Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Fyrsta sumarsýning Listasafns
Reykjavíkur, Listhneigð Ásmundar
Sveinssonar, verður opnuð í Ás-
mundarsafni í dag kl. 16. Á sýning-
unni eru ferli Ásmundar gerð skil
með lykilverkum úr safneign Lista-
safns Reykjavíkur.
„Ásmundur Sveinsson var á með-
al frumkvöðla íslenskrar högg-
myndalistar og sótti innblástur
fyrst og fremst í íslenska náttúru
og bókmenntir, sem og til þjóðar-
innar. Efnismikil, kröftug og stund-
um ógnandi verk hans eru lík þeim
kynjamyndum sem oft má lesa úr
íslenskri náttúru. Hann tileinkaði
sér jafnframt meginstrauma alþjóð-
legrar listsköpunar og gaf henni
um leið íslenskt yfirbragð,“ segir í
tilkynningu.
Kröftugur Listhneigð nefnist þetta verk Ásmundar Sveinssonar frá árinu 1936.
Listhneigð Ásmundar Sveinssonar
Norska spunahljómsveitin Parallax
heldur þrenna tónleika á næstu
dögum, þá fyrstu annað kvöld kl. 20
í Hömrum á Ísafirði, aðra í Húsa-
fellskirkju 12. maí kl. 20 og þá
þriðju í Mengi, Óðinsgötu 2, 13. maí
kl. 20. Aðgangur er ókeypis á tón-
leikana á Ísafirði og Húsafelli en í
Mengi er aðgangseyrir 2.000 kr.
Hljómsveitina skipa Stian Omenås
á trompet og slagverk, Are Lothe
Kolbeinsen á gítar og mbira og Ul-
rik Ibsen Thorsrud sem leikur á
trommur, slagverk og sög.
„Parallax hefur frá stofnun sveit-
arinnar árið 2008 þróað með sér
einstakan stíl þar sem þeir blanda
saman mörgum hljóðum á þann
hátt að það hljómi sem einn hljóð-
gjafi. Tónlistin getur verið taktföst,
hávaðakennd eða jafnvel ljóðræn
og innhverf,“ segir í tilkynningu.
Hljómsveitin hafi fengið ýmis tón-
skáld og listamenn til samstarfs við
sig í gegnum tíðina og í Húsafelli
muni hún fá listamenn frá lista-
mannabúðunum í Fljótstungu til
liðs við sig. Í Mengi mun Hafdís
Bjarnadóttir, tónskáld og rafgít-
arleikari, leggja sveitinni lið.
Parallax heldur þrenna tónleika
Parallax Norsk spunahljómsveit.
Fyrsti íslenski sumarsmell-urinn er kominn í kvik-myndahúsin. GunnarHansson skrifaði hand-
ritið og settist í fyrsta sinn í leik-
stjórastólinn en hafði kempuna Dav-
íð Óskar Ólafsson sér til halds og
trausts í því starfi. Reyndar má
segja að þeir félagar hafi verið með
valinn mann í hverju rúmi við gerð
myndarinnar og útkoman er bæði
upplífgandi og skemmtileg.
Bakk segir af æskuvinunum Gísla
(Gunnar) og Viðari (Víkingur) sem
löngum hafa gengið saman gegnum
súrt og sætt. Þegar Gísli hefur mál-
að sig út í horn í höfuðstaðnum flýr
hann á heimaslóðir sínar, Hellis-
sand, og leitar ásjár vinar síns. Ör-
vænting Gísla gerir hann svo eirð-
arlausan að hann getur ekki hugsað
sér að staldra við og því linnir hann
ekki látum fyrr en hann hefur narr-
að heimakæran vin sinn með sér í
vanhugsaða vegferð um landið. Gísli
hefur ákveðið að þeir muni bakka
hringveginn og safna fé til styrktar
einhverju góðu málefni. Án frekara
vafsturs eru þeir lagðir í hann en
leiðin er seinfarin og vinirnir þurfa
að takast á við ára fortíðar, vinátt-
una og framtíðardraumana en um-
fram allt reyna að finna sig sjálfa.
Félagarnir eru afar ólíkir að eðlis-
fari og því skapast dýnamísk spenna
á milli þeirra. Gísli er sveimhugi
mikill sem hefur alltaf vaðið áfram
með sjálfhverfu skeytingarleysi.
Hann ætlar sér ekki að særa aðra
eða valda miska en leiðir heldur
aldrei hugann að afleiðingum gjörða
sinna. Viðar er aftur á móti með-
virka týpan sem axlar ábyrgð á feil-
sporum og fávitaskap vinar síns og
virðist því vera að bugast undan öll-
um heimsins byrðum. Sem betur fer
stekkur sólkysstur puttaferðalangur
óvænt upp í bílinn fljótlega eftir að
þeir leggja í hann. Blær (Saga) er
hressilega frjálsleg og hispurslaus
blaðurskjóða sem rýfur strax þrúg-
andi og staðnaða togstreituna sem
ríkir milli vinanna.
Persónur myndarinnar eru heil-
steyptar og mannlegar þótt þær séu
kannski svolítið einfaldar. Áhorf-
endur kannast við svona týpur og
geta því fundið til samkenndar með
þeim en það sem meira er þá geta
þeir óhikað hlegið dátt að óförum
þeirra og kjánaskap. Aukapersónur
á borð við FM-hnakkana sem Hall-
grímur Ólafsson og Ágústa Eva Er-
lendsdóttir ljá líf koma sterkar inn á
því sviði. Gísli og Viðar reyna að
kynna ferð sína og ræsa góðgerðar-
fjáröflunina með því að slá á þráðinn
í beina útvarpsútsendingu. Þeir
ramba í ólukku inn í þáttinn Dirty
Bitch þar sem Viðari verður á í
messunni þannig að kjaftfori þátta-
stjórnandinn stekkur upp á nef sér
og slær svo um sig með þversagna-
kenndum femínisma áður en hún
skellir á Viðar og setur lagið „I’m a
Slut“ undir geislann. Slík sjálfbirg-
ingsleg réttlætiskennd einkennir oft
íslenska þjóðarsál og ætti því að
geta kitlað hláturtaugar áhorfenda.
Það sama ætti sena með bifvéla-
virkjabræðrum leiknum af Þorsteini
Bachmann og Birgi Ísleifi Gunn-
arssyni að geta gert enda minna þeir
um margt á skyldleikaræktuðu
kaffibrúsakarlana sem löngum hafa
gert það gott.
Húmor myndarinnar er sem sagt
kaldhæðinn og vel kryddaður fim-
maurabröndurum en grínið keyrir
ekki um þverbak og dramatíkin
verður aldrei íþyngjandi. Handritið
er burðugt, samtölin lipur og aðal-
þríeykið rúllar sögunni vel upp með
góðum leik. Myndin skartar mörg-
um skotum af litla kaupleigubílnum
bakka bugðóttan þjóðveginn með
áferðarfögru panorama landslagi í
bakgrunni. Reynisdrangar taka sig
einstaklega vel út í einni slíkri senu.
Kvikmyndataka og myndvinnsla er
töfrandi því íslenskum veðrabrigð-
um með sínum skinum, skúrum,
dalalæðum og heiðríkjum er leyft að
njóta sín og tónlist Snorra Helga-
sonar giftist heildarþemanu vel.
Óendanleika slaufutáknið gefur
myndinni skemmtilegan merkingar-
auka. Gísli er með það húðflúrað inn-
anvert á annan úlnlið sinn. Í dul-
speki er þetta tákn oft spyrt við
ímynd forna ouroboros snáksins sem
bítur í skott sér. Hann er táknrænn
fyrir eilífa hringrás almennt og sér-
tækari sjálfskoðun einstaklinga sem
leitast við að samþætta sjálfsmynd
sína, sætta myrkar hliðar og bjartari
ásjónur. Aðalpersónur myndarinnar
komast að því á hringferð sinni að
öllum getur reynst hollt að eltast
stundum við skottið á sjálfum sér,
líta yfir farinn veg og gramsa svolít-
ið í pakkfullri huglægri farangurs-
geymslu sinni. Þessi slönguhringur
minnir áhorfendur einnig á gang
árstíðanna og að sumarið er á næsta
leiti. Lóan og fyrsti íslenski sumar-
smellur ársins eru loksins komin svo
nú mega grundirnar gróa og yggli-
brún landsmanna hýrna með hækk-
andi sól en þangað til hitastigið
hækkar geta landsmenn flykkst í bíó
og fengið sumarfíling myndarinnar
beint í æð.
Að bíta í skott sér og velta hringinn
Smárabíó, Háskólabíó, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri og
Sambíóin Keflavík
Bakk bbbbn
Leikstjórn: Gunnar Hansson og Davíð
Óskar Ólafsson. Handrit: Gunnar Hans-
son. Kvikmyndataka: Árni Filippusson.
Klipping: Valdís Óskarsdóttir. Aðal-
hlutverk: Gunnar Hansson, Víkingur
Kristjánsson og Saga Garðarsdóttir. 91
mín. Ísland, 2015.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYND
Húmor „Handritið er burðugt, samtölin lipur og aðalþríeykið rúllar sögunni
vel upp með góðum leik,“ segir m.a. í rýni um kvikmyndina Bakk.
ÍSLENSKT TAL
ÍSLENSKT TAL
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus