hvorki í hljóðriti né í
lifandi túlkun. Samanburðurinn við
fremstu snillinga heimsins er löngu
orðinn það nærtækur og miskunnar-
laus að flestir hugsa sig um tvisvar
áður en þeir voga sér í slaginn. Vand-
anum hefur m.a. verið lýst sem að
fara í opinbera gegnlýsingu. Og engin
furða. Aðild og réttur hvers hljómlist-
armanns afhjúpast bókstaflega í einu
vetfangi við meðferð hans á þessum
dýrgripum.
Þó að ekki búi ég yfir tæmandi
vitneskju af heildarflutningi svítn-
anna hér á landi mætti kannski rifja
upp þann sem ég hef orðið vitni að í
starfi, og eru flytjendur fljóttaldir:
Sigurður Halldórsson í Skálholti (að
líkindum fyrstur Íslendinga, nema
aðrir viti betur) og síðan Gunnar
Kvaran í Salnum 2005. Meðal smærri
skammta frá erlendum flytjendum á
sama stað mætti síðan nefna framlag
Erlings Blöndal Bengtsson (nr. 1 & 6,
2006) og Nataliu Gutman (nr. 1-3,
2009).
Það er því varla hægt að segja að
svíturnar hafi beinlínis riðið húsum á
okkar fjörum. Því eftirtektarverðara
var að upplifa nálgun Bryndísar Höllu
umrætt sunnudagskvöld – ekki aðeins
í ljósi 25 ára reynslu sem sellóleiðara
SÍ heldur einnig fyrir viðamikla þátt-
töku hennar í kammerleik.
Bryndís virtist nokkuð sveimhuga í
Forleik 3. Svítu í C-dúr ef marka
mátti flögrandi yfirbragð þáttarins,
þrátt fyrir stöðugu sextánduparts-
runurnar er minnt hafa suma á
saumavél. Kúnstin er auðvitað að
draga úr ,mekanismanum‘ þegar
Bach er í þeim móð með hæfilegu
rúbatói og álíka, en þetta verkaði að-
eins um of. Allemandan var hins-
vegar dansandi létt, og þó að Kúr-
antan væri ögn losaraleg í rytma,
hélzt Sarabandan syngjandi mjúk.
Eftir á að hyggja virtust einmitt sara-
böndurnar liggja bezt fyrir Bryndísi,
og kúrönturnar einna sízt – svona í
grófustu dráttum.
Bourrée I & II, með ferskum keimi
sínum af sveitadansi franskra fjalla-
bænda í Auvergne, eru með vinsæl-
ustu þáttum svítnanna að verðleikum
og bryddaði Bryndís upp á skemmti-
legum rúbatóandstæðum í II. Pilsa-
sviptandi lokagikkurinn minnti síðan
beinlínis á bon mot Ellingtons – „Það
merkir ei neitt ef það sveiflar ei
greitt!“
Enn betur tókst til í 4. svítu í Es-
dúr. Fyrst með glæsilegri Prelúdíu,
svo með vaggvakurri Allemöndu er
bauð upp á smitvæna spennu undir
afslöppuðu yfirborði. Þó að Kúr-
antan, líkt og sú fyrsta (og sú síðasta),
væri svolítið stressuð, þá var Sara-
bandan dúnmýktin uppmáluð, nánast
líkt og konungborin ævintýradís væri
að raula barnagælu. Aftur sópaði
uppljómað áreynsluleysi af tveim Bo-
urré-þáttum, trúlega meðal sönghæf-
ustu lagperlum Bachs í öllum bálk-
inum – að vísu með umdeilanlegu
stakkatói í II sem þótti óvenjulegt
hér áður fyrr. Gikkurinn í enda hefði
sómt sér með glans undir fínustu fót-
mennt á góðmenntu þorrablóti, þó
vottaði fyrir stöku smágösli í annars
óaðfinnanlegri tækni.
Þegar hér var komið sögu var ljóst
að Bryndís gætti ávallt endurtekn-
ingarmerkja. Var það fagnaðarefni,
enda hafa margir oft sleppt þeim,
einkum í seinni hluta þátta. Aftur á
móti saknaði maður stundum skýrara
p -„bergmáls“ í styttri endurtekn-
ingum, þótt kæmi t.a.m. fram í Bour-
rée I í nr. 4.
Eftir hlé var komið að 5. Svítunni í
c-moll. Hún forskrifar sérstillingu
(scordatura) með lækkun efsta a-
strengs niður um heiltón, er ljær
verkinu dekkri tónblæ og alvöru.
Mögnuð Prelúdían hófst með hægt
íhugulum inngangi er leiddi yfir í
hraða „sýndar“-fúgu ef svo má segja,
og gerði Bryndís öllu hin beztu skil.
Allemandan var né heldur afleit, en
þó að Kúrantan hefði mátt fljóta að-
eins betur í hrynjandi var Sara-
bandan aftur á móti frábær – gædd
seiðandi dulúð er Bryndís dró enn
betur fram með markvissu píaniss-
issimói við nærri kosmíska kyrrð.
Hin skoppandi Gavotta I og dill-
andi eftirdansinn (II) geisluðu af
þokka, og margt var líka vel gert í
Gikknum þó að hann „sæti“ ekki
100% sem skyldi, e.t.v. vegna tilhneig-
ingar til flýtinga. Allt um það var
fáum blöðum um að fletta að Bryndís
Halla hafði hér lokið myndarlegu
dagsverki. Hljóta því margir að bíða
spenntir eftir hljómdiskum hennar
með upptökur á þessum ódauðlegu
meistaraverkum er kváðu í vændum.
Vonandi tekst þá ekki verr til með
hljómgæði en gat að heyra í Norður-
ljósasalnum, þar sem eðalfagur selló-
tónninn ljómaði hunangshlýr í sam-
ræmi við kjörfurstalegan purpuralit
veggjalýsingar, þakklátum hlust-
endum til ljúfrar endurminningar um
ókomna tíð.
Norðurljósum í Hörpu
Einleikstónleikar bbbbn
J.S. Bach: Sellósvítur nr. 3-5 í C, Es og c.
Bryndís Halla Gylfadóttir selló. Sunnu-
daginn 25. janúar kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Ómar
Bryndís Halla „… var fáum blöðum um að fletta að Bryndís Halla hafði hér
lokið myndarlegu dagsverki,“ skrifar rýnir um flutning hennar.
Konungborin ævintýradís
Rafmagnað samband við áskrifendur
Þann 20. febrúar stingur einn heppinn áskrifandi
Morgunblaðsins Volkswagen e-Golf í samband.
Vinnur þú straumabílinn?
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 31/1 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Sun 1/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00
Lau 7/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 8/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 15/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00
Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Mið 28/1 kl. 20:00 Fös 6/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Sun 1/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00
Fim 5/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00
Aðeins sýnt út febrúar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 17:00 Lau 7/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00
5 stjörnu sýning að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Mið 28/1 kl. 20:00 6.k. Fös 6/2 kl. 20:00 9.k Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas.
Lau 31/1 kl. 20:00 Aukas. Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 11.k
Sun 1/2 kl. 20:00 7.k. Mið 11/2 kl. 20:00 Aukas. Mið 18/2 kl. 20:00 12.k
Fim 5/2 kl. 20:00 8.k. Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Fim 19/2 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.