Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 6
Melgresið forsenda byggðar „Okkur finnst þetta vera alvarleg þróun,“ sagði Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri um sandfokið úr fjörunni milli Þorlákshafnar og Óseyrarbrúar. Hann sagði að þarna væru að verki náttúrulegir ferlar sem tengist melgresinu. „Melgresið safnar í sig gríð- armiklum sandi sem kemur upp úr fjörunni. Svo virðist að þegar kamburinn verður of hár fari hann að rofna. Smátt og smátt lækkar hann en á meðan fýkur þessi mikli sandur inn á landið. Þar getur hann valdið skaða, sér í lagi á golfvellinum. Golfvöllurinn getur eyðilagst verði ekkert að gert,“ sagði Sveinn. Hann sagði að engin önnur jurt en melgresi lifði í þessum sandi. Sveinn sagði mjög dýrt að grípa til stórtækra að- gerða eins og að slétta úr hól- unum sem standa upp úr kamb- inum og sá þar melgresi. „Þessi kambur er einstakur. Ég veit ekki til þess að annar svona kambur sé nokk- urs staðar til í heiminum. Hann er eingöngu byggður upp af melgresi,“ sagði Sveinn. Byrjað var að sá melgresi á þessum slóðum árið 1953. Melfræ fór svo að sá sér í fjöruborðinu. Melgresið safnaði í sig milljónum tonna af sandi sem hefðu annars fokið inn á landið. „Við skulum hafa í huga að byggð- in í Þorlákshöfn og útgerð þar á tilurð sína melgresinu og starf- semi Landgræðslunnar að þakka,“ sagði Sveinn. Hann sagði menn hafa velt því fyrir sér hvort áfokið sem varð í vetur vestan við Óseyrarbrú, í Vogsósum og einnig í Vík í Mýrdal benti til þess að óvenjumikill sand- ur hefði verið á ferðinni í sjónum með suðurströndinni. Það kynni líka að skýra þá erfiðu stöðu sem verið hefði vegna sandburðar í og við Landeyjahöfn. Sveinn sagði ekki hægt að staðfesta þessar get- gátur, en víst væri að ástandið hefði verið óvenjuslæmt í vetur. Sveitarstjórn Ölfuss var nýlega á fundi hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. Sveinn sagði að þá hefði verið ákveðið að boða til samráðsfundar um þetta vanda- mál. Þangað verða fulltrúar sveit- arstjórnar Ölfuss, Landgræðsl- unnar, Vegagerðarinnar og hugsanlega fleiri boðaðir. Þar verður lagt á ráðin um hvar á svæðinu hinir náttúrulegu ferlar fái að halda áfram óáreittir og hvort gerlegt sé að grípa til að- gerða til að verja golfvöllinn. Sveinn sagði að fundurinn yrði haldinn eftir hvítasunnu. Sveinn Runólfsson  Landgræðslan boðar til samráðsfundar um sandfokið 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015 Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn þann Skráning og dagskrá á www.hjukrun.is. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Aðalfundur 2015 18. maí kl. 13:00-16:30 á Grand Hótel Reykjavík Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gríðarmikill foksandur barst í óveðrunum í vetur úr fjörunni milli Óseyrarbrúar og Þorlákshafnar. Sandfokið ógnar nú gróðurlendi og golfvelli Þorlákshafnar. Verði fram- rás sandsins ekki stöðvuð gæti hann einnig farið að ógna byggðinni í Þor- lákshöfn, að mati Sigurðar Jóns- sonar, skipulags- og byggingarfull- trúa Sveitarfélagsins Ölfuss. Morgunblaðsmenn fóru að skoða sandfokið ásamt Ingólfi Arnarsyni hjá Arctic Bird Eye. Hann var með fjarstýrða þyrlu (dróna) með myndavél til að mynda sandskafl- ana. Ingólfur stýrði drónanum og Ragnar Axelsson ljósmyndari stjórnaði myndavél drónans. Af- raksturinn sést á meðfylgjandi mynd og eins í myndskeiði á mbl.is. Mikill sandur safnaðist að veg- inum vestan Óseyrarbrúar sem er uppbyggður. Sums staðar hefur hæðarmunur vegarins og landsins umhverfis minnkað. Í vetur mynd- uðust oft sandskaflar á veginum. Þegar foksandurinn blandaðist snjó eða bleytu myndaðist sleip sandeðja. Sigurður sagði að það hefði komið fyrir að bílstjórar misstu stjórn á bíl- um í sandeðjunni og bílarnir oltið. Eins og skörðóttur tanngarður Á sínum tíma var sáð melgresi of- an við fjöruna til að hefta sandfokið. Sandurinn settist í melgresið og smátt og smátt byggðist upp kamb- ur sem veitti mikla vörn gegn sand- fokinu. Nú hefur kamburinn rofnað víða og er orðinn líkastur skörð- óttum tanngarði. Sandurinn veður óheftur í gegnum skörðin og sest í grónar dældir. Sigurður sagði brýnt að laga rofabörðin, sá melgresi og styrkja þannig kambinn. „Það að fá svona öflugan sand yfir sig er ekki síður ógn og náttúruvá en ofanflóð geta verið. Ef sandurinn nær yfirhöndinni fer hann að rjúka eins og í gamla daga. Í Þorlákshöfn er mikil matvælaframleiðsla og það er vont þegar sandurinn fýkur inn á plönin hjá matvælafyrirtækjunum.“ Sigurður sagði að sandfok hefði eytt byggð í Selvogi á 18. öld. Víð- isandur tekur við vestan við Vogsósa og þar skapar sandurinn einnig ógn og er við það að ná yfirhöndinni. Þar er hætta á að myndist sannkallaðir sandstormar. Sigurður sagði að Sveitarfélagið Ölfus, Landgræðslan og Vegagerðin þyrftu að sameinast um að bregðast við sandfokinu sem nú ógnar þjóð- veginum, golfvellinum, gróðrinum og byggðinni í Þorlákshöfn. Morgunblaðið/Arctic Bird Eye/RAX Sandur Myndin er tekin skammt austan við Óseyrarbrú. Greinilega sést hvernig kamburinn hefur rofnað þar sem melgresið hefur gefið eftir. Stórviðrin í vetur báru mikinn sand úr fjörunni sem fauk í gegnum skörðin. Hann settist í grónar dældir sem nú eru fullar af sandi og fauk einnig inn á golfvöllinn Þorláksvöll. Byggðin í Þorlákshöfn, sem er í baksýn, er í hættu verði ekkert að gert. Óvenju mikið sandfok í vetur  Kamburinn sem melgresið byggði upp hefur víða rofnað  Aðgerða er þörf til að stemma stigu við sandfokinu Mikill sandur barst inn á Þorláks- völl, 18 holu strandvöll Golfklúbbs Þorlákshafnar, í vetur. „Á þessu ári höfum við þurft að handmoka sandi af brautunum meðfram sjónum,“ sagði Guð- mundur Baldursson, formaður Golfklúbbs Þorlákshafnar. Sandur sem var mokað af bílaplaninu við klúbbhúsið fyllti tvo malarvagna. Ákveðið var fyrir nokkru að leggja af tvær brautir m.a. vegna sandburðar. Verið er að byggja upp tvær nýjar brautir í staðinn. „Sandfokið var óvenjumikið í vetur. Það komu verri veður og oftar en venjulega. Fyrir nokkrum árum var sett grjótvörn í fjörunni hér fyrir framan. Ég held að þetta hefði verið miklu verra í vetur hefði grjótvörnin ekki verið,“ sagði Guðmundur. Hann telur að besta leiðin til að hefta sandfokið sé að efla gróðurinn með áburðargjöf og sáningu melgresis. Sandurinn sækir á golfvöllinn ÞURFTU AÐ HANDMOKA SANDI AF BRAUTUM NÆST SJÓNUM Formaður Golfklúbbs Þorláks- hafnar Guðmundur Baldursson Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.