UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 28

UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 28
Í árdaga Vefsins voru flokkuð vef- síðusöfn helsta leiðin til að finna upplýsingar á Vefnum. Risafyrir- tækið Yahoo! byrjaði feril sinn þegar stofnendurnir ákváðu að birta safn sitt af áhugaverðum veftenglum og leyfa öðrum að fletta í því. Í safninu voru örfáar þúsundir tengla, sem var á þeim tíma nokkuð tæmandi. Nú er öldin önnur. Á Vefnum eru milljarðar síðna (10 - 200 milljarðar eftir því hver er spurður og hvernig er talið). Það er því alllangt síðan Yahoo! hætti að hafa undan að flokka. Samhliða þessari fjölgun hafa flokkuð söfn vikið nær alveg fyrir flatri texta- leit. Reyndar er textaleit á Vefnum orðin svo góð, þökk sé Google frekar en nokkrum öðrum, að við búumst við því að geta hent inn í leitarglugga einu eða tveimur stikkorðum um það sem við erum að hugsa og fá til baka um hæl þær upplýsingar sem leitað er að. Það gengur í flestum tilfellum eft- ir! Meira að segja Yahoo! er hætt að tefla síðusafninu sínu fram og einbeitir sér nú aðallega að texta- leit líkt og keppinautarnir. Hjá Spurl ehf. höfum við unnið að þróun leitartækni, að hluta til með séríslenskar aðstæður í huga. Þessi leitartækni knýr meðal ann- ars leitarvélina Emblu á mbl.is (http://embla.mbl.is/). Íslenski vefurinn bliknar auðvitað í sam- anburði við heildina en er engu að síður orðinn álíka stór og Ver- aldarvefurinn allur var í byrjun árs 1997. Okkur telst til að heildar- fjöldi vefsíðna á íslensku sé 12-14 milljónir. Stærsti hluti þeirra er þegar skráður og efnisorðagreind- ur hjá okkur, auk þess sem nýjum síðum er bætt við eftir því sem þær koma á Vefinn og við upp- götvum þær. Íslensk leitartækni Leit á íslensku er að nokkru frá- brugðin leit á t.d. ensku. Flestar mest notuðu leitarvélarnar eru þróaðar í hinum enskumælandi heimi og taka mjög mið af ensk- um texta. Enska er ákaflega ein- föld að þessu leyti og ensk orð hafa örfáar orðmyndir, oft aðeins tvær. Það skiptir því tiltölulega litlu máli að gera ráð fyrir mis- munandi orðmyndum þegar leitað er á ensku. Í íslensku máli getur þetta hins vegar haft grundvallará- hrif á bæði umfang og gæði leit- arniðurstaðna. Leitartæknin okkar hefur inn- byggt orðasafn með orðmyndum íslenskra orða og þegar notandi slær inn leitarorð er leitað að öll- um orðmyndum þess. Þannig finnur leitarvélin Embla t.d. setn- ingar eins og „ódýrustu tölvunám- skeiðin“ og „tölvunámskeiðið verður haldið...“ þó notandi hafi bara slegið inn leitarorðið „tölvu- námskeið“. Aðrar leitarvélar missa af þessum síðum komi orðið ekki fyrir í nákvæmlega þeirri mynd sem slegin var inn. Orðasafnið sem Embla byggist á kemur frá Orðabók Háskólans og inniheldur um 2,3 milljónir einstakra orðmynda af tæplega 200.000 uppflettiorðum. Orða- safnið var unnið í verkefni sem nefnist beygingarlýsing íslensks nútímamáls og sem kostað var af tungutæknisjóði menntamálaráðu- neytisins. Til að gera leitina mögulega má segja að Spurl geymi á vélum sínum afrit af öllum íslenska Vefnum. Þegar notandi slær inn leitarfyrirspurn er rennt í gegnum texta allra þessarra síðna í leit að orðunum sem slegin voru inn og þeim síðum raðað eftir vægi orð- anna fyrir hverja síðu. Þetta vægi ræðst af tíðni orðanna, titli síð- unnar, tenglum á hana, vefslóð- inni og allmörgum fleiri þáttum. Þjónusta Spurl.is Það er trú okkar að flöt textaleit muni í auknum mæli koma í stað veftrjáa og efnisflokka á einstök- um vefsvæðum, rétt eins og hún hefur gert í upplýsingaleit á Vefn- um í heild. Í stað þess að notandi þurfi að setja sig inn í uppbygg- ingu og þankagang á bak við hvert vefsvæði, blasi við honum áberandi leitarbox með öflugum leitarmöguleikum. Nær allir vefnotendur nota vefleitarvélar og viðmótið er því orðið þeim tamt. Allir skilja hvernig á að nota leit- arbox, meðan hönnun og fram- setning vefsvæða er því sem næst jafn ólík og vefsvæðin eru mörg. Bæði er einfaldara og fljótlegra fyrir notandann að slá inn það sem hann er að hugsa, t.d. „upp- greiðsla lána“ en að átta sig á hvar í veftrénu höfundi Vefsins þóknaðist að setja viðkomandi upplýsingar, t.d. undir: Einstak- lingar > Lán > Fasteignalán > Spurt og svarað > Spurning 25 (sem er raunverulegt dæmi af vef eins bankanna). Leitarniðurstöðurnar þurfa vit- anlega að vera traustar og góðar og þar skortir verulega á hjá mörgum fyrirtækjum og vefsvæð- um. Í ofanálag má svo gera ýmis- legt til að hjálpa notendunum enn frekar í leitinni, svo sem að tengja fyrirfram ákveðin leitarorð við svör úr „spurt og svarað“-grunni eða við aðra gagnabanka sem vefsvæðið hefur að geyma. Spurl ehf. er nýlega byrjað að bjóða íslenskum fyrirtækjum og vefrekstraraðilum slíka þjónustu. Við eigum nú þegar vefsíðuafritin til að byggja leitina á og í flestum tilfellum þarf aðeins að tengja leit- arniðurstöðurnar inn á vefsvæðið; einfalt mál sem við aðstoðum með ef á þarf að halda. Nánari upplýsingar um Spurl ehf. og þjónustu okkar má finna á http://corp.spurl.net/is/ 28 | UTBLAÐIÐ Frá árinu 1997 hefur átt sér stað mikil fjölgun nemenda í fjarnám. Fjarnemum hefur fjölgað mun meira en öðrum nemendum á framhalds- og háskólastigi. Meðfylgjandi mynd sýnir fjölg- un nemenda í fjarnámi á árunum 1997 til 2004 eftir skólastigum. Fjarnemum fjölgar mun hraðar en öðrum nemendum og eru þeir nú 9% nemenda á framhalds- skólastigi en 17% háskólanema. Upplýsinga- og samskiptatækni er nýtt með ýmsum hætti í fjar- kennslu. FS-netið, sem er há- hraðanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar, gerir kleift að miðla fjarkennslu með myndfundum. Það tengist fjar- skiptaneti háskóla (RH-neti) og í símenntunarmiðstöðvum víða um land er kennslustundum í ólíkum námsgreinum varpað með mynd- fundabúnaði til fjarnema á lands- byggðinni. Í öðrum tilvikum er netið nýtt til að setja inn myndir frá fyrirlestrum, ýmis gögn og til að koma á samskiptum milli nem- enda innbyrðis og milli þeirra og kennara. Á grunnskólastigi hafa verið gerðar tilraunir með til dæmis fjar- nám fyrir grunnskólanemendur sem dveljast tímabundið á sjúkra- húsum. Undanfarin þrjú ár hafa grunnskólar á sunnanverðum Vestfjörðum nýtt upplýsingatækni til þess að miðla kennslu sín á milli. Í verkefninu taka þátt grunnskóli Tálknafjarðar og grunnskóli Vesturbyggðar sem hefur kennsludeildir á Patreks- firði, Bíldudal og Birkimel. Kennt er samtímis í öllum skólum með því að nota myndfundabúnað og upplýsingakerfi á netinu (sjá dreifmenntun.is). Fjarkennsla skapar nýja mögu- leika fyrir ólíka hópa að stunda nám. Jafnframt hafa þar kennslu- aðferðir sem þar hafa þróast með nýtingu upplýsingatækni nýst öðr- um nemendum og aukið sveigjan- leika í námi. Leitin breytir heiminum – eftir Hjálmar Gíslason, embla.mbl.is Virk upplýsingatækni fjölgar fjarnemum – eftir Arnór Guðmundsson, þróunarstjóra í menntamálaráðuneyti Þægileg, örugg og hagkvæm leið í bankaviðskiptum – allan sólarhringinn. – fyrir allt sem þú ert Nýr og betri heimabanki Upplýsingar í síma 550 1400 eða á www.spron.is

x

UTBlaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.