UTBlaðið - 20.01.2006, Síða 20

UTBlaðið - 20.01.2006, Síða 20
20 | UTBLAÐIÐ Hátækniiðnaðar og íslenskt samfélag – eftir Guðmund Ásmundsson, Samtökum iðnaðarins Samtök iðnaðarins hafa að undan- förnu vakið athygli á mikilvægi hátækniiðnaðar fyrir íslenskt sam- félag. Nýlega var gerð úttekt á þróun og stöðu hátækniiðnaðar hér á landi og samanburður gerð- ur við Norðurlönd og Írland. Út- tektin staðfestir að þróun í upp- byggingu hátækniiðnaðar hefur ekki verið jafn hröð hér á landi og í þessum löndum. Bregðast þarf strax við þar sem hætta er á að alþjóðavæðingin togi í hæfustu fyrirtækin og starfsfólkið sem flyst þangað sem lífsgæði og tækifæri eru best eins og teikn eru á lofti um að sé nú að gerast. Hlúa þarf að fyrirtækjum í þessari grein og skapa hér starfs- skilyrði eins og þau gerast best í heiminum. Hátæknigreinar hér á landi lögðu um 9 milljarða króna til rannsókna- og þróunar árið 2003. Árið 2004 komu um 4% verð- mætasköpunar og yfir 7% gjald- eyristekna frá hátækniiðnaði. Inn- lend velta og útflutningur há- tæknigreina námu rúmlega 77 milljörðum árið 2004. Um 6.400 manns störfuðu í þessum atvinnu- greinum, þar af um 34% konur. Rúmlega 35% vinnuaflsins eru með háskólamenntun og þar af um 100 manns með doktors- gráðu. Setja þarf markið hátt Á ráðstefnu, sem Samtök upplýs- ingatæknifyrirtækja, héldu fyrir nokkru undir yfirskriftinni: „Verð- ur upplýsingatækni þriðja stoðin í verðmætasköpun og gjaldeyris- tekjum Íslands árið 2010?“ fjallaði aðalfyrirlesari ráðstefnunnar, Wilfried Grommen, framkvæmda- stjóri stefnumótunar hjá Microsoft í Evrópu, um tækifæri sem Íslend- ingum bjóðast á sviði upplýsinga- tækninnar. Grommen sagði að rannsóknir hafi leitt í ljós að á næstu fjórum árum megi ætla að vöxtur UT greinarinnar í Evrópu skapi tvær milljónir nýrra starfa og 50 millj- arða dollara í nýjum skatttekjum. Um helmingur vinnuaflsins vinni þá við að skapa, dreifa eða veita þjónustu sem tengist hugbúnaði og meira en helming skattekna megi þá rekja til hugbúnaðar- geirans. Íslenskt þjóðfélag sé eitt þeirra þjóðfélaga þar sem líkleg- ast sé að það geti gerst með djarfri framtíðarsýn og sameigin- legu átaki stjórnvalda, fyrirtækja og menntastofnana. Hann hvatti m.a til þess að • skapað verði UT umhverfi sem styrkir rannsóknir og þróun. • hugað verði að öryggisatriðum og verndun upplýsinga í tengsl- um við notkun Netsins í sam- vinnu stjórnvalda og fyrirtækja. • hægt verði að nota ólík vinnslu- kerfi á víxl, t.d. Windows - Lin- us eða Unix. • gert verði átak í staðla- og einkaleyfismálum. • skapað verði kerfi sem hvetur til rannsókna og verður kveikja að því að fyrirtæki og hæfileik- aríkt fólk og geti stuðlað að auknum hagvexti • nýsköpun verði verðlaunuð að verðleikum. • skapað verði íslenskt samfélag mannauðs sem þrífst í alþjóð- legri samkeppni með fjárfest- ingu í menntun til að örva unga námsmenn og vísindamenn til að snúa sér að rannsóknum og þróun á sviði upplýsingatækni. Tilboð til stjórnvalda um þriðju stoðina Samtök upplýsingatæknifyrirtækja lögðu á árinu 2005 fram tilboð til stjórnvalda um að upplýsinga- tækni verði meginstoð í verð- mætasköpun og gjaldeyristekjum Íslands árið 2010. Meginmarkmið tilboðsins eru að tífalda gjaldeyristekjur af upp- lýsingatækni á næstu sex árum, úr fjórum milljörðum í 40 milljarða króna. Fjölga þarf starfsfólki UT- fyrirtækja til muna eða um allt að 3.000 störf, þar af allt að 2.000 ný störf. Önnur störf færast frá hinu opinbera til UT-fyrirtækjanna. Markmiðið er að auka sölu staðlaðra hugbúnaðarlausna sem íslensk fyrirtæki hafa þróað og munu þróa í framtíðinni og að stórauka hýsingu hér á landi á upplýsingakerfum fyrir erlenda aðila. Forsenda þess að sett markmið náist er að íslensk stjórnvöld hrindi í framkvæmd skilgreindum verkefnum sem snúa að skatta- málum, útflutningi, stefnumörkun og samstarfi. Skapa verður fulla samstöðu greinarinnar og stjórnvalda um að leysa verkefnin sem snúa að starfsskilyrðum fyrirtækjanna. Markviss mælanlegur árangur gegnir þar lykilhlutverki. Helstu verkefni sem þarf að leysa Skattamál • Úrlausn þess vanda sem virðis- aukaskattur veldur í samkeppni UT-fyrirtækja við UT-deildir fyr- irtækja og stofnana. • Gjaldfærsla rannsókna- og þró- unarkostnaðar og skattaafsláttur vegna R&Þ- og markaðskostn- aðar erlendis. Aðgerðir í útflutningi • Forgangsröðun upplýsinga- tækni hjá stuðningsumhverfi. • Þróunarstyrkir nýttir fyrir upp- lýsingatækni. • Maður á móti manni við er- lenda markaðssetningu. • Lækkun fjarskiptakostnaðar til og frá Íslandi. Samstarf um þróun og fjárfestingu erlendra aðila • Þróunarsetur háskóla, stjórn- valda og UT fyrirtækja í upplýs- ingatækni. Stefnumörkun og uppbygging innan ríkisins • Allar opinberar tölvudeildir verði einkavæddar með því að starfsemin verði boðin út eða samið beint við einkafyrirtæki á markaðnum. • Notkun upplýsingatækni við lausn verkefna hjá opinberum aðilum verði sett í forgang. • Afnám ásælni ríkisins í höfund- arrétt og átak í einkaleyfamál- um upplýsingatækni. Helstu fjárhæðir tilboðsins • Áætlað er að velta upplýsinga- tæknigreinarinnar verði um 74 milljarðar króna árið 2010 og heildarhagnaður á líftíma verk- efnisins verði um 36 milljarðar króna. • Heildarfjárfesting upplýsinga- tæknigreinarinnar er áætluð um 16 milljarðar króna meðan verkefnið varir. • Skammtímaávinningur Þriðju stoðarinnar fyrir ríkið er áætlað- ur um þrír milljarðar króna. Langtímaávinningur er áætlaður mun meiri. • Nettóskatttekjur ríkisins eru áætlaðar um 5 milljarðar króna og fjárfesting vegna verkefna um tveir milljarðar króna. Skýrslur um hátækniiðnað og tilboðið um Þriðju stoðina má nálgast á vef SI - www.si.is Íslendingar gera vaxandi kröfur um aðgengi að Internetinu hvar og hvenær sem er. Fartölvueign er orðin nokkuð almenn og þráð- laus samskipti eru sívaxandi og hafa verið möguleg síðastliðin ár. Handskrifað á fartölvuna Helsta nýjungin á fartölvumark- aðinum er Tablet, meðfæri- leg tölva sem sameinar kosti og afl venjulegr- ar fartölvu ásamt möguleikum til að hand- skrifa beint á skjáinn með rafeind- apenna. Leikur einn er því að skrifa minnisatriði í tölvuna heima, í skóla, á fundum eða við skrifborðið. Tablet-fartölvan er til dæmis mjög hentug í vöruhúsum og á lagerum auk þess sem fólk í mennta- og heilbrigðikerfinu tekur henni fagnandi. Allar samskiptaleiðir í einu tæki Lófatölvan vin- sæla er fram- lenging á far- tölvu eða borð- tölvu. Lófatölv- an og farsím- inn hafa runnið saman í eitt tæki sem gerir not- andanum kleift að vera í stöðugu Internetsambandi. Meðal nýjunga eru GPS-staðsetningartæki, vafri fyrir Internetið og margar skila- boðaleiðir, svo sem tölvupóstur, SMS og MMS auk aðgangs að MSN. Fólk telur samskipti við um- heiminn afar mikilvægan þátt í nútímasamfélagi og tæki á borð við fartölvu eða lófatölvu létta því lítið. Það stundar bankaviðskipti á Internetinu, sækir upplýsingar með leitarvélum, fylgist með frétt- um, kaupir vörur eða þjónustu og notar margvíslegar samskiptaleið- ir: síma, tölvupóst, SMS, MSN og MMS. Auk þess er hægt að hafa aðgang að öllum gögnum - text- um, myndum og hljóð - sem eru vistuð á öruggum, miðlægum svæðum. Samhæfing og miðlun gagna HP iPAQ lófatölvan, sem hægt er að samstilla við borð- eða far- tölvu, gerir kleift að hafa öll per- sónuleg gögn og samskiptasögu hjá sér í einu litlu tæki, svo og tölvupóst, dagbók, auk inn- byggðrar myndavélar, GPS-tækis og innbyggðs Microsoft „media- spilara“. Tenging án dýrrar viðbótarþjónustu iPAQ lófatölvan tengist Internet- inu í gegnum gervihnött með GPRS eða EDGE tækni, auk þess að vera með 4-banda GSM teng- ingu og SD og SDIO rauf fyrir 802.11b WiFi þráðlaust netkort. Því er hægt að nota lófatölvuna hvar og hvenær sem er í heimin- um án dýrrar viðbótarþjónustu. Allt í einu tæki Svipuð þróun hefur átt sér stað með prentara. Mark- aður fyrir fjöl- notatæki fer ört vaxandi og HP framleiðir svokölluð „all-in-one“ eða „allt-í-einu“ tæki sem prenta, skanna, ljósrita og faxa. Auk þess eru á því raufar fyrir helstu gerðir minniskorta og því er hægt að prenta hágæða ljósmyndir beint af minniskortunum. Heildarlína í tölvubúnaði Hewlett-Packard er eini framleið- andinn í heiminum sem býður upp á heildarlínu í tölvubúnaði: fartölvur, borðtölvur, lófatölvur, netþjóna, prentara og stafrænar myndavélar. HP hafa verið mest seldu tölvur í heimi undanfarin ár og HP prentararnir eru einu prentararnir sem hafa fengið hæstu einkunn hjá PC magazine 14 ár í röð. Þar frekar vitnanna við? Aðgengi að Internetinu; alltaf, alls staðar – eftir Halldóru Matthíasdóttur, markaðsstjóra Opinna kerfa ehf.  Halldóra Matthíasdóttir.

x

UTBlaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.