Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 1
Bitist umbækurnarHIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNT ÉBÓ8 - 19. tbl.  10. maí 2015 ÐI BARNA áfram að standa sig í SkólahreystiÐA SIGURLIÐIÐMM ÁRUM SUNNUDAGUR YRKI ARKITEKTARUNNUTILVERÐLAUNA TÖFF STÍLL FRIÐRIKS DÓRS ÞRJÁR DÝRINDISUPPSKRIFTIR HÖNNUN 26 TÍSKA 40 JÓI Í OSTABÚÐINNI 32 HERNÁMSDAGURRIFJAÐUR UPP 10. MAÍ 2015 ÞEKKTIR ÍSLENDINGAR HAFA HAFT ÁHRIF Á NAFNGIFTIR DRENGJA OG STÚLKNA HÉRLENDIS OG JAFNVEL KOMIÐ AF STAÐ TÍSKUBYLGJUM 48 * EFTIR HVERJUM ÁBARNIÐ AÐ HEITA?   L A U G A R D A G U R 9. M A Í 2 0 1 5Stofnað 1913  108. tölublað  103. árgangur  HÚSBÚNAÐUR, HEIMILI OG GÖMUL HÚS BARNAMENNINGARHÁTÍÐ REYKJANESBÆR 10HEIMILI OG HÖNNUN „Veturinn var sérstaklega erfiður. Við höfum aldrei séð ann- an eins sandburð frá fjörunni, yfir veginn að Óseyrarbrú og eins í átt að Þorlákshöfn,“ sagði Sigurður Jónsson, skipu- lags- og byggingarfulltrúi Sveitarfélagsins Ölfuss. „Þetta er orðið svart land og svæðið eiginlega kaffært í sandi á köfl- um. Þetta getur ógnað framtíð golfvallarins og byggðar- innar í Þorlákshöfn nema gert verði stórátak til að laga þetta.“ Kamburinn, sem melgresið byggði upp ofan við fjöruna, er einstakur á heimsvísu, að sögn Sveins Runólfssonar, land- græðslustjóra. Eins og myndin sýnir hefur kamburinn rofnað og sandurinn á greiða leið inn á gróið land. gudni@mbl.is »6 Foksandur ógnar gróðri og golfvelli við Þorlákshöfn Morgunblaðið/RAX  Sterk merki eru um að feðgarnir Arnór og Eiður Smári Guðjohnsen hafi haft mikil áhrif á nafngiftir drengja hérlendis. Um það leyti sem frægðarsólir þeirra skinu sem skærast snarfjölgaði þeim drengj- um sem fengu nöfnin Eiður og Arn- ór og má nefna að Arnórar í land- inu margfölduðust að tölu þegar Arnór Guðjohnsen varð Belgíu- meistari með Anderlecht. Fram kemur í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag að Ásgeir Sigurvinsson, Hólmfríður Karls- dóttir og Vigdís Finnbogadóttir hafi haft svipuð áhrif. Íslendingar nefndu börn sín eftir knatt- spyrnuhetjum  Sýning Christophs Büchel, Mosk- an, var opnuð í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í gærmorgun. Allt fram á síðustu stundu var óvíst hvort leyfi fengist fyrir opnuninni og að sögn Bjargar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Kynningar- miðstöðvar íslenskrar myndlistar, er formlegt leyfi enn ekki komið. Yfirvöld sendu aðstandendum nýtt bréf í gærmorgun með ýmsum skil- yrðum. „Þetta verk snýst um sam- tal og nú erum við í samtali við yf- irvöld hér, það er hluti af ferlinu,“ segir Björg og bætir við að íslenski skálinn hafi aldrei fengið jafnmikla athygli fjölmiðlafólks og nú. »18 Sýningin opnuð í Feneyjum án leyfis Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Samninganefnd Starfsgreinasam- bandsins hefur fengið vilyrði frá ríkisstjórninni um skattkerfis- breytingar, sem gagnist mest hin- um tekjulægstu, til að liðka fyrir kjarasamningum, skv. heimildum Morgunblaðsins. SGS hefur ekki tekið afstöðu til þess enda engar tímasetningar mögulegra skatta- lækkana nefndar í plagginu. Rætt var um tilboð Samtaka at- vinnulífsins á sáttafundi SA og SGS í gær en SA meta það til 23,6% hækkunar á 3 árum. Þar er 8% sérstök hækkun dagvinnulauna en með auknum sveigjanleika vinnutíma og lækkun yfirvinnu- álags. Forsvarsmenn SGS hafa gagnrýnt tilboðið. „Þetta var ekki hefðbundinn samningafundur, heldur vinnufundur þar sem hug- myndir voru þróaðar áfram,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SA. Tilboð SA felur í sér að laun hækki um 6% á þessu ári, 4½% á næsta ári og 3% á árinu 2017. Yf- irvinna á skv. tilboðinu að lækka úr 80% í 50% en á móti hækki laun um 2%, skv. heimildum innan SGS. Þá yrði dagvinnutíminn lengdur og yrði frá kl. 6 á morgnana til 19 á kvöldin. SGS hefur metið tilboðið til 28 þúsund kr. hækkunar lægstu launa á 3 árum. Skv. tilkynningu SA í gær hafa samtökin einnig boð- ið sérstaka hækkun lágmarkstekju- tryggingar fyrir fulla dagvinnu sem næði 280 þús.kr. á mánuði í lok samningstímans. Meginkrafa SGS er að lágmarkslaun hækki í 300 þúsund kr. í þriggja ára samn- ingi en skv. upplýsingum blaðsins mun útfærsla SA byggð á því að skattalækkanir samhliða þessari hækkun lægstu launa jafngildi því að lágmarkslaunin næðu 300 þús- und kr. innan þriggja ára. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins kynntu SA Flóafélögunum sambærilegt tilboð áður en það var lagt fyrir samninganefnd SGS en Flóafélögin höfnuðu því. Gefa vilyrði um skattalækkanir  SGS og Samtök atvinnulífsins togast á um launatilboð SA MEkki lausn í að ríkisstjórnin .... »4 Morgunblaðið/Golli Kjaradeilur Fulltrúar SA og SGS hittust í húsnæði ríkissáttasemjara í gær. Hróbjartur Jónatansson, hæstarétt- arlögmaður og formaður slitastjórn- ar VBS eignasafns hf., telur að ef nýtt, bindandi álit ríkisskattstjóra um skattlagningu eftirgefinna skulda þrotabúa standist skoðun og verði ekki hnekkt af yfirskattanefnd kunni það að hafa ófyrirséðar afleið- ingar í för með sér í íslensku við- skiptalífi. „Ef geðþóttastjórnsýsla af þessu tagi telst standast lög, þá er óhjá- kvæmilegt að það muni hafa veruleg áhrif á viðskiptalífið og það hvernig menn stunda viðskipti sín í milli.“ Slitastjórn SBP hf. hyggst kæra álitið til yfirskattanefndar. »22 Morgunblaðið/Golli Álitið Kært til yfirskattanefndar. Byggt á geðþótta  Nýtt álit RSK harðlega gagnrýnt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.