UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 46

UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 46
Viðskiptavinir Og Vodafone geta notfært símtæki sín til fleiri hluta en áður svo sem til þess að sækja myndskeið, tölvuleiki, hringitóna, fréttir, upplýsingar og ýmiss kon- ar afþreyingu. Þá eru ýmsar útgáf- ur farsíma sem gera notendum mögulegt að fá tölvupóstinn beint í símtækið. Meðal spennandi nýjunga sem eru nú þegar í boði má þar nefna efnisveituna Vodafone live! Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Voda- fone, segir að hún tryggi við- skiptavinum fyrirtækisins nýjan af- þreyingarheim í GSM símann óháð stað og stund: „Vodafone live! er aðgengilegt með sérstökum Vodafone live! símtækjum og því virkar þjónust- an ekki í hvaða GSM síma sem er. Þjónustan er hins vegar uppsett í öllum Vodafone live! símtækjum. Þess vegna þurfa notendur ein- ungis að smella á einn hnapp á símtækinu til þess að komast inn í síbreytilegan efnisheim.“ Vodafone live! er afurð Voda- fone Group Plc sem er stærsta farsímafyrirtæki heims og leiðandi í framsetningu aðgengilegrar og spennandi afþreyingu og upplýs- inga fyrir farsíma. Og Vodafone hefur aðlagað Vodafone live! að íslenskum aðstæðum sem gerir viðskiptavinum mögulegt að upp- lifa spennandi og áður óþekkta afþreyingarmöguleika í farsíma. Samningur við leiðandi íslenska efnisveitu „Einn meginkostur Vodafone live! er ríkulegt efni sem þar er að finna, svo sem frá fjölmiðlafyrir- tækinu 365, sem rekur meðal annars visir.is, Fréttablaðið, NFS- fréttastöðina og Sýn. Ennfremur má nefna efni frá D3, sem er leið- andi efnisveita hér á landi fyrir stafræna miðla. D3 dreifir og selur tónlist, myndefni, tölvuleiki og hringitóna í gegnum Netið, ljós- leiðara, farsíma og gagnvirkt sjón- varp,“ segir Árni Pétur. Samningur Og Vodafone við D3 er einstakur að því leyti að efnisveitan ýr yfir miklum fjölda íslenskra hringtóna fyrir farsíma og er í raun með yfir- burðastöðu á markaði hér á landi. Þá hefur Og Vodafone gert samn- ing við arvato mobile, sem er al- þjóðlegt fyrirtæki á sviði afþrey- ingar, um dreifingu á afþreyingar- efni í Vodafone live! fyrir notend- ur hér á landi. Arvato mobile er afþreyingarfyrirtæki fyrir farsíma og fleiri miðla. Það er dótturfyrir- tæki arvato Bertelsmann AG og þróar lausnir fyrir fjarskiptafyrir- tæki, fjölmiðla og netgáttir. „Það má því segja að fjar- skipta- og fjölmiðlamarkaður sé að færast inn á ný svið en við hjá Og Vodafone spáum frekari sam- runa miðla þar sem hver og einn getur valið það efni sem hann kýs, hvort sem það er í gegnum farsíma, tölvu eða sjónvarp,“ segir Árni Pétur. Tölvupóstur óháð stað og stund Farsíminn varð sú bylting að fólk þurfti ekki lengur að sitja við sím- tækið til að geta notað það og nú er komið að tölvupóstinum. Fólk þarf ekki lengur að sitja við tölvu til að taka á móti og senda gögn, þess í stað er nú hægt að fá upp- lýsingarnar í GSM síma. „Þessi nýja og þægilega lausn gefur fólki, sem notar tölvupóst í mikl- um mæli, aukið frelsi og hagræði til að nýta tímann betur og verja deginum eftir því sem því hentar.“ Árni Pétur segir að Vodafone BlackBerry sé meðal þeirra nýju lausna sem gera fólki kleift að sækja tölvupóstinn óháð stað og stund. Vodafone BlackBerry er án vafa fremsta þráðlausa samskipta- tækið í dag en það gerir notend- um mögulegt að vera í stöðugum tengslum við viðskiptavini og samstarfsmenn. „BlackBerry er GSM sími sem veitir notendum einnig aðgang að dagbók, tengiliðalista og Vefnum, án þess að þeir þurfi að bíða eftir póstin- um. BlackBerry hefur vakið mikla athygli hjá notendum Og Vodafo- ne enda býr tækið yfir áður óþekktum möguleikum. Það eyk- ur skilvirkni og sparar tíma eins rannsóknir hafa sýnt.“ BlackBerry tækni í Nokia farsíma Kanadíska fyrirtækið RIM Rese- arch in Motion, framleiðandi BlackBerry tækjanna og -tækninn- ar, hefur unnið ötullega að því að fjölga notendum, meðal annars með BlackBerry Connect, sem gefur öðrum farsímanotendum möguleika á því að notfæra sér kosti BlackBerry. „Með Black- Berry Connect, sem verður tekið í notkun hjá Og Vodafone á næst- unni, verður hægt að nota þá möguleika sem eru til staðar í BlackBerry í fjölda annarra tækja, svo sem í Nokia símtækjum. Nú þegar eru um fjórar milljónir sem nota BlackBerry en gera má ráð fyrir að þeim fjölgi ört til viðbótar þegar BlackBerry Connect nær flugi.“Árni Pétur segir að Vodafo- ne leggi mesta áherslu á að gera nýja tækni ætíð þannig úr garði að hún sé aðgengileg og einföld í notkun. „Það þarf enga sérhæfða tækniþekkingu til að nýta sér þær lausnir sem Vodafone býður. Hvort sem um er að ræða Voda- fone live!, BlackBerry eða aðrar nýjungar er starfsfólk Og Vodafo- ne þjálfað til að veita ráðgjöf og aðstoða viðskiptavini svo að þeir geti valið það sem þeim hentar. 46 | UTBLAÐIÐ Fjölmiðlar og fjarskipti renna saman  Árni Pétur Jónsson. Nordica hótel hefur frá opnun, í apríl 2003, verið leiðandi í ráð- stefnulausnum á Íslandi. Það er hannað með þarfir ráðstefnugesta í huga og allur aðbúnaður er fyrsta flokks. Búið er að endur- nýja öll herbergi og ekkert í hús- inu minnir forverann á sama stað, Hótel Esju. Stærsti fundarsalur Nordica tekur 650 manns í sæti og þar eru meðal annars fjórir stórir skjávarpar. „Við erum með einn öflugasta skjávarpa landsins hjá okkur, sér- smíðaðan breiðtjaldsvarpa af SANYO gerð“ segir Stefán V. Stef- ánsson, tæknimaður á Nordica. Hann er einn 15 starfsmanna ráð- stefnudeildar hótelsins. Að sögn Brynhildar Guðmundsdóttur ráð- stefnustjóra er deildin skipuð starfsfólki sem fer reglulega á námskeið og fylgist vel með því hvað er að gerast í ráðstefnumál- um erlendis enda keppi hótelið fyrst og fremst við erlend ráð- stefnuhótel. Á Nordica Hotel er þráðlaust net í öllum ráðstefnusölum, gesta- móttöku og á bar hótelsins. „Hér notum við Netið mjög mikið til að ná okkur í upplýsing- ar af öllu tagi,“ segir Stefán V. Stefánsson. Fullkomnasta ráðstefnuhótel landsins

x

UTBlaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.