Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 ✝ Oddbjörg Sig-fúsdóttir fæddist á Krossi í Fellum 3. október 1944. Hún lést á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 28. apríl 2015. Oddbjörg var dóttir hjónanna Sigfúsar Gutt- ormssonar og Sól- rúnar Eiríksdóttur á Krossi í Fellum. Hún ólst upp á Krossi, yngst níu systkina sem komust á legg en það elsta Skógar, f. 1968. 2) Björn Snær, f. 1972, d. 1978. 3) Sigfús Ingi, f. 1974. 4) Sólrún, f. 1978. Sam- býlismaður hennar er Jóhann Páll Svavarsson, f. 1978. Eftir fjóra vetur á barna- skóla á Helgafelli, Skipalæk og Skeggjastöðum í Fellum var Oddbjörg einn vetur á hús- mæðraskólanum á Varmalandi. Oddbjörg og Víkingur bjuggu fyrst í Skógargerði en fluttu þaðan í Arnórsstaði á Jökuldal og bjuggu þar frá 1971-1987, er fjölskyldan flutti í Hamra- fell 3 í Fellabæ. 1989 skildu þau Víkingur en Oddbjörg bjó áfram í Hamrafellinu til dán- ardags. Útför Oddbjargar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 9. maí 2015, og hefst athöfnin kl. 14. fæddist andvana. Eftirlifandi systk- ini hennar eru Páll Hjörtur sem er elstur, fæddur 1931, og síðan í aldursröð Oddur, Guðný Sólveig, Guttormur, Sveinn Eiríkur, Þórey, Baldur og Jón. Oddbjörg giftist Víkingi Gíslasyni frá Skógargerði í Fellum, f. 11. júlí 1929, og eignuðust þau fjögur börn, sem eru: 1) Gísli Mamma ólst upp hjá foreldrum sínum á Krossi í stórum systkina- hópi. Hún fæddist í gamla torf- bænum og var orðin sex ára þeg- ar flutt var í nýtt steinsteypt hús 1950. Sigfús afi fórst með flugvél- inni Glitfaxa þegar mamma var á sjötta ári, í janúar 1951. Í hönd fór erfiður tími og fjölskyldan stóð þétt saman til að halda heimilinu gangandi og tókst það þó erfitt væri. Hafa þau haldið góðu sam- bandi alla tíð síðan og verið mjög samrýmd. Amma hennar og al- nafna Oddbjörg Sigfúsdóttir bjó einnig á heimilinu. Mamma vann við búskapinn á Krossi milli þess sem hún mennt- aði sig og stundaði vinnu utan heimilis þar til hún hóf sjálf bú- skap í Skógargerði 1967 með Vík- ingi Gíslasyni. 1971 fluttu þau í Arnórsstaði á Jökuldal og bjuggu þar fyrst í torfbæ en byggðu svo upp jörðina sem verið hafði í eyði í mörg ár. Fljótlega steðjuðu veik- indi að heimilinu. Björn Snær sonur þeirra greindist á öðru ári með nýrnasjúkdóm og dvaldi hún því langdvölum á Landspítalan- um vegna veikinda hans þar til hann lést 1978. Þar á eftir greind- ist dóttir þeirra Sólrún með sama sjúkdóm og dvöldu þær mæðgur mikið á spítala til 1987. Sólrún móðir hennar flutti fljótlega til þeirra upp í Arnórsstaði og bjó á heimili dóttur sinnar upp frá því. Þrátt fyrir veikindi var þetta blómatími í búskap þeirra og margar góðar stundir átti fjöl- skyldan á Dalnum. Átti Jökuldal- ur og fólkið þar sérstakan sess í huga mömmu upp frá því. Árið 1987 flutti fjölskyldan í Hamrafell 3 í Fellabæ og þar bjó mamma allt til dánardags. Dulræn málefni voru henni snemma hugleikin og var hún mjög næm sem barn og allar göt- ur eftir það. Sá hún fylgjur á und- an gestum. Lærði hún af móður sinni að leggja spil og spá í bolla og fylgdi það henni alla tíð að spá fyrir fólki sem leitaði til hennar. Hún trúði staðfastlega á líf eftir dauðann og fékk margar sannanir fyrir því meðal annars í draumi. Mamma vildi alltaf hjálpa öllum sem leituðu til hennar og fengu margir verndarmynd. Hún lærði ung að spila á harm- onikku heima á Krossi eins og all- ir á heimilinu og samdi sín lög síð- ar meir á nikkuna. Hún var afkastamikil prjónakona líkt og Oddbjörg amma hennar sem labbaði prjónandi á milli bæja til að nýta tímann. Eftir að komið var í Hamrafellið tók við mynd- listartímabil sem varði þar eftir. Hún fór ekki troðnar slóðir í sinni myndlist. Svo var því einnig farið um aðra hluti sem hún skapaði eða gerði. Má þar nefna að hún var litaglöð kona með eindæmum og báru myndirnar sem hún mál- aði, fötin sem hún prjónaði og lita- val hennar á Hamrafellinu þess glöggt merki. Hún naut þess að skapa hvort sem voru nýjar prjó- naflíkur eða munstur, mála myndir og semja bæði lög og texta. Einnig samdi hún vísur, kvæði og sögur og stundaði tölu- verð ritstörf. Hefur sumt verið gefið út. Hún helgaði sig heim- ilinu og þar kunni hún best við sig. Hún fór sjaldan af bæ en naut þess að aðrir komu til hennar. Hún hafði alltaf nóg fyrir stafni og leiddist aldrei heima. Börnin hennar þakka henni samfylgdina og allt sem hún hefur gert fyrir þau. Gísli, Sigfús og Sólrún. Það flýgur margt í gegnum hugann nú þegar Oddbjörg frænka mín eða Bogga eins og hún var alltaf kölluð er farin frá okkur. Maður á samleið með mörgu góðu fólki en Bogga hefur einhvern veginn á sérstakan hátt verið í kringum mig ef svo mætti segja frá því ég man eftir mér. Hún var systir pabba og yngst í stórum systkinahópi sem mikið reyndi á þegar faðir þeirra fórst með flugvélinni Glitfaxa. Bogga var þá aðeins sex ára gömul. Hún var líka vinkona mömmu frá því þær voru að alast upp á Krossi og Staffelli. Eitthvað man ég eftir henni heima á Krossi þegar ég var á mínum fyrstu árum og hún var alltaf að gera mér og öðrum gott. Bogga hefur alltaf verið mér mjög kær og hefur hún alltaf sýnt mér og mínum sérstaka góðvild. Oft átti hún í gegnum tíðina við mikið mótlæti að stríða en alltaf virtist hún samt geta veitt öðru fólki í vanda ráð og styrk. Margir hafa leitað til hennar í gegnum ár- in og ég hef oft furðað mig á styrk þessarar konu sem var þó ekki mikil á velli. Hún hafði sannar- lega hæfileika á mörgum sviðum. Hún gat teiknað, málað, sett sam- an sögur, samið ljóð og lög. Hún sagði skemmtilega frá og það var gaman að sitja hjá henni og hlusta á frásagnir af hinu og þessu. Þetta voru veraldlegu hæfileik- arnir hennar en hún bjó líka yfir öðrum óskilgreindari hæfileikum sem fáum eru gefnir. Ég bað hana reyndar aldrei að spá fyrir mér en það gat hún vel svo sögur fóru af. En fyrst og síðast var það góð- mennska hennar og hlýtt viðmót sem laðaði fólk að henni. Fjöl- margir skyldir og óskyldir komu ekki öðruvísi í heimsókn austur á Hérað en að líta inn hjá Boggu, fá kaffi og spjalla. Bogga og fjölskyldan hennar á þakkir skildar fyrir margt og ekki síst fyrir að veita Sólrúnu ömmu minni skjól svo lengi sem hún lifði. Það er fátítt nú til dags að fólk gefi gömlu fólki kost á að vera inni á heimili sínu til elliára. Þetta taldi Bogga ekki eftir sér. Það hafa margir misst mikið nú þegar Bogga hefur kvatt. Mest þó börn- in hennar og biðjum við allar góð- ar vættir að styrkja þau. Sigfús og Stefanía Ósk. Lyngið, fjalldrapinn og allur íslenski gróðurinn var umgjörð um heimkynni hennar konunnar sem sá í gegnum holt og hæðir vinur dverga og álfa (ÞG) Oddbjörg hafði mikla hæfileika sem sjáandi. Hún sagðist hafa valið að koma í þessa jarðvist til að hjálpa fólki og vinna líknar- störf. Hún gerði falleg kort og helgimyndir fyrir fólk og gaf mörgum von og hughreystingu. Kortunum hennar fylgdi oft ein- hver dulinn kraftur sem breytti hlutunum til betri vegar. Sagðist stundum hafa leiðbeint fólki sem átti erfitt með að átta sig á hinum jarðneska dauða og rataði ekki leiðina að fordyri guðsríkis. Hún hefur staðið sig vel litla stúlkan sem missti föður sinn, Sigfús Guttormsson, í flugslysi þegar Glitfaxi fórst á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur árið 1951. En lífið var allt auð- veldara vegna þess hvað hún átti góða móður, hana Sólrúnu Eiríks- dóttur, sem þrátt fyrir að standa ein eftir með níu börn, sex innan fermingaraldurs, tók þessu áfalli með æðruleysi. Það var oft erfitt fyrir Oddbjörgu að ferðast með veik börn sín austan af Héraði til að leita lækninga í Reykjavík og fara í flug hvernig sem viðraði. Hún stóð sig eins og hetja. Ég þakka þér, Oddbjörg, alla hjálp við mig og mína. Ef ég villist á leiðinni þegar ég flyt héðan lang- ar mig að mega nefna nafnið þitt góða, Oddbjörg Sigfúsdóttir. Innilegar samúðarkveðjur til ást- vina þinna, barna og tengdasonar. Þuríður Guðmundsdóttir. Það tilheyrir víst lífinu að þurfa að sjá á bak kæru samferðafólki en alltaf er það samt jafnsárt. Nú í sumarbyrjun kvaddi Odd- björg frænka mín þetta jarðlíf eft- ir talsvert heilsuleysi um árabil. Hún var yngst af níu systkin- um er fæddust á Krossi í Fella- hreppi en hún er sú fyrsta er fell- ur frá af þeim stóra hópi. Hún var vel gefinn dugnaðar- forkur eins og þau eru öll systk- inin og eiga þau ekki langt að sækja það því foreldrar þeirra voru fjölgáfað dugnaðarfólk. Í vöggugjöf fengu þau líka allflest listræna hæfileika, flest leika á hljóðfæri, geta vel sett saman ljóð og lög og einnig málað. Þessa hæfileika fékk Bogga í ríkum mæli og ræktaði vel er tími vannst til frá daglegu amstri þótt vinnan sæti alltaf í fyrirrúmi og lífið byði henni ekki upp á mikinn frítíma eða leikaraskap. Við komuna til jarðlífsins er okkur úthlutað mismunandi hæfi- leikum af skaparanum og ráðum við litlu um það, en hún var gædd sérstökum sálrænum hæfileikum, sem ekki eru öllum gefnir. Þá hæfileika ræktaði hún til hjálpar þeim sem lífið fór ómjúkum hönd- um um og eru þeir ófáir sem hafa notið þess að fara glaðari, von- betri og bjartsýnni af hennar fundi. Þótt heilsa hennar væri ekki sem best hafði hún samt orku til að miðla þessari umvefjandi hlýju til þeirra sem til hennar leituðu. Við sem urðum henni samferða í lífinu finnum hversu stórt skarð er nú í vinahópnum við fráfall hennar. Um leið og ég þakka henni samfylgdina færi ég ástvinum hennar mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu hennar. Guðlaug Erla Jónsdóttir. Oddbjörg Sigfúsdóttir✝ Guðfinna Páls-dóttir hjúkr- unarfræðingur fæddist á Hofi á Skagaströnd 21. september 1930. Hún lést 27. apríl 2015 á Blönduósi. Foreldrar hennar voru Sigríður Guðnadóttir hús- freyja, f. 28.10. 1900 í Hvammi í Holtum, d. 4.3. 1964, og Páll Jónsson kennari og skólastjóri á Skaga- strönd, f. 22.12. 1899 á Bala- skarði, d. 19.7. 1979. Systkini Guðfinnu eru: 1) Kristinn, f. 22.12. 1927, d. 21.10. 2008, 2) Guðný Málfríður, f. 2.7. 1929, d. 17.2. 2005, 3) Jón Sveinn, f. 28.12. 1933, 4) Ingveldur Anna, f. 12.4. 1935, 5) Ásdís f. 17.8. 1936 og 6) Edda, f. 4.10. 1939. Guðfinna giftist Þórhalli Blön- dal, f. 10.6. 1923, d. 19.9. 2008, og áttu þau heimili á Bönduósi. Börn þeirra eru 1) Lúðvík Þór bifreiðarstjóri, f. 13.8. 1961, 2) Auðunn Sigurbjörn bifvélavirki, f. 25.9. 1962 og 3) Ingibjörg læknaritari, f. 17.10. 1964. Eig- inkona Lúðvíks er Margrét Helga Þorsteinsdóttir og börn hennar og Sæmundar Gunn- arssonar eru: a) Þorsteinn Rún- lést átti Sigga Birna skjól hjá Eddu Pálsdóttur móðursystur sinni. Eiginmaður Sigríðar er Gunnar Bjarnason jarðfræð- ingur. Börn þeirra eru a) Þorri Björn verkfræðingur, f. 17.2. 1979, og b) Ásta Birna hagfræð- ingur, f. 29.10. 1984. Gunnar á einnig dótturina Heiðrúnu kenn- ara, f. 19.11. 1974. Börn Þorra Björns og Guðrúnar Bjartmarz eru Alexander Jóhann, f. 17.7. 2007, og Emil Arnar, f. 2.12. 2014. Sambýlismaður Ástu er Kjartan Fannar Grétarsson. Börn Heiðrúnar og Ágústs Vals Guðmundssonar eru Nína Björg, f. 12.4. 2004, Rakel Anna, f. 21.2. 2006, Gabríel Örn, f. 11.6. 2011, og Erla Hlín, f. 18.1. 2014. Guðfinna var gagnfræðingur frá Akureyri og fór síðan í lýðhá- skóla til Svíþjóðar og vann þar ýmis störf í þrjú ár. Hún útskrif- aðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1957 en með náminu vann hún á Landspítala og sjúkrahúsinu á Ísafirði. Hún vann við síld- arsöltun á Skagaströnd á sumrin með systrum sínum. Hún starf- aði lengst af á Héraðshælinu á Blönduósi sem hjúkrunarfræð- ingur. Útför Guðfinnu fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 9. maí 2015, kl. 14. ar, f. 22.12. 1980. Börn hans eru Bergsveinn Snær, f. 25.6. 2000, Oliver Daði, f. 2.1. 2008, og Emma Snót, f. 11.4. 2009, b) Birna Þórkatla, f. 17.1. 1985. Börn hennar eru Aníta, f. 1.5. 2005, Sóley Eir, f. 1.11. 2010, og Elín Rós, f. 8.2. 2013, c) Gunnar Már, f. 27.7. 1991. Börn hans eru Fjölnir Þór, f. 22.1. 2013, og Ragnar Logi, f. 21.1. 2014, og d) Elías Kristinn, f. 13.11. 1992. Barn Elíasar er Ás- geir Fannar, f. 24.2. 2014. Börn Ingibjargar og Karls Sig- urbjörns Óskarssonar eru a) Finnur Þór fiskeldisfræðingur, f. 4.5. 1990, og b) Hólmfríður Kar- en nemi, f. 10.7. 1996. Sambýlis- maður Ingibjargar er Stefán Magnús Skúlason og hans börn eru a) Hólmfríður, f. 24.12. 1990, og b) Ingi Freyr, f. 25.1. 1994. Guðfinna átti áður dótturina Sig- ríði Birnu Björnsdóttur, f. 21.2. 1956. Faðir hennar var Björn Ólafsson, skipatæknifræðingur í Svíþjóð, f. 1.12. 1920, d. 1968. Sigríður Birna ólst upp hjá afa sínum og ömmu, Páli og Sigríði á Skagaströnd og eftir að Sigríður Föðursystir okkar Guðfinna Pálsdóttir, Finna frænka, var húsmóðir, hjúkrunarfræðingur og mamma Siggu, Lúlla, Auðuns og Ingibjargar. Við komum reglulega í heimsókn og þau til okkar. Fullorðna fólkið sat og drakk kaffi, sumir reyktu sígar- ettur og sagði hver frá sem best hann gat. Þannig var lögð rækt við sameiginlegan sagnaarf ætt- arinnar. Við börnin sátum á kollum og bekkjum í jaðri sam- sætisins, drukkum mjólk, sum með kaffilögg út í og fengum sykurmola. Guðfinna hafði yfir- leitt orðið. Hún hafði frásagnargáfu. Gamansögur af eigin lífsgöngu og alvarleg mál klædd í þann sama búning voru uppistaðan. Frásagnartæknin sem Finna beitti er nú notuð á heimasíðum. Eitt aðalatriði ber uppi frásögn- ina en auðvelt er að auka við, bæta og endurtaka stef sem tengja þræðina. Finnu var ljóst að hún hélt orðinu fast í samræð- um og henti gaman að því. Hún sagðist beita tækni til þess að ná orðinu þegar skipst var á sögum. Það var að upphefja góðlátlegan hlátur með viðmælanda á vel völdum stað. Hann fór á endan- um líka að hlæja með: „þá greip ég orðið“ sagði Finna frænka. Eitt sinn á háskólaárunum þegar við vorum á leið úr páska- fríi urðum við veðurteppt í stór- hríð hjá Finnu á Blönduósi í fimm daga. Þá var ekkert hægt að gera annað en ræða málin. Það var gaman og við kynntumst henni sem fullorðnar manneskj- ur. Hún sagði okkur margar skemmtilegar sögur af Hælinu meðal annars af því þegar gamla fólkið var að kjósa. Mektarmað- ur kom á kjördag til þess að hjálpa Óla gamla með atkvæða- seðilinn en hann hafði misst sjón og heyrn að mestu. Hvað ætlar þú að kjósa Óli minn? spurði fylgdarmaðurinn. Óli svaraði með hrjúfri röddu: „Það er íhald- ið“. Kynslóð Finnu upplifði stór- tækari þjóðfélagsbreytingar en nútímafólk þarf að eiga við. Hún nam hjúkrun, vann langan vinnu- dag heila starfsævi og var hús- móðir. Þegar þau Þórhallur hófu búskap sagði Finna merkilegt að vera af fyrstu plast-kynslóðinni. Uppgjörið við húsmæðrahyggj- una birtist sem svo: „ég veit að það kemur ekki hjá mér að ég hafi búið manninum mínum fag- urt heimili“. Hún bjó fjölskyldu sinni skemmtilegt heimili sem gott og gaman var að koma á. Hún var á undan sinni samtíð í hjúkrun og lagði áherslu á að tala við sjúklingana. Finna hafði mikinn áhuga á starfi sínu og vann til 72 ára aldurs. Það var og er dýrmætt að hafa átt frænku og föðursystur sem var svo skemmtileg og litrík per- sóna sem kom yfirleitt auga á spaugilegu hliðarnar á mannlíf- inu. Hjá Finnu var stutt í bros, hlátur og hnyttna athugasemd. Hún var listfeng og glaðværð einkenndi hana lengst af. Við sendum samúðarkveðjur til barna Guðfinnu, fjölskyldna þeirra, systkina hennar, ættingja og vina. Minningin lifir. Rannveig og Þorlákur. Guðfinna Pálsdóttir fæddist á Hofi á Skagaströnd og bjó þar til fermingaraldurs. Hún ólst þar upp í sjö barna hópi. Þar bjuggu líka Villa og Pétur föðursystkini Guðfinnu og var gott að koma í baðstofuna þeirra og fá eitthvað gott í gogginn; lesa og horfa á kvisti á þilinu og fá smá frið fyrir umheiminum. Á Hofi bjuggu einnig afi og amma Guðfinnu Jón og Guðný. Hof var í minningunni ævin- týraland bernskunnar. Árið sem hún fermdist flutti fjölskyldan og bjó eftir það í Breiðabliki á Höfðakaupstað. Finna eins og systkinin kölluðu hana var þriðja í systkinaröðinni. Henni var systkinaröðin hugleikin og talaði oft um það hvað það hefði verið erfitt að vera númer þrjú. Fyrst kom Kristinn á afmæli Páls föður síns og síðan kom Guðný og ári síðar Finna; hún háði mikla bar- áttu við að standa þeim jafnfætis í uppvextinum. Guðfinna byrjaði snemma að tala og hafði mjög góða frásagn- argáfu. Stundum þurfti hún að gera hlé á máli sínu svo áheyr- endur gætu jafnað sig; slíkar þagnir voru þó fáar. Á Hofi vakn- aði áhugi hennar á gróðri og steinum. Hún safnaði saman blómum og gróðursetti í beði uppi á mel og raðaði steinum í kring. Hún lét sig dreyma um garð. Seinna eignaðist hún garð sunnanundir vegg. Þar gróður- setti hún ýmsar plöntur. Þeim var ekki plantað í skipulögðum röðum og limgerðið var ekki einsleitt eins og oft vill verða því hún vildi fá að njóta þess að fylgjast með mörgum tegundum. Þennan garð kallaði hún stolt Villigarðinn. Hún naut þess að setjast út í garðinn á sólríkum dögum og fylgjast með gróðrin- um. Hún var mjög fróð um ís- lenskar plöntur; átti bækur og tímarit um þau efni. Hún var einnig fróð um allar helstu garð- plöntur sem hér vaxa. Guðfinna hafði mikla ánægju af að safna steinum á sínum ferðum og hafði alltaf augun opin fyrir því hvert sem hún fór. Steinunum kom hún fyrir í garðinum og inni á heim- ilinu. Guðfinna og Þórhallur fóru oft í tjaldútilegur með börnin og undu þau sér vel á lækjarbakka í lítilli laut. Finna hafði gaman af hannyrðum og fór þar ekki alltaf troðnar slóðir. Hún hafði mjög gaman af bóklestri og var alæta á bækur. Eftir að hún keypti alla ritröð Laxness voru þær bækur ekki í skrautbandi uppi í hillu heldur lá við að hún hætti að lesa aðrar bækur og oft sótti hún bók í hilluna og las lítinn kafla upp- hátt; þvílík snilld. Guðfinna var göngugarpur og gekk gjarnan til og frá vinnu á sínum yngri árum og stundum fór hún á fjöll. Guðfinna mat vinnuna sína sem hjúkrunarkona mjög mikils. Hún hafði mikla ánægju af sam- skiptum við samstarfsfólk og skjólstæðinga og eignaðist þar marga góða vini. Auðvitað var ekki allt auðvelt en hún var yf- irleitt fljót að sjá skoplegu hlið- arnar á tilverunni og komast þannig í gegnum lífið. Þegar hún hætti að vinna, þá orðin 72 ára, var tilveran ekki eins litrík leng- ur; sjón og heyrn hrakaði og smám saman slokknaði lífsneist- inn. Guðfinna hafði ekki lengur um neitt að tala og sagðist hafa sagt allt sem segja þurfti. Gunnar Bjarnason. Guðfinna Pálsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.