UTBlaðið - 20.01.2006, Page 38
38 | UTBLAÐIÐ
Menningarstofnanir víða á landinu
stuðla að því að nýta upplýsinga-
tækni og Netið við að miðla
menningararfinum á nýjan hátt.
Eins og kunnugt er hefur Þjóð-
minjasafn Íslands sett upp upplýs-
ingaskjái til að gefa sýningargest-
um tækifæri til að afla sér upplýs-
inga og setja munina í samhengi
við söguna. En margar smærri
stofnanir hafa einnig verið að
finna eigin leiðir við að miðla
upplýsingum og auka aðgengi al-
mennings að menningararfinum.
Á undanförnum þremur árum
hafa þrjátíu og fimm menningar-
stofnanir og aðilar víðsvegar á
landinu fengið styrki til að vinna
að verkefnum sem lúta að því að
nota upplýsingatækni og Netið til
að auka aðgengi að þeim verð-
mætum sem þau hafa að geyma.
Í nóvember á síðasta ári opn-
aði sögusetur Vestmannaeyja vef-
inn Heimaslóð þar sem er að
finna fróðleik um sögu, menningu
og náttúru Eyja. Vefinn er að
finna á slóðinni,
www.heimaslod.is, en markmiðið
með honum er að safna saman á
einum stað öllum fróðleik sem til
er um Vestmannaeyjar bæði á ís-
lensku og erlendum tungumálum.
Það sem er sérstaklega athyglis-
vert við þetta verkefni er að öll-
um sem búa yfir fróðleik og
þekkingu á Vestmannaeyjum er
boðið að taka þátt í að bæta við
efni á vefinn og munu nemendur
í Fjölbrautarskóla Vestmannaeyja
leggja sitt lóð á vogarskálarnar.
Margir kannast við Galdrasýn-
ingu á Ströndum, sem er stór-
skemmtilegt safn á Hólmavík við
Steingrímsfjörð. En aðstandendur
Strandagaldurs hafa líka byggt
upp viðamikinn og fróðlegan vef,
Viskubrunnur, sem er einstakur
upplýsingabrunnur um galdra og
galdraofsóknir á Íslandi. Vefinn er
að finna á slóðinni www.galdra-
syning.is, og er gott dæmi um
hvernig Netið hefur verið notað til
að víkka út starf safna og gera
þekkingu sérfræðinga aðgengi-
lega almenningi.
Í Héraðsskjalasafni Skagafirð-
inga er að finna ógrynni af lausa-
vísum sem framtaksamir safnarar
hafa varðveitt í gegnum árin. Hér-
aðsskjalavörðurinn, Unnar Ingv-
arsson, að hér var fróðlegt efni
sem hefði erindi til áhugamanna.
Hann leitaði eftir samstarfi við ís-
lenskufræðinga og tölvufræðinga
og þeir hafa byggt upp vef um
lausavísur, Vísnavefinn, sem nýtir
upplýsingatækni á hugmyndarík-
an hátt til að gera efnið aðgengi-
legt almenningi. Nú þegar hafa
verið skráðar þúsundir lausavísna
eftir á annað þúsund höfunda,
ásamt fróðleik um höfunda og
baksvið vísnanna. Vísnavefurinn
er aðgengilegur á slóðinni
http://skjalasafn.skagafjord-
ur.is/lausavisur/visur.php.
Verðmæti í fórum
Ríkisútvarpsins
Þegar talað er um menningararf
sjá margir fyrir sér feyskna muni
og gulnuð skjöl. En áhrif nútíma-
tækni á samfélagið hafa opnað
augu manna fyrir því að verðmæti
leynast víðar. Gott dæmi um þetta
er allt það mikla efni sem er að
finna hjá Ríkisútvarpinu, á segul-
böndum, hljómplötum, mynd-
böndum og filmum. Þótt saga
Ríkisútvarpsins sé ekki gömul er
elsti hluti hljóðrita- og mynd-
bandasafns þess í bráðri hættu og
framundan er krefjandi verkefni
við að koma efninu yfir á varan-
legra form. Þá opnast ýmsir
möguleikar við nýtingu og miðlun
á efni sem hefur legið í dróma og
utan seilingar.
Meðal þess sem er verið að
vinna að er samstarfsverkefni
menningarstofnana og skóla um
að gera stafræn afrit af menning-
arefni hjá ýmsum menningarstofn-
unum til notkunar í skólastarfi fyr-
ir kennara og nemendur. Eftir því
sem tölvur hafa orðið veigameiri
þáttur í skólastarfi hefur þörfin
aukist fyrir efni sem kennarar geta
notað til að styðja við námsefni
og sem nemendur geta nýtt í
verkefnavinnu. Nú hillir undir að
það verði auðveldara því seinna á
árinu verður opnaður vefur þar
sem kennarar og nemendur fá að-
gang að nokkurs konar stafrænu
hráefni sem þeir geta unnið með,
frá mörgum helstu menningar-
stofnunum landsins, þar með talið
Ríkisútvarpinu.
Ný sýn á menningararfinn?
– eftir Gunnar Árnason, menntamálaráðuneyti
Kosninganótt á Ríkisútvarpinu þegar tölvur komu til sögu við að spá fyrir um úrslit. Það voru sannnarlega tímamót í upplýsingatækni! Margt spaklegt er
til í segulbandasafni RÚV frá árum áður, meðal annars ummæli þeirra sem sigruðu og töpuðu í kosningum.
Ráðgjafarstofa um fjármál heimil-
anna opnaði í október 2005 fyrir
svonefnt netspjall, tilraunaverk-
efni sem miðar að því að auka
aðgengi og þjónustu við almenn-
ing um land allt.
Ráðgjafarstofan sinnir einkum
ráðgjöf til einstaklinga og fjöl-
skyldna sem eiga í greiðsluerfið-
leikum. Oft eru erfið fyrstu skrefin
að leita sér aðstoðar. Því er net-
spjallið frábær lausn til að brjóta
ísinn og leita sér upplýsinga um
þjónustu Ráðgjafarstofu og annað
er varðar greiðsluerfiðleika. Þeir
sem leita sér aðstoðar ná beinu
sambandi við ráðgjafa í gegnum
heimasíðu Ráðgjafarstofu.
Netspjallið er góð viðbót við
þjónustu Ráðgjafarstofunnar og
hentar starfseminni vel. Með net-
spjalli er unnt að komast í beint
netsamband við starfsmenn Ráð-
gjafarstofu á afgreiðslutíma stof-
unnar, kl. 9.00-12.00 og 13.00-
15:00, alla virka daga. Auk net-
spjallsins er símaráðgjöf á sama
tíma og unnt er að senda fyrir-
spurnir í tölvupósti á netfangið
rad@rad.is. Þjónusta Ráðgjafar-
stofu er óháð búsetu og er endur-
gjaldslaus.
Miklar vonir eru bundnar við
þessa auknu þjónustu Ráðgjafar-
stofunnar við einstaklinga og fjöl-
skyldur á landsbyggðinni. Þjón-
ustan er með þeim hætti að not-
endur fara inn á heimasíðu Ráð-
gjafarstofunnar, www.rad.is, eða
inn á www.fjolskylda.is og fá
beint samband við starfsmann
stofunnar. Þetta eykur verulega
möguleika þeirra sem eiga erfitt
með að tala í síma, til dæmis
heyrnalausra, til beinna samskipta
við starfsmenn Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna.
Elska, reiði, yndi, hryggð,
eldinn, vatnið, daginn, nótt,
byggðir, heiði, blíðu, styggð,
bólið, kæti, heilsu, sótt.
Höfundur: Árni Böðvarsson,
Ökrum á Mýrum, fæddur að
Staðarbakka í Helgafellssveit
1713, dáinn 1776. Nam í
Hólaskóla og gerðist síðan
bóndi að Ökrum. Árni hefur
löngum verið talinn mesta
rímnaskáld 18. aldar.
Birt á vísnavef
Héraðsskjalasafns
Skagfirðingina:
http://skjalasafn.skagafjord-
ur.is/lausavisur/visur.php.
Netspjall um fjármál heimilanna
– eftir Ástu S. Helgadóttur, forstöðumann
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
Fundur á fréttastofu Útvarps þegar Ríkisútvarpið var til húsa að Skúlagötu 4 í Reykjavík.