Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 14
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 Innifalið í verði hjá Úrvali Útsýn er flug, gisting, íslensk fararstjórn, flugvallaskattar, 20 kg ferðataska og handfarangur. BÓKAÐU Á FRÁBÆR U VERÐI! Þeir sem b óka ferð til Mallorca í maí fá frítt fyrir alla fjölsky lduna í Aqualand, á meðan birgðir end ast. ROC PORTONOVA Á SPÁNARDÖGUM: VERÐ:89.900 KR. 75.900 KR. 2.–9. júní Íbúð með 1 svefnherbergi Verðdæmi m.V. 4 manna fjölskyldu OPIÐ Í DAGKL.12–16 Það er um að gera að klára að skipuleggja sumarfríið með okkur sem allra fyrst því það selst upp í vinsælustu og ódýrustu ferðirnar okkar á skömmum tíma. Bókaðu sólríkt sumarfrí til MALLORCA, TENERIFE, COSTA BRAVA eða ALMERIA, sölumenn svara í símann og taka vel á móti viðskiptavinum í dag á milli kl. 12 og 16. FRÁBÆRT VERÐ TIL SPÁNAR! PORTO DRACH Á SPÁNARDÖGUM: VERÐ: 82.900 KR. 76.900 KR. 21.–28. júní Íbúð með 1 svefnherbergi Verðdæmi m.V. 4 manna fjölskyldu MALLORCA MA LLO RC A FENALS GARDEN Á SPÁNARDÖGUM: VERÐ: 96.900 KR. 84.900 KR. 12.–20. júní Tvíbýli + morgunmatur Verðdæmi m.V. 4 manna fjölskyldu LOS ALISIOS Á SPÁNARDÖGUM: VERÐ: 90.900 KR. 78.900 KR. 27. maí–3. júní Íbúð með 1 svefnherbergi Verðdæmi m.V. 4 manna fjölskyldu TENERIFE ARENA CENTER Á SPÁNARDÖGUM: VERÐ: 82.900 KR. 75.900 KR. 27. maí–3. júní Íbúð með 1 svefnherbergi 9.–16. júní Íbúð með 1 svefnherbergi ALMERIA CO STA BR AVA Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fólki finnst vænt um Fokkerinn, sterkbyggðar vélar sem hafa í gegn- um árin reynst frábærlega við ís- lenskar aðstæður. Að þær hafi þjón- að okkur í hálfa öld eru mikil tímamót og að sama skapi verður eftirsjá þegar vélunum verður skipt út fyrir nýjar innan tíðar,“segir Arnór Jónatans- son, stöðvarstjóri Flugfélags Ís- lands á Ísafirði. Rétt hálf öld er næstkomandi fimmtudag, 14. maí, síðan fyrsta vél Flugfélags Ís- lands af gerðinni Fokker F-27 Fri- endship kom til landsins. Þeirra tímamóta verður minnst með sam- komu á Reykjavíkurflugvelli næst- komandi miðvikudag. Blikfaxi og stórgróðamenn Það var snemma árs 1964 sem stjórn Flugfélags Íslands tók ákvörðun um kaup á Fokker F-27 Friendship sem komu í stað Dou- glas DC-3 Dakota, sem þá höfðu í áraraðir þjónað innanlandsfluginu. Við komu TF-FIJ, Blikfaxa, en svo hét vélin, var viðhöfn á Reykjavíkur- flugvelli. Nýir tímar voru runnir upp. Þáttaskil, sagði í auglýsingum og frásagnir blaða voru í þjóðhátíð- arstíl. Í leiðara Morgunblaðsins sagði að vélin nýja væri góður far- kostur sem myndi „færa þjóðina saman í þeim skilningi, að sigra fjar- lægðirnar … Þess vegna er komu hennar fagnað um allt land.“ Annars vakti ræða Arnar Ó. Johnson, forstjóra Flugfélags Ís- lands, við þetta tilefni mikla athygli. Þegar hér var komið sögu höfðu for- svarsmenn Loftleiða um nokkurt skeið reynt að komast til áhrifa og ítaka í FÍ með hlutabréfakaupum. Varaði Örn við því og kallaði keppi- nautana „stórgróðamenn“. Má segja að þarna hafi einna fyrst komið fram opinberlega átök milli félaganna, samkeppni sem átti eftir að harðna næstu ár. Þær ýfingar enduðu með sameiningu árið 1973. Úr urðu Flug- leiðir, nú Icelandair Group, sem er stærsta fyrirtæki landsins. Árið 1966 fékk FÍ aðra Fokker Friendship vél, TF-FIK – Snarfaxa – í útgerð sína. Á næstu 27 árum voru alls tólf vélar þessarar gerðar í flota félagsins, en þær voru - hver og ein - mislengi á skrá. Gekk rekst- ur vélanna vel og var í stórum drátt- um óhappalítill, ef frá er talið flug- slysið í Mykinesi í Færeyjum haustið 1970, þar sem átta manns fórust. Fjárfestu í framtíðinni Þrátt fyrir stofnun Flugleiða árið 1973, sem fyrr segir, var innan- landsflugið lengi eftir það rekið und- ir merkjum FÍ. Seinna var tekið upp nafnið Flugleiðir – innanlands, en með kaupum á Flugfélagi Norður- lands árið 1997 fór FÍ aftur í loftið. Fokker Friendship þóttu kosta- gripir, en svo fór að endurnýja þurfti flotann. Árið 1984 kom fram í Morgunblaðinu að sjónir Flugleiða- manna beindust einkum að vélum af gerðinni ATR 42 og Fokker 50. Síð- arnefnda gerðin var niðurstaðan. Endurnýjun millilandavéla Flug- leiða var þó tekin á undan, það er kaup á Boeing 757-200, en á þessum tíma var Leifsstöð á Keflavíkur- flugvelli nýlega komin í gagnið sem gaf tækifæri til að stokka upp leiða- kerfi félagsins, eins og þörf þótti á. En loks komu fjórir nýir Fokker- ar, sá fyrsti í beinu flugi frá verk- smiðjunum í Hollandi, sem lenti á Akureyri 15. febrúar 1992. Aftur voru tímamót. Nýrri vél var fagnað nyrðra. „Afbragðs gripir,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, í ávarpi og taldi kaupin góð. Þetta væri „fjárfesting í framtíðinni“ og til marks um að Flugleiðir hefðu sterka trú á framtíð öflugrar byggð- ar um landið allt, eins og hann komst að orði. Dýfur og ókyrrð en alltaf lent Það gildir um Fokker-vélarnar, það er bæði F-27 og 50, að þær hafa reynst vel. Stundum hafa sann- arlega komið dýfur og ókyrrð, bæði á flugi og í rekstri. Menn hafa samt aldrei misst tökin á stýrinu og alltaf náð inn á braut og lent mjúklega. Í dag er Fokker 50 notaður í flugi til og frá Reykjavík; til Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða. Einnig til áfangastaða á Grænlandi en umsvif FÍ þar í landi hafa jafnan verið um- talsverð. Eftir 23 ár í rekstri og með tilliti til breytinga í rekstrar- umhverfi hefur þó lengi legið fyrir að endurnýja þyrfti aftur flotann og ýmsir möguleikar í því efni verið skoðaðir. Það var svo nú á útmán- uðum sem kynnt var að Flugfélag Íslands myndi kaupa þrjár Bomb- Sjáðu Fokkerinn fljúga  Hálfrar aldar flugi fagnað  Fokker reynst vel  Fjar- lægðir sigraðar  Frænka Önundar kannski um borð Arnór Jónatansson Ljósmynd/Baldur Sveinsson Fánalitir Blikfaxi var fyrsti Fokkerinn á Íslandi, kom til landsins í maí 1965. „Í gegnum árin hafa Fokker-vélarnar reynst Íslendingum afar vel og mér lík- að vel að fljúga þeim. Lærði fljótt á eiginleika vélarinnar og vissi hvar þol- mörkin lágu,“ segir Gunnar Arthurs- son, fyrrverandi flugstjóri. Hann var meðal þeirra flugliða sem fengu þjálf- un og voru í fyrstu áhöfnum Fokker F-27 árið 1965. Var með hléum á vél- unum til 1986 og náði á þeim tæplega átta þúsund flugtímum á F-27. Fokker F-27-vélarnar þóttu á mælikvarða síns tíma vel útbúnar, voru með leiðsögutækjum og jafnþrýsti- búnaði sem gerði mögulegt að fljúga oftast ofar skýj- um og veðrum. „Tilkoma þessara tækja var algjör bylt- ing í innanlandsfluginu,“ segir Gunnar sem var flugstjóri í sögulegri ferð frá Ísafirði í 20. mars árið 1982. Þjöppudiskur í vinstri hreyfli brotnaði í tvennt, hlífar á hreyflinum sprungu af honum og eldur kom upp. Gunnar skrúfaði fyrir eldsneyti til hreyfilsins og slökkti þannig eldinn. Hjól vinstra megin festust uppi og var því afráðið að fljúga suður til Keflavíkur og nauðlending þar tókst giftusamlega. Atvikið vakti þjóðarathygli á sínum tíma og þá ekki síst mikið snarræði flugstjórans. „Þegar ég var í þessu var innanlandsflugið með allt öðrum brag en nú. Návígið við fólkið var meira og flogið var til ýmissa staða sem nú eru löngu dottnir út, svo sem Patreksfjarðar, á Sauðárkrók, Húsavík, Norðfjörð, til Hafnar og Vestmannaeyja,“ segir Gunn- ar sem enn er viðloða flugið þó hann sé löngu hættur formlegum störfum sakir aldurs. Þetta var algjör bylting í innanlandsfluginu ÁTTI SÖGULEGAN FERIL OG NÁÐI 8.000 FLUGTÍMUM Á FOKKER F-27 Gunnar Arthursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.