Morgunblaðið - 09.05.2015, Side 43
æfði handbolta í Val fram á unglings-
árin því þótt Víkingur hefði verið
hverfisliðið var faðir hennar formaður
Vals um tíma og því lá leiðin þangað.
Hún renndi sér einnig ósjaldan niður
brekkur Bláfjalla eftir skóla og í öðr-
um frítíma á vetrum. Þá tók við
skátafélagið Garðbúar og útilegur í
góðra vina hópi. Hún hittir enn gömlu
skátavinkonurnar.
Námsferill
Sif var í Fossvogsskóla, opnum til-
raunaskóla sem lagði áherslu á sjálf-
ræði og sköpun og að nemendur lykju
sínum verkefnum á eigin hraða. Hún
fór síðan í Réttarholtsskóla og lauk
stúdentsprófi frá MS 1984.
Sif sótti nokkur námskeið í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur, fór í skúlptúr-
deild Myndlista- og handíðaskólans
og útskrifaðist þaðan 1991. Hún hóf
síðan nám í gullsmíðaháskóla í Lahti í
Finnlandi og lauk þaðan gullsmíða-
námi 1996.
Starfsferill
Að loknu gullsmíðanáminu starfaði
Sif við heildverslunina sem faðir
hennar starfrækti á þeim tíma. Hún
leigði jafnframt vinnustofu og smíðaði
skartgripi í frítímanum, fékk að hafa
þá til sölu hjá Ófeigi gullsmið á Skóla-
vörðustíg og starfaði skamma hríð hjá
Önnu Maríu gullsmið á Skólavörðu-
stíg, Jóhannesi Leifssyni á Laugavegi
og Jóni Tryggva Þórssyni í Hafnar-
firði.
Móðir Sifjar er textíllistakona og
árið 2002 opnuðu þær litla skartgripa-
verslun og verkstæði á Skólavörðu-
stíg 17b en þar eru einnig haldnar litl-
ar listsýningar af hinum ýmsu
listamönnum, þekktum og minna
þekktum: „Við nefndum verslunina
Hún og hún en þar er auðvitað vísað í
okkur mæðgur. Mamma vann mikið
úr hrosshári og ull og ég var í eðal-
málmunum en hef samt alltaf verið
dugleg að nota óhefðbundin efni með
svo sem ull og bílrúðu. Ég rek ennþá
verslunina en mamma er hætt dag-
legum rekstri og kemur núna í kaffi
með pabba sem er alltaf notalegt.“
Sif hélt samsýningu með móður
sinni í Stöðlakoti á Bókhlöðustíg 1998
en þær voru þá tilnefndar til Menn-
ingarverðlauna DV og fóru með sýn-
inguna til Helsinki árið eftir.
Árið 2000 hélt Sif samsýningu með
eiginmanni sínum hjá Ófeigi og hefur
síðan sýnt á fjölmörgum samsýn-
ingum, einkum á vegum Félags
íslenskra gullsmiða.
Sif prjónar og hefur áhuga á gróð-
urrækt. Í jólafríum púslar hún af
kappi og hefur alltaf verið gefin fyrir
þrautir á borð við krossgátur og
sudoku. Hún var í leikfimi í Kramhús-
inu, æfði karate í tvö ár og hefur að
undanförnu æft magadans í Kram-
húsinu, en með hléum þó.
Fjölskylda
Eiginmaður Sifjar er Helgi Frið-
jónsson, f. 1.9. 1959, skiltagerðar-
maður og listamaður. Foreldrar hans:
Ásthildur Kjartansdóttir, f. 14.3. 1940,
kennari, og Friðjón Guðmundur
Snorrason, f. 1.4. 1937, d. 13.3. 1959.
Stjúpfaðir Helga er Örnólfur Hall, f.
2.12. 1936, arkitekt.
Börn Sifjar og Helga eru Hekla
Helgadóttir, f. 7.3. 1991, háskólanemi í
tölvunarfræði í London en maður
hennar er Tim Donovan tölvunar-
fræðingur og Nökkvi Helgason, f.
21.7. 1998, nemi í tölvutækni í Tækni-
skólanum.
Stjúpdóttir Sifjar er Melkorka
Helgadóttir, listamaður og kennari í
New York.
Systkini Sifjar eru Þór Ægisson, f.
22.8. 1954, kvikmyndatökumaður hjá
RÚV í Reykjavík; Snorri Ægisson, f.
21.3. 1960, grafískur hönnuður í
Reykjavík, og Guðrún Ægisdóttir, f.
12.11. 1972, landfræðingur í Reykja-
vík.
Foreldrar Sifjar eru Ægir Hafstein
Ferdinandsson, f. 5.7. 1934. kaup-
maður, og Guðrún Auður Marinós-
dóttir, f. 6.2. 1935, textílhönnuður. Þau
búa í Reykjavík.
Úr frændgarði Sifjar Ægisdóttur
Sif
Ægisdóttir
Sigrún Eiríksdóttir
kennari í Reykjavík
Ólafur Þorvaldsson
alþingisvörður og rithöfundur
Anna Katrín Ólafsdóttir
húsmóðir
Marinó Guðmundsson
starfsmaður Rafmagnsveitunnar
Guðrún Auður Marinósdóttir
textíllistakona í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir
Guðmundur Björnsson
bóndi og sjómaður í Bakkagerði í Borgarfirði eystra
Guðfinna
Lýðsdóttir
húsmóðir í
Reykjavík
Már Jóhannsson skrifstofustjóri
hjá Sjálfstæðisflokknum
Sigríður Skagfjörð
húsmóðir í Reykjavík
Guðlaug Skagfjörð
húsmóðir á Englandi
Valgeir Skagfjörð
tónlistarmaður
Kristín Hallvarðsdóttir
húsmóðir
Lýður Illugason
bóndi á Skógarströnd
Bára Lýðsdóttir
húsmóðir
Ferdinand Hafstein Jóhannsson
skrifstofumaður á Manntalinu
Ægir Hafstein Ferdinandsson
kaupmaður í Reykjavík
Guðlaug Árnadóttir
húsmóðir
Jóhann Hafsteinn Jóhannsson
forstöðumaður Manntalsins
Helgi Hallvarðsson skipherra
hjá Landhelgisgæslunni
Guðmundur Hallvarðsson
fv. alþingismaður
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2015
Doktor
95 ára
Sigfríður Nieljohníusdóttir
85 ára
Ólafía Albertsdóttir
80 ára
Árndís Fríða Kristinsdóttir
Eygló Svava Jónsdóttir
Hjörtur Vilhjálmsson
Ingilaug Guðmundsdóttir
Turid Hagerup Erlendsson
75 ára
Hrafn Vestfjörð Friðriksson
Ómar Ingi Ólafsson
70 ára
Eiríka Urbancic
Guðmundur Þórðarson
Kristín Sigríður
Þórðardóttir
Sigrún Inga
Hólmsteinsdóttir
60 ára
Arndís Bernharðsdóttir
Álfhildur Þormóðsdóttir
Áslaug Björg Viggósdóttir
Bjarni Skarphéðinn
G. Bjarnason
Einar Árnason
Hafsteinn Emilsson
Ingi Þór Guðmundsson
Jóhann Guðmundur
Jóhannsson
Jón Yngvi Ástráðsson
Katrín Fjeldsted Jónsdóttir
Kristján O Þorgeirsson
Ólafur S Kristmundsson
Pétur Ágúst Hermannsson
Sigurður Leifsson
50 ára
Arnheiður Edda Rafnsdóttir
Birgir Þór Sigurðsson
Björn Björnsson
Christine Carr
Hulda Ástvaldsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
Magnea Bergvinsdóttir
Ragnhildur Halldórsdóttir
Sigmar Steingrímsson
Sólveig Ómarsdóttir
Steina Guðrún Harðardóttir
Þórdís María Jónsdóttir
40 ára
Flóki Ingvarsson
Heiðrún Hjaltadóttir
Hjörleifur Bjarki
Kristjánsson
Jóhann Sigurðsson
Kristín Hrund Whitehead
Leopold Julian V. Broers
Mateusz Piotr Czubaj
Pawel Marian Wojtal
Snorri Steinn Þórðarson
30 ára
Agnar Freyr Gunnarsson
Anna Sigurðardóttir
Atli Arnar Sigurðsson
Auður Gestsdóttir
Birgir Fannar Reynisson
Björn Steinar Pálsson
Grace Achieng Odhiambo
Hanna S Hálfdanardóttir
Hilmar Gunnarsson
Ívar Sveinbjörn Schram
Margrét Hauksdóttir
Margrét Ýr Ingimarsdóttir
María Björk Ásgeirsdóttir
Olegs Titovskis
Ólafur Björgvin
Hermannsson
Ólafur Haraldsson
Ragnar Trausti Ragnarsson
Remigiusz Bzdel
Sveinn Frímann Ágúst
Birgisson
Þorkell Stefánsson
Sunnudagur
90 ára
Guðlaug Karlsdóttir
Ingibjörg Bjarnadóttir
85 ára
Arnór Jóhannesson
Jóna Björg Georgsdóttir
Jón Bárðarson
80 ára
Hannes Benediktsson
Karl Jósefsson
Svava Leifsdóttir
75 ára
Cerime Zogaj
Friðleifur Björnsson
Jórunn H Bergmundsdóttir
Kristjana Magnúsdóttir
70 ára
Hannes G. Thorarensen
Jónína Kristveig
Ketilsdóttir
Kristín María Eggertsdóttir
Lovísa Sigrún Snorradóttir
Markús Guðbrandsson
Ólafur Ólafsson
Sigurbjörg Þórðardóttir
Sigurður Ingi
Guðmundsson
Sigurlaug R.
Guðmundsdóttir
60 ára
Aðalheiður Þórarinsdóttir
Bragi Guðmundsson
Gylfi Bjarnason
Kristín M. Einarsdóttir
Laufey Sigurðardóttir
Pálína Hrönn Skjaldardóttir
Sævar Gestur Jónsson
50 ára
Aðalheiður G.
Sigurjónsdóttir
Hallgrímur Blöndal
Gunnarsson
Lilja Ægisdóttir
Nelson Bierneza Baldelovar
Sverrir Karlsson
40 ára
Ágúst Valgarð Ólafsson
Birkir Halldórsson
Björgvin Þór Harðarson
Miroslaw Robert Margol
Ólafur Hafliðason
Ólafur Rúnar Ólafsson
Óli Halldórsson
Rúna Dögg Cortez
Sigurmundur Páll Jónsson
Tomasz Grzegorczyk
Þröstur Bragason
30 ára
Andri Már Númason
Ágúst Guðmundsson
Dagný Ósk Aradóttir Pind
Edda Doris Meyer
Erna Ýr Zak
Guðmundur Pétur Ólafsson
Ingunn Valdís Baldursdóttir
Iwona Graff
Kamil Wójcik
Margrét Hallgrímsdóttir
Nareerat Nuatnao
Sigurlaug María
Hreinsdóttir
Skúli Á Sigurðsson
Tinna Tho Bui
Þór Snorrason
Til hamingju með daginn
Ester Rut Unnsteinsdóttir hefurvarið doktorsritgerð sína í líf-fræði við HÍ. Hún ber heitið Ís-
lenska hagamúsin – Apodemus syl-
vaticus: stofnbreytingar og tak-
markandi þættir á norðurmörkum
útbreiðslu.
Hagamúsin er kjörin til rannsókna á
takmarkandi þáttum og stofnvistfræði
á nyrstu mörkum útbreiðslu. Haga-
músin barst til Íslands með fyrstu
landnámsmönnum en landið liggur
norðar en náttúruleg mörk tegund-
arinnar og engin önnur nagdýr eru
jafnútbreidd í villtri náttúru landsins.
Markmið rannsóknarinnar var að
kanna hvaða þættir hafa áhrif á stofn-
vistfræði íslensku hagamúsarinnar.
Hún leiddi í ljós sterkar vísbendingar
um að hagamúsastofninn á Kjalarnesi
takmarkaðist óháð þéttleika. Í skóg-
lendinu á Mógilsá voru hins vegar
þéttleikaháðir þættir líklegri til að ráða
stofnstærð hagamúsa eins og þekkt er
á svæðum nær miðju útbreiðslu-
svæðis tegundarinnar í Evrópu. Sam-
anburður þessara tveggja búsvæða
sýnir að skóglendið er langtum hag-
stæðara fyrir hagamýs en túnin á Kjal-
arnesi. Í skóginum er þéttleikinn mun
meiri, lífslíkur eru óháðari veðri, stöð-
ugri líkamsþyngd er meiri og fæða
hugsanlega betri. Á vorin og fyrri hluta
sumars reyndist afar erfitt að veiða
nógu margar mýs til að geta metið
stofnstærð og fyrir aðra tölfræðilega
úrvinnslu. Um haustið veiddist hins
vegar vel af músum á öllum aldri. Þar
sem stofnmatið er byggt á veiðigögn-
um sem svo erfitt reynist að ná þegar
stofninn er lítill að vori var þróuð ný
aðferð til að leysa vandann. Með þess-
ari leið tókst að sýna fram á stofnvöxt
um 100 dögum fyrr en hægt var með
hefðbundnum stofnvistfræðilegum
aðferðum. Þessi rannsókn hefur sýnt
fram á að hægt er að nota gögn úr líf-
gildruveiðum frá tímabilum þegar vel
veiðist til að meta stofna smárra nag-
dýra á tímabilum þegar lítið veiðist.
Ester Rut Unnsteinsdóttir
Ester Rut Unnsteinsdóttir lærði tækniteiknun og lauk stúdentsprófi frá FG 1994
og B.Sc.-prófi í líffræði frá HÍ 1999. Eftir það starfaði Ester sem náttúrufræði-
kennari og lauk kennslufræði á framhaldsskólastigi við Kennaraháskóla Íslands
vorið 2005. Haustið 2007 stofnaði hún, ásamt samstarfsaðilum, Melrakkasetur
Íslands ehf. og starfaði þar sem forstöðumaður þar til 2013. Hún gegnir nú starfi
spendýravistfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Ester Rut er gift Þóri
Sigurhanssyni og eiga þau tvær dætur, fæddar árin 1989 og 1995.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18, laugard. kl. 11-14.
Gorenje tvöfaldur kæliskápur
• Flýtilúga
• Vatns- og klakavél
• Sjálfvirk afþýðing
Gorenje vínkælir
• 48 flöskur
• Hitastig 5-15°c
Gorenje
Innbyggiofn
• Hraðhitun
• Kjöthitamælir
• Útdraganlegar brautir
• Ljúflokun
Asko Uppþvottavél
• Lengri líftími
• Stál sprautuspaðar
• Mjög hljóðlát
Gorenje Combiofn
• Örbylgjur
• Heitur blástur
• Grill
heildarlausnir fyrir heimilið