UTBlaðið - 20.01.2006, Page 19
Stafræn væðing starfsemi fyrirtæk-
isins Röntgen Domus í Reykjavík
er lýsandi dæmi um hvernig
nýjasta upplýsingatækni breytir
tilveru sjúklinga og sérfræðinga í
heilbrigðisþjónustu á þann veg að
hiklaust má líkja við byltingu.
Dæmi um þetta er innleiðing
nýrrar tölvusneiðmyndatækni sem
hófst með nýju tæki þar í lok árs
2003 og þar með var til dæmis
unnt að mynda kransæðar án
hjartaþræðingar. Enn fullkomara
tæki var svo tekið í notkun sum-
arið 2005, svokallað 64 sneiða
tæki. Um svipað leyti var lokið
við að koma fyrir samhæfðu upp-
lýsingakerfi frá Kodak/Hans Pet-
ersen hf., hinu fyrsta sem
röntgendeild á Íslandi setur upp
frá einum framleiðanda. Öll
myndvinnsla varð þá stafræn og
filmur heyrðu jafnframt sögunni
til. Þetta kerfi skapar líka forsend-
ur til pappírslausra samskipta við
heilbrigðisstofnanir, lækna og
aðra, sem er að sjálfsögðu til
þæginda, flýtis og hagræðingar í
rekstri Röntgen Domus. Rekstrar-
umhverfi fyrirtækisins er að miklu
leyti orðið pappírslaust nú þegar.
Kerfið er þannig uppbyggt að
myndir og upplýsingar viðkom-
andi fylgjast alltaf að. Ef til dæmis
læknir eða annar notandi kallar
eftir mynd fær hann um leið til-
heyrandi greiningu á tölvuskjáinn
sinn og ef hann biður um grein-
inguna fær hann jafnframt tilheyr-
andi myndir.
Myndir frá Blönduósi
fjargreindar í Reykjavík
Í júlí 2005 var komið á tölvusam-
bandi milli Röntgen Domus og
sjúkradeildar Heilbrigðisstofnun-
arinnar Blönduósi. Eftir það hefur
plötum með röntgenmyndum ver-
ið stungið í sérstakan lesara
nyrðra (hliðstæðan lesara sem
notaður er til að taka myndir úr
venjulegri, stafrænni heimilis-
myndavél inn í tölvu). Röntgen-
myndirnar eru síðan sendar á
símalínum um örugga, dulkóðaða
tengingu suður í Röntgen Domus
þar sem læknar og aðrir sérfræð-
ingar greina þær strax og geta
komið niðurstöðum norður um
hæl, munnlega, skriflega eða um
sjálft tölvukerfið. Áður voru filmur
frá Blönduósi sendar suður í
venjulegum pósti og niðurstöð-
urnar fóru sömu leið til baka frá
Reykjavík að greiningu lokinni.
Samskiptaferlið tók jafnan ein-
hverja daga en gerist nú nánast á
svipstundu!
Fyrstu læknastofurnar tengd-
ust upplýsingakerfi Röntgen
Domus í desember 2005. Lækn-
arnir setja ekki upp sérstakan
hugbúnað heldur uppfæra ein-
faldlega vafrann í venjulegum
tölvum hjá sér og fá aðgangs-
heimild og kenniorð til að tengj-
ast gagnagrunni Röntgen Domus.
Þeir geta hvenær sem er nálgast
myndgreiningu sem varðar til-
tekna sjúklinga eða röntgenmynd-
irnar sjálfar.
Flýtir og sparnaður
Stafræna upplýsingakerfið flýtir
augljóslega fyrir og sparar um leið
mikla fjármuni. Afköst geta aukist
um 15 til 100%, allt eftir því
hvaða þættir starfseminnar eru
metnir. Stafrænar röntgenmyndir
veita oft meiri upplýsingar en
hægt var að fá áður á filmum og
þar með verður sjúkdómsgrein-
ingin öruggari, sem skiptir meðal
annars miklu máli þegar greina
þarf myndir af kransæðum, ýms-
um áverkum á beinum og fleiru.
Sjúklingarnir upplifa stóraukin
þægindi með því að þurfa til
dæmis ekki að fara um langan
veg til röntgenmyndatöku, búi
þeir nálægt sjúkrahúsi eða heilsu-
gæslustöð á landsbyggðinni þar
sem boðið er upp á fjargreiningu
í samvinnu við röntgendeild. Fjar-
greining getur líka komið sér vel
þegar röntgenmynda þarf fólk í
öryggisskyni vegna slysa ef áverk-
ar sýnast ekki verulegir. Síðast en
ekki síst er stafræna tæknin um-
hverfisvæn því nú þarf ekki leng-
ur að nota framköllunarvökva og
filmur sem í eru efni, skaðleg
bæði heilsu manna og umhverfi.
Það liggur líka við að kalla megi
þessa breytingu heilsusamlega
gagnvart starfsmönnum í ljósi
þess að nú losna þeir við að færa
til og burðast daginn langan með
filmur og kassettur með tilheyr-
andi álagi á líkamann.
Öryggi og persónuvernd
Persónuverndar sjúklinga er
stranglega gætt í gagnagrunni
Röntgen Domus. Þorkell Bjarna-
son, röntgenlæknir, bendir á að
hugbúnaður, sem er hluti mynda-
kerfisins frá Kodak, haldi utan um
alla verkþætti og öll gögn sem til-
heyra hverri rannsókn og hverjum
sjúklingi. Enginn kemst þar að
nema vera skráður notandi með
aðgangs- og lykilorð. Í reynd rek-
ur Röntgen Domus samhæfðan og
veftengdan gagnagrunn á tveimur
stöðum í höfuðborginni í öryggis-
skyni. Þannig er tryggt að alltaf sé
hægt að ganga að sömu upplýs-
ingum í gagnabönkum annars
vegar í höfuðstöðvum fyrirtækis-
ins við Egilsgötu og hins vegar í
Læknasetrinu við Þönglabakka.
Komi eitthvað fyrir sem skaðar
tæknibúnað á öðrum staðnum er
því alltaf tiltækt afrit af öllum
upplýsingum á hinum staðnum.
Tölvukerfin við Egilsgötu og
Þönglabakka „tala saman“ um
ljósleiðara og uppfæra gagna-
grunn hvort hjá öðru eftir því sem
í hann berast upplýsingar á hvor-
um stað. Samkvæmt reglugerð
þarf að geyma röntgenmyndir í 10
ár og Röntgen Domus markaði
strax í upphafi þá stefnu að
geyma allar stafrænar myndir og
upplýsingar í að minnsta kosti 10
ár. Ætla má að geymslutíminn
verði í raun mun lengri, enda þarf
ekki nema brotabrot af húsrými
undir gögn af því tagi miðað við
allt það rými sem röntgenfilmur
undanfarinna ára taka í kjallara
fyrirtækisins við Egilsgötu.
Röntgen Domus er langstærsta
fyrirtækið á sviði myndgreiningar
á Íslandi. Þar starfa nú yfir 40
manns, þar af 7 röntgenlæknar
(sem jafnframt eru eigendur fyrir-
tækisins) og 12 geislafræðingar.
UTBLAÐIÐ | 19
Stafræn röntgentækni jafngildir
byltingu í heilbrigðisþjónustu
„Stafræn myndgreining er risa-
stökk inn í framtíðina í heilbrigð-
isþjónustu og varðar bæði tækni
og ekki síður stjórnun og rekstur,“
segir Smári Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Rafarnarins ehf. í
Reykjavík. Fyrirtæki hans er eitt
hið stærst einkarekna á sínu sviði
í norðanverðri Evrópu og gefur
ráð varðandi skipulag og innleið-
ingu tæknibúnaðar myndgreining-
ardeilda auk þess að veita tækni-
þjónustu og hugbúnaðarlausnir
fyrir gæðastjórnun.
Raförninn hefur annast verk-
efnisstjórn við umfangsmiklar
tæknibreytingarnar hjá Röntgen
Domus en jafnframt verið ráðgjafi
varðandi stafræna myndgreiningu
hjá Hjartavernd, Röntgen Orku-
húsinu, Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri (FSA) og fleiri heilbrigð-
isstofnunum. Þar má nefna um-
fangsmiklar sérlausnir til vinnslu á
segluómheilamyndum fyrir Hjarta-
vernd og uppsetningu á búnaði til
fjargreininga röntgenmynda sem
sendar eru til Röntgen Domus frá
Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi
og til FSA frá Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað, Heilsugæslu-
stöðinni á Egilsstöðum og Heil-
brigðisstofnuninni Sauðárkróki.
Útrásarmöguleikar í
heilbrigðisþjónustu
Raförninn hefur lengi starfað í al-
þjóðlegu umhverfi og miðlað
þekkingu sinni og reynslu með
þjónustu við viðskiptavini erlend-
is. Í nóvember 2005 höfðu sér-
fræðingar fyrirtækisins til dæmis
yfirumsjón með uppsetningu staf-
ræns myndgreiningarkerfis hjá
Riverdale Radiology, einkarekinni
röntgendeild í jaðri Washington-
borgar í Bandaríkjunum. Hluti
verkefnisins var að fjartengja
deildina við fyrirtæki á Indlandi
sem sérhæfir sig í greiningu
röntgenmynda. Stjórnendur River-
dale stefna að því að kaupa grein-
ingarþjónustu röntgenmynda
sinna á Indlandi og Smári er
sannfærður um að íslensk fyrir-
tæki eigi líka að horfa til slíks al-
þjóðslegs samstarfs og viðskipta.
Stafræna tæknin opni beinlínis
nýjar og spennandi leiðir fyrir út-
rás á þessu sviði heilbrigðisþjón-
ustu. Þannig geti íslenskir
röntgenlæknar setið við tölvuskjái
sína og greint myndir sem berast
þeim hvaðaðæva að úr veröld-
inni. Á sama hátt séu að sjálf-
sögðu engin tæknileg vandkvæði
á því að kalla eftir greiningu eða
áliti erlendis á röntgenmyndum
sem teknar séu á Íslandi.
Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri Rafarnarins ehf.
Kristbjörg Heiður Olsen, aðstoðarlæknir, með stafrænar röntgenmyndir á tölvuskjánum.
Risastökk inn í framtíðina
Stafræn röntgenmynd af hjarta
57 ára karlmanns. Í ættarsögu
hans eru tilvik alvarlegra
kransæðasjúkdóma og hann gat
því búist við slæmum tíðindum.
Þessi skýra mynd úr nýjum tækjum
Röntgen Domus staðfesti hins vegar
að kransæðarnar eru hreinar og í
fínu lagi. Maðurinn hvarf á braut
glaður í bragði!
Þorkell Bjarnason, röntgenlæknir, við stafrænan lesara hliðstæðan þeim
sem notaður er til að senda myndir frá Blönduósi til greiningar hjá
Röntgen Domus.