Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2015 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Misstu bílinn í sjóinn 2. Sjáið Brynju Dan ljóshærða 3. Tók 90 megrunartöflur á viku 4. Fækkaði fötum fyrir Letterman  Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík hefst í dag og sýnir skólinn verk eftir nemendur í sjónlistadeild og diplómunámi í keramík, teikningu og textíl. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vorsýning Myndlista- skólans í Reykjavík  Finnar verða í fókus á Vatnsmýr- arhátíðinni í ár, sem fram fer í Norræna húsinu. Félagið Suomi Finnland tekur virkan þátt í dag- skránni í ár og mun bjóða upp á kórsöng og smakk á finnskum kræs- ingum. Farið verður í finnska leiki svo sem barnaburð og stígvélakast, heimildamynd um finnsku hljóm- sveitina PKN verður einnig sýnd. Stígvélakast og finnskar kræsingar  Boðið er upp á ís, kaffi og súkku- laði í sundlaugum Kópavogs frá klukkan 11 í dag í tilefni afmæl- ishátíðar bæjarins og á morgun, 10. maí verða stórtónleikar í Kórnum. Meðal þeirra sem koma fram eru Ríó tríó, Salka Sól, Erpur, sameinaður barnakór sem 400 börn úr Kópa- vogi skipa, Stebbi Hilmars og auð- vitað Dr. Gunni ásamt fleirum. Frítt er á við- burðinn. Kópavogur heldur upp á sextugsafmæli FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur og stöku él en bjartviðri á Vesturlandi. Hiti yfirleitt 0 til 8 stig og mildast á Suðvesturlandi. Á sunnudag Austan 3-8 m/s og bjart með köflum en 8-13 m/s og dálítil él við suður- ströndina. Hiti 1 til 7 stig að deginum en vægt frost norðaustan- og austanlands. Á mánudag Norðaustanátt, víða 8-13 m/s. Léttskýjað suðvestan- og vestanlands en skúrir eða él á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag Norðaustlæg átt. „Fyrir tímabilið ákvað ég að þetta yrði mitt síðasta keppnistímabil sem leikmaður. Þótt ég sé enn vel á mig komin og á ágætum aldri þá þykir mér þetta vera góður tími til að setja punkt aftan við þennan hluta ævinn- ar,“ sagði Hildur Sigurðardóttir með- al annars við Morgunblaðið í gær en hún var valin besti leikmaður Íslands- mótsins í körfubolta. »1 Löngum ferli lauk á glæsilegan máta Hauka úr Hafnarfirði vantar nú einungis einn sigur á Aftureldingu til viðbótar til þess að verða Íslandsmeist- arar karla í handknattleik. Haukar unnu annan leik lið- anna í úrslitarimmunni um titilinn á Ásvöllum í gær- kvöldi 21:16. Vinna þarf þrjá leiki til að verða meistari og eru Haukar 2:0 yfir. Næsti leikur fer fram í Mosfells- bænum. »2-3 Hauka vantar einn sigur til viðbótar „Ég var svo sem lítið að hugsa út í þessar spár. Það er eðlilegt að liði sem aldrei hefur spilað í efstu deild sé spáð falli en við leikmennirnir höf- um mikla trú á okkur og einbeitum okkur að eigin liði. Markmiðið er að sjálfsögðu að halda sætinu í deild- inni,“ segir Leiknismaðurinn Hilmar Árni Halldórsson sem er leikmaður fyrstu umferðar Pepsi-deildar karla í fótbolta hjá Morgun- blaðinu. »2-3 Við höfum mikla trú á okkur sjálfir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fimm nemendur á fyrsta ári í Há- skólanum í Reykjavík vinna saman að viðskiptahugmynd sem gengur út á það að tengja saman fólk sem vill kynnast nýrri matarmenningu og þá sem hafa gaman af því að elda og kynnast nýju fólki. Nem- endurnir eru að hanna heimasíðu í anda airbnb.com og verður hún væntanlega opnuð um helgina, en í stað þess að fólk leigi frá sér hús- næði eða leiti að húsnæði til leigu snúast viðskiptin um að bjóða upp á mat í heimahúsi gegn greiðslu. Agla Eir Vilhjálmsdóttir laga- nemi, Anna Sigurrós Steinarsdóttir verkfræðinemi, Björn Þór Þor- steinsson viðskiptafræðinemi, Mar- grét Lilja Arnarsdóttir verk- fræðinemi og Mist Grétarsdóttir sálfræðinemi vinna að fyrrnefndu verkefni, fyrst og fremst með er- lenda ferðamenn í huga. foodfriendsiceland.com Agla Eir segir að hugmyndin sé að áhugakokkar búi sér til svæði á heimasíðu fyrirtækisins (foodfri- endsiceland.com) og á appi, sem til stendur að útbúa. Þar kynni þeir sig, hvað þeir hafi upp á að bjóða, hvenær og hvað það kosti. Við- skiptavinurinn geti skoðað mis- munandi prófíla og keypt sér mál- tíð. Hann geti líka gefið matreiðslumanninum einkunn fyrir eldamennskuna og kokkurinn geti á sama hátt gefið viðskiptavininum einkunn fyrir framkomuna. „Við hugsum þetta fyrir túrista sem vilja kynnast heimafólki og fá heimagerðan mat og fyrir fólk sem hefur áhuga á að taka á móti ferða- mönnum inn á sitt heimili,“ segir hún. Til nánari útskýringar segir Agla Eir að fyrirtækið ákveði lág- marks- og hámarksverð og áhuga- kokkarnir ákveði hvað sé í boði hverju sinni og verðleggi þjón- ustuna á milli fyrirfram ákveðinna marka. Markmið áfangans er að hóp- arnir komist eins langt og þeir geti til þess að verkefnin verði að raun- veruleika. „Þegar við byrjuðum að vinna að verkefninu fannst okkur það svo áhugavert að okkur langar að halda því áfram og hrinda því í framkvæmd,“ segir Agla Eir. Hún bætir við að hugsanlega verði þau fimm og fjölskyldur þeirra fyrstu áhugakokkarnir til þess að koma fyrirtækinu af stað. Þau kynntu verkefnið ferðamönnum í mið- bænum í vikunni og fengu góðar undirtektir. „Það var skemmtilegt að heyra hvað margir höfðu áhuga á því að koma inn á heimili hjá Ís- lendingum og borða með þeim, en að sjálfsögðu verður þetta líka opið fyrir íslenska matargesti.“ Matarmenningin tengir fólkið  Fyrirtæki háskólanema býður upp á áhugakokka og mat í heimahúsum Morgunblaðið/Styrmir Kári Nýsköpun Margrét Lilja Arnarsdóttir, Anna Sigurrós Steinarsdóttir, Agla Eir Vilhjálmsdóttir, Mist Grétarsdóttir og Björn Þór Þorsteinsson. Um 320 nemendur úr hinum ýmsu deildum eru í áfanganum Nýsköpun og stofnun fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík. Þeir eru í 63 hópum og ákveða sjálfir verkefnin og úrvinnsluna. Mark- miðið er að þróa viðskipta- hugmynd á þremur vikum og fékk hver hópur 30 sekúndur til þess að kynna verkefni sitt fyrir hinum hópunum í skólanum í gær, en verkefnunum á að skila í lok næstu viku. „Öllum prófum er lokið og því höfum við getað einbeitt okkur að þessu verkefni undanfarnar tvær vikur,“ segir Agla Eir Vil- hjálmsdóttir. Um 320 nemendur VINSÆLL ÁFANGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.