UTBlaðið - 20.01.2006, Síða 40

UTBlaðið - 20.01.2006, Síða 40
40 | UTBLAÐIÐ Póst- og fjarskiptastofnun hefur opnað nýjan vef um öryggi í tölvu- og netmálum á slóðinni www.netoryggi.is. Þar er að finna aðgengilegar upplýsingar fyrir al- menning og lengra komna um ör- ugga notkun tölva, sérstaklega þeirra sem eru nettengdar. Einnig er þar að finna margs konar ann- an fróðleik um net- og upplýs- ingaöryggi, svo sem góð ráð um val á lykilorði, um eldvarnarveggi og þráðlaus net. Samfara síaukinni netumferð hefur margskonar ónæði og mis- notkun gagna aukist, svo sem tölvuveirur, ruslpóstur, hnýsibún- aður (Spyware) og fleira. Nauð- synlegt er að stemma stigu við þessu með samstilltu átaki stjórn- valda, fyrirtækja og almennings. Mikilvægt er að almenningur og fyrirtæki geti treyst því að við- skipti á fjarskiptakerfum, t.d. á Internetinu, séu trygg og örugg. Alþingi hefur nú þegar samþykkt fjarskiptaáætlun 2005-2010. Þar kemur fram að öryggi Internetsins verði aukið þannig að almenning- ur geti á það treyst í viðskiptum og daglegu lífi. Þar er nánar tekið fram að leiðbeiningum verði miðlað til neytenda, svo og fræðsluefni um öryggismál, neyt- endavernd, persónuvernd og sið- ferðileg álitaefni sem tengjast sí- vaxandi notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni. Ennfremur verður stofnaður CERT-hópur (Computer Emergency Response Team) til að herða viðbrögð vegna óværu á Internetinu. Þátttaka Íslendinga verði aukin í erlendu samráði um öryggismál og varnir efldar til að net- og upplýsingakerfi virki óhindrað. Sett verður fram að- gerðaáætlun hvernig megi verjast ruslpósti og henni framfylgt. Samgönguráðherra hefur falið Póst- og fjarskiptastofnun að ann- ast framkvæmd þeirra verkefna sem fram koma í fjarskiptaáætlun. Stofnuninni er jafnframt gert að gæta þess að fjarskiptafyrirtæki, sem veita almenna fjarskiptaþjón- ustu, geri viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja öryggi þjónust- unnar. Stofnuninni er heimilt með hliðsjón af hagsmunum neytenda að setja skilyrði um rekstraröryggi neta, samhæfni mismunandi þjón- ustu og viðmið um gæði og rekstraröryggi þjónustuaðila. Nýi vefurinn er skref til þess að upplýsa almenning um þau mál sem snúa að netnotkun og veita góð ráð en afar mismunandi er hversu vel netþjónustufyrir- tækjum hefur tekist til í þessum efnum. Þráðlaus netkerfi verða til dæmis sífellt algengari en nokkuð hefur borið á heimildarlausri notkun þeirra af þriðja aðila. Á www.netoryggi.is eru upplýsingar og fyrirbyggjandi ráð, hvernig tryggja megi betur öryggi á slík- um netum, hvað æskilegt er að gera þegar tölva er tengd við net- ið í fyrsta sinn o.fl. Öryggismál þurfa að vera í stöðugri mótun og endurskoðun. Vefurinn mun taka breytingum í samræmi, auk þess sem bætt verður við efni eftir þörfum. Stofnunin vonar að hann verði gott innlegg í þessi mál. Nýr öryggisvefur Póst- og fjarskiptastofnunar – eftir Stefán Snorra Stefánsson á Póst- og fjarskiptastofnun  Stefán Snorri Stefánsson. Dagur rafrænna reikninga Icepro efnir til málfundar með yfirskriftinni „XML-dagur raf- rænna reikninga“í Húsi versl- unarinnar, Kringlunni 7, 7. hæð, á mánudaginn kemur, 23. janúar, kl. 13:00-17:00. Fundur- inn er í tilefni Upplýsinga- tæknidagsins 24. janúar. Vænt- anlegir gestir eru skráðir í síma 510 7100 eða hjá fundir@cham- ber.is. Þátttökugjald er 5.500 krónur. XML (eXtended Markup Language) er skylt HTML (HyperText Markup Language) sem algengt að nota á Vefnum. XML gerir tölvunotendum kleift að skiptast á upplýsingum með einföldum hætti. Fundarboðendur segja í til- kynningu að menn hafi tileink- að sér XML-tæknina en lítið hafi verið hugað að samskipta- stöðlum. Nú séu frændur vorir á Norðurlöndum hins vegar að ná saman um sameiginlega gerð rafrænna reikninga, sem sparað geti fúlgur fjár. Rafrænir reikningar verða kynntir á málfundinum: Evr- óputilskipun þar að lútandi, staða mála annars staðar á Norðurlöndum, stefna íslenskra stjórnvalda varðandi rafræn innkaup og tæknileg útfærsla slíkra reikninga. Bjarne Emig, verkefnisstjóri DS (dönsku staðlasamtak- anna), formaður Danpro og prófessor í viðskiptaháskólan- um í Kaupmannahöfn, verður gestur fundarins. Hann á sæti í UN/CEFACT og er þar formað- ur sendinefndar Dana. IceproRafræn stjórnsýsla hefur á örfáum árum stuðlað að byltingu í skattframkvæmd á Íslandi. Flest- um framtölum er skilað rafrænt, framtalsgerðin er auðveld og raf- ræn þjónusta skattyfirvalda eykst stöðugt. Upplýsingatækni hefur verið hagnýtt á mörgum sviðum og í flestum verkefnum skattyfir- valda. Skattyfirvöld ætla að beita henni enn frekar til að bæta þjón- ustu, auðvelda samskipti við skattkerfið og auka skilvirkni í allri starfsemi. Þau setja sér að ná þeim markmiðunum sem tilgreind eru hér á eftir á næstu 3-5 árum. Létt að gera rétt - forskráning Upplýsingum, sem áður var ætlast til að framteljendur skráðu á fram- tölin, er nú safnað rafrænt frá við- komandi upplýsingagjöfum og þær forskráðar á framtölin. Þetta er gert í góðri samvinnu við upp- lýsingagjafana, fyrirtæki og stofn- anir, sem sjá sér og viðskiptavin- um sínum hag í að koma lög- bundnum upplýsingum með ein- földum og öruggum hætti inn á skattframtöl. Um 70% allra fjár- hagsupplýsinga eru nú forskráðar. Upplýsingar vantar fyrst og fremst frá bönkum sem hafa enn ekki viljað veita þessa þjónustu. Fáist þeir til þess verða yfir 90% fjár- hæða forskráð á framtöl og raun- hæft að hátt hlutfall framteljenda þurfi ekki að gera annað en að staðfesta framtöl sín. Svo dæmi sé tekið þurfa 60% framteljenda í Danmörku ekkert að eiga við framtöl sín þar sem upplýsingar berast frá bönkum jafnt sem öðr- um. Til þess að draga nokkuð úr skorti á bankaupplýsingum hefur ríkisskattstjóri þróað lausn sem gerir þeim, sem þess óska, mögu- legt að senda skattayfirlit með at- beina viðkomandi banka úr vef- banka sínum til skattyfirvalda. Markmið: Meirihluti framteljenda þurfi aðeins að staðfesta framtal sitt. Betri þjónusta, minni pappír - rafræn skattskil Yfir 90% framteljenda, fólks og lögaðila, skila rafrænu framtali. Stór hluti annarra skattskila, svo sem virðisaukaskatts og stað- greiðslu, er einnig rafrænn. Þessi mikla þátttaka er vitnisburður um hagkvæmni þessara kerfa fyrir viðskiptavini skattsins. Góðan ár- angur er að einhverju leyti unnt að rekja til þess að áherslur í skattkerfinu hafa breyst. Stóraukin áhersla er lögð á að leiðbeina og aðstoða við að telja rétt fram og m.a. að tryggja að nýttur sé réttur til frádráttar þar sem það á við. Ásýnd skattyfirvalda gagnvart al- menningi og fyrirtækjum hefur batnað með aukinni þjónustu og stuðlar það að bættum skattskil- um. Rafræn skattskil hafa einnig haft í för með sér umtalsverðan sparnað, svo sem við dreifingu framtalsgagna. Prentun og dreif- ing framtala í pósti hefur dregist saman um meira en helming á fáum árum. Markmið: Minna en 20% framteljenda fái pappírs- gögn. Aukin sjálfvirkni - rafræn úrvinnsla Stór þáttur í rafvæðingu skattskila hefur verið að beita upplýsinga- tækni við alla bakvinnslu. Hönn- uð voru ný vinnslukerfi fyrir álagningarvinnu, gervigreindarfor- rit sjá um að villuprófa framtöl og afgreiða þau til álagningar ef þau standast skoðun. Meira en helm- ingur allra framtala einstaklinga er afgreiddur vélrænt en hinn helm- ingurinn fer í meðferð starfs- manna með ábendingum um hvað athuga þurfi. Að öllu jöfnu verður enginn pappír til í vinnslu- ferlinu fyrr en skrifaður er út álagningarseðill og jafnvel hann er rafrænn líka í um 20% tilvika. Markmið: 2/3 hlutar einstaklingsframtala fái sjálf- virka afgreiðslu. Gott aðgengi að upplýsingum og þjónustu - þjónustusíður Undanfarin ár hefur verið byggð upp ýmis rafræn þjónusta sem framteljendur geta notað sér. Er aðgangi að henni komið fyrir á sérstakri þjónustusíðu fyrir hvern og einn skattborgara. Þar getur hann fundið framtöl sín frá liðn- um árum og álagningarseðla. Hann getur endurgjaldslaust sent staðfest rafræn afrit af þessum gögnum til banka, stofnana, sveit- arfélaga og annarra aðila sem þar sem þeim þarf að framvísa. Hann getur einnig komið kærum og öðrum erindum á framfæri við skattyfirvöld. Þá geta framteljend- ur óskað eftir að þeim verði send framtöl eða álagningarseðlar á pappír. Á komandi árum verður stefnt að því að laga þjónustusíðu hvers og eins framteljanda að þörfum hans. Markmið: Sérhver skattborgari hafi aðgang að öll- um skattagögnum sínum og geti átt öll samskipti við skattyfirvöld á þjónustusíðu sinni. Að minnsta kosti 50% framteljenda noti þjónustusíður sínar til allra samskipta við skattyfirvöld. Samstarf um rafræna stjórnsýslu - aðgangsmiðlun Ríkisskattstjóri á gott samstarf við fjölda stofnana vegna framtals- gerðar. Í gagnabönkum þessara stofnana eru margvíslegar upplýs- ingar sem varða almenning og fyrirtæki og þessir aðilar vilja gjarnan hafa aðgang að. Iðulega er ekki hlaupið að því að veita fólki aðgang að þessum upplýs- ingum, þar sem tryggja þarf að óviðkomandi komist ekki í þær. Ríkisskattstjóri er í þeirri einstöku stöðu að vera í rafrænu sambandi við þorra landsmanna. Nú er því unnið að því að nýta aðgangskerfi ríkisskattstjóra og gagnabanka nokkurra stofnana til aukinnar þjónustu við almenning. Fyrsti af- rakstur þessarar samvinnu hefur þegar litið dagsins ljós á vegum Umferðarstofu og ríkisskattstjóra. Í gegnum þjónustusíðu sína hjá RSK geta einstaklingar nú sótt ná- kvæmar upplýsingar um ökutæki sín, svokallaða ferilskrá, en áður var aðeins hægt að fá slík yfirlit hjá Umferðastofu gegn greiðslu. Samstarfið byggist á því grund- vallarsjónarmiði að fólk eigi rétt á að fá að vita hvað er til um það og hagsmuni þess í opinberum skrám, án óþarfa hindrana og kostnaðar. Með því að nýta að- gangskerfi ríkisskattstjóra, sem þegar er til staðar, geta samstarfs- stofnanirnar veitt fjölþætta raf- ræna þjónustu til handa þeim sem fengið hafa auðkenningu ríkis- skattstjóra. Þessi auðkenning, sem og aðgengi upplýsinga annarra stofnana, verður ísbrjótur fyrir raf- ræna þjónustuveitu ríkisins. Markmið: Framteljendur geti á þjónustusíðu sinni fengið þær upplýsingar sem vistaðar eru um við- komandi hjá að minnsta kosti 5 stofnunum sem eru í samvinnu við ríkisskattstjóra. Rafmagnað samband við skattkerfið – eftir Braga Hauksson, deildarstjóra upplýsingatæknideildar Ríkisskattstjóra

x

UTBlaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.