Morgunblaðið - 23.03.2015, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2015
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Gríski heimspekingurinn og stærð-
fræðingurinn Plató, sem var uppi
um 400 árum fyrir Krist, lýsti tón-
listinni sem siðferðislegu lögmáli.
Lögmáli sem gæfi alheiminum sál,
huganum vængi og lyfti ímyndunar-
aflinu til flugs með sjarma og gleði
til alls. Laufey Sigurðardóttir fiðlu-
leikari er fyrir löngu orðin samofin
tónlistinni og hefur verið virkur
þátttakandi í að færa töfra hennar
til almennings á Íslandi í meira en
40 ár. „Tónlistin hefur alltaf fylgt
mér en ég get ekki sagt að það hafi
nokkurn tímann verið ákvörðun hjá
mér að leggja hana fyrir mig, það
bara gerðist.“ Laufey segist ekki
leyfa sér að meta áhrif tónlistar á
annað fólk. „Hún er dýrmæt fyrir
mig, án hennar væri líf mitt tómlegt
og ég vildi að hún væri aðgengileg
fyrir alla.“
Músík í Mývatnssveit
Hverjum þykir sinn fugl fagur en
fáir geta neitað því að Mývatns-
sveitin er einstök en þar hefur Lauf-
ey haft annan fótinn frá barnæsku
og þykir sveitin sín ein sú fegursta á
landinu. „Mér líður vel fyrir norðan
og hef gaman af því að skipta um
umhverfi og komast úr borginni. Ég
hef gaman af að umgangast sveita-
fólk og þekki til á flestum bæjum í
sveitinni en læt bústörf alveg eiga
sig. Það er náttúran og fólkið sem
kallar mig heim í sveitina.“
Árlega heldur Laufey tónleika
fyrir norðan, Músík í Mývatnssveit,
og eru þeir sennilega með glæsilegri
tónleikum sem haldnir eru á svæð-
inu yfir páskana. „Mývatnssveitin er
þétt setin ferðamönnum á sumrin og
mikið menningarstarf fer þar fram
en á þessum árstíma sækja hana
færri heim og tónleikarnir eru því
hugsaðir sem aukin afþreying.“ Þar
að auki fylgir tónleikunum mikil
gleði og ánægja fyrir Laufeyju, sem
segist þakklát fyrir að geta farið ár-
lega með framúrskarandi tónlist-
arfólk norður til að spila.
Píanóleikari í heimsklassa
Laufey er hvort tveggja upphafs-
maður tónleikanna og hefur verið í
forystu þeirra frá upphafi. Henni er
því mikið kappsmál að fá gott fólk
með sér og segir að sér hafi æv-
inlega tekist það, og sannarlega í ár.
„Fyrst skal frægan telja hinn ítalska
píanóleikara Domenico Codispoti,
sem hefur á undanförnum árum ver-
ið duglegur að koma til Íslands að
spila og mér hefur hlotnast sá heið-
ur að spila með honum einu sinni áð-
ur. Hann er vel þekktur og er eft-
irsóttur út um allan heim og ég er
því augljóslega þakklát og glöð og
roggin að hann skuli leggja það á sig
að koma norður að heimskautsbaug
í fámennið til að spila. Það sýnir
kannski best hversu skemmtilegur
maður hann er,“ segir Laufey og
tekur sérstaklega fram að Domenico
hafið fallið fyrir íslenska hálendinu
síðastliðið sumar. „Hann hefur tekið
ástfóstri við landið en hinn erlendi
tónlistarmaðurinn er Ellen Bridger
bandarískur sellóleikari. Hún er
gömul vinkona mín frá námsárum í
Boston .Núna er hún leiðari í Ballet
West hljómsveitinni í Utah. Hún var
stjörnunemandi á sínum tíma. Mér
finnst hún dásamleg listakona og
þykir vænt um að hún getur komið.
Við höfum ekki sést í fjölda ára og
ég hlakka til að hitta hana aftur.
Hún hefur unnið náið og spilað
kammermúsík með mörgum orð-
lögðum tónlistarmönnum þar
vestra, svo sem fiðluleikurunum
Charles Libove og Joseph Silver-
stein. Fyrir fjölda ára kom hún til
landsins og spilaði á tónleikum með
Pólýfónkórnum undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar og fór í framhald-
inu í ferðalag til Spánar með kórn-
um, þá vorum við bara stelpur. Fyr-
ir utan erlendu tónlistarmennina
kemur engin önnur en Diddú og
hana þarf varla að kynna.
Hún er fyrir löngu orðin þjóð-
arlistamaður. Í fáeinum lögum syng-
ur gestalistamaðurinn okkar í ár,
bassinn og læknirinn Ásgeir Böðv-
arsson frá Gautlöndum í Mývatns-
sveit, en Diddú bað sérstaklega um
að læknirinn með fallegu röddina
syngi með sér.“
Baráttan um fjármagnið
Dagskrá tónleikanna verður í
anda helgidaganna en samkvæmt
venju geta tónlistargestir gengið í
kringum Mývatn að morgni föstu-
dagsins langa, borðað góðan mat og
mætt klukkan níu um kvöld á tón-
leika í Reykjahlíðarkirkju. „Föstu-
dagurinn langi er tekinn alvarlega
hér og tónlistin er því með ákveðn-
um helgiblæ. Fyrri tónleikarnir,
sem fara fram klukkan 20 á skírdag,
eru með öllu léttara yfirbragði en
þeir fara fram í Skjólbrekku og þar
verður spiluð hefðbundin kammer-
tónlist.“
Tónlistahátíð sem þessir er ekki
ókeypis og baráttan um fjármagnið
hefur alltaf verið strembin. Steininn
tók þó úr þegar ákveðið var að við-
burðir af þessu tagi skyldu teknir af
fjárlögum Alþingis að sögn Lauf-
eyjar „Frá því að tekin var ákvörðun
um að taka tónlistarhátíðina af fjár-
lögum hefur róðurinn orðið erfiðari
Hótel Reynihlíð er að venju helsti
bakhjarl tónleikanna. Sveitarfélagið
og ýmsir þjónustuaðilar leggja einn-
ig sitt af mörkum, til dæmis koma
konur úr Vogafjósi með matar-
smakk á tónleikana í Skjólbrekku.
Með hjálp góðra manna hefur ætíð á
seinustu metrunum tekist að koma
verkefninu í höfn. Fyrir allan stuðn-
inginn er ég mjög þakklát, án hans
væri þetta ekki hægt, en reyndar
hef ég aldrei getað greitt tónlistar-
fólkinu sem vert væri. Það er hóf-
söm krafa að ætlast til að fólk fái
mannsæmandi laun fyrir vinnu sína,
þar á meðal tónlistarmenn, sem
langflestir vinna langan vinnudag
fyrir niðurlægjandi laun.“
Hljómsveitin okkar
Í meira en 40 ár hefur Laufey ver-
ið viðloðandi Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og hefur séð hana taka breyt-
ingum og þróast.
„Sinfóníuhljómsveitin er fyrst og
fremst spilararnir sem eru í henni.
Án þeirra er engin hljómsveit. Þró-
un hljómsveitarinnar fer því mikið
eftir fólkinu sem er í henni á hverj-
um tíma. Ég hef séð hana taka mikl-
um framförum og þróast og ég hef
séð tímabil þar sem hún gerir það
ekki.“ Fluttningurinn í Hörpu er þó
eflaust stærsta breytingin sem hef-
ur orðið í starfi hljómsveitarinnar
síðan Laufey byrjaði að spila með
henni. „Þetta var bylting. Í Há-
skólabíói var erfiður hljómburður
okkar versti óvinur. Bíóhús getur
aldrei gengt hlutverki tónleikahúss
svo vel sé. Aðstaðan í Hörpu er til
fyrirmyndar. Okkur sem þarna
störfum finnst við eiga þarna heima,
þarna er gert ráð fyrir fólki sem
starfar á þessum vettvangi.“
Harpa hefur gert meira en að
bæta aðstöðu Sinfóníuhljómsveitar-
innar að mati Laufeyjar, það hefur
orðið hugarfarsbreyting. „Ég þóttist
finna fyrir mun meiri áhuga almenn-
ings á starfi hljómsveitarinnar eftir
flutninginn, og sá áhugi skilar sér
augljóslega í góðri tónleikasókn.
Eftir flutninginn er hljómsveitin
mun aðgengilegri en áður, og ósk-
andi væri að tónlistarlífi um land allt
verði gert kleift að auðgast og dafna
í framtíðinni.“
Tómlegt líf án tónlistar
Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit haldin í 18. sinn af Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara
Morgunblaðið/Kristinn
» Frá því að tekin varákvörðun um að taka
tónlistarhátíðina af fjár-
lögum hefur róðurinn
orðið erfiðari.
Fiðluleikari Laufey
Sigurðardóttir heldur
árlega tónleika um
páskana í sveitinni sinni,
Mývatnssveitinni.
Á skírdag hefst dagskráin
klukkan 20 í Skjólbrekku og
verða leikin íslensk sönglög
og tríó í H-dúr op. 8 eftir
Brahms. Eftir hlé taka svo við
ítalskar antikaríur, tríó eftir
Piazzolla, óperuaríur og dú-
ettar.
Á föstudaginn langa fara
tónleikarnir fram í Reykjahlíð-
arkirkju og hefjast klukkan
21:00. Þar fær að hljóma tríó
í C-dúr kv.548 eftir Mozart og
fjöldi sönglaga eftir íslensk
og erlend tónskáld, Pál Ísólfs-
son, Sigvalda Kaldalóns,
J.S.Bach, Handel og fleiri.
Dagskrá
tónleikanna
MÚSÍK Í MÝVATNSSVEIT