Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 6

Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 6
FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 6 ið á braut eins og Ólafur Páll Snorra- son, Hólmar Örn Rúnarsson, Ingi- mundur Ingimundarson og Emil Pálsson, svo einhverjir séu nefndir, en þeir leikmenn sem FH-ingar hafa fengið í þeirra stað eru engir aukvisar. Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guð- mann Þórisson eru gæða leikmenn og Guðmann hefur sjaldan spilað betur en hann gerði í svart/hvíta búningnum en miðvörðurinn sterki er aftur kom- inn í FH eftir stutta dvöl í Svíþjóð. Belginn Jeremy Serwy og Senegalinn Amath André Diedhiou eru góð viðbót í góðan hóp FH og þá verður fróðlegt að sjá hvort Bjarni Þór Viðarsson nær að endurlífga sinn feril en hann hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár þar sem meiðsli hafa sett strik í reikn- inginn. Talandi um meiðsli þá er Sam Tillen mættur aftur til leiks en hann missti úr allt síðasta tímabil eftir að hafa fótbrotnað á undirbúnings- tímabilinu. Fáir efast um getu Tillens og hans spyrnuhæfileika en það getur verið erfitt að komast í gang eftir erfið meiðsli og líklega mun það taka bak- vörðinn einhvern tíma að komast í al- mennilega leikæfingu. Síðasta púslu- spilið hjá Heimi hvað leikmannahópinn varðar var hinn ungi Kristján Flóki Finnbogason og sumir hafa haldið því fram að ungi framherj- inn geti sprungið út í sumar. Altént eru hæfileikarnir til staðar en sam- keppnin um framherjastöðurnar er hörð. Það er valinn maður í hverju rúmi í liði FH allt frá markverði til fremsta manns og ekki auðvelt fyrir þjálf- arann að velja þá 11 bestu hverju sinni. Jákvæður höfuðverkur fyrir þjálfarann kunna margir að segja en víst er að nokkur pressa verður á manninum í brúnni í ár enda krafa forráðamanna félagsins og stuðnings- manna að landa þeim stóra í haust. Allt annað en titill vonbrigði Morgunblaðið/Eggert Fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson er þrautreyndur og lykilmaður á miðjunni hjá FH-ingum. Hann tók við fyrirliðastöðunni af Ólafi Páli Snorrasyni. Leikmenn árið 2015 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Róbert Örn Óskarsson 1987 42 0 0 ÍR ‘12 12 Kristján Finnbogason 1971 268 0 20 Fylki ‘14 Markverðir 4 Samuel Tillen 1985 118 6 0 Fram ‘13 5 Pétur Viðarsson 1987 105 3 0 *Víkingi R. ‘09 15 Guðmann Þórisson 1987 83 8 1 Mjällby ‘15 16 Jón Ragnar Jónsson 1985 77 1 0 Þrótti R. ‘10 19 Viktor Helgi Benediktsson 1998 0 0 0 20 Kassim Doumbia 1990 18 4 0 Waas.-Beveren‘14 21 Böðvar Böðvarsson 1995 12 0 0 23 Brynjar Á. Guðmundsson 1992 26 3 0 26 Jonathan Hendrickx 1993 11 0 0 FortunaSittard‘14 30 Hörður Ingi Gunnarsson 1998 0 0 0 Varnarmenn 6 Sam Hewson 1988 71 2 0 Fram ‘14 10 Davíð Þór Viðarsson 1984 141 8 8 Vejle-Kolding ‘13 13 Bjarni Þór Viðarsson 1988 0 0 1 Silkeborg ‘15 24 Grétar Snær Gunnarsson 1997 0 0 0 27 Baldur Búi Heimisson 1997 0 0 0 29 Eggert Georg Tómasson 1996 0 0 0 Leiknir F. ‘15 Miðjumenn 7 Steven Lennon 1988 47 19 0 Sandnes Ulf ‘14 9 Þórarinn Ingi Valdimarsson 1990 86 18 3 ÍBV ‘15 11 Atli Guðnason 1984 178 53 3 *Fjölni ‘06 17 Atli Viðar Björnsson 1980 205 98 4 *Fjölni ‘08 18 Kristján Flóki Finnbogason 1995 2 0 0 FC Köbenhavn‘15 22 Jérémy Sewry 1991 0 0 0 Ujpest ‘15 25 Amath Diedhiou 1989 0 0 0 SheriffTiraspol‘15 28 Sigurður Gísli Snorrason 1995 0 0 0 Sóknarmenn  FH-ingar enn með óbragð í munni  Stór og sterkari leikmannahópur FH Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is FH-ingum svíður enn sárt tapið gegn Stjörnunni í hreinum úrslitaleik Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð í einum mest spennandi og drama- tískum leik í manna minnum á Ís- landsmótinu. Annað tímabilið í röð enduðu FH-ingar með engan stóran titil í höndunum, eitthvað sem menn sætta sig ekki við á þeim bænum. Einn tapleikur í 22 leikjum á mótinu kom í veg fyrir að FH hampaði Ís- landsmeistaratitlinum sem verður að teljast með nokkrum ólíkindum. Ellefu tímabil í röð hefur FH ekki endað neðar en í öðru sæti og Ís- landmeistaratitlar Hafnarfjarðarliðs- ins telja sex talsins frá því fyrsti vannst á Akureyrarvelli á haustdög- um árið 2004. Búið að fylla vel í skörðin Með hálftgert óbragð í munni eftir niðurstöðu síðasta tímabils er alveg ljóst hvað FH-ingar ætla sér í ár. Þeir ætla að hrifsa titilinn stóra úr hönd- um granna sinna úr Garðabænum og hafa gefið skýr skilaboð um það með þeim leikmannahópi sem þeir hafa sett saman fyrir leiktíðina. Heimir Guðjónsson hefur náð að fylla vel í skörðin og leikmannahópur FH- liðsins er öflugur þar sem breiddin er mikil og sigurvegararnir margir. FH verður klárlega í titilbaráttu í sumar eins og síðasta áratuginn. Allt annað kæmi mjög á óvart. Breytingarnar á Hafnarfjarðalið- inu hafa orðið töluverðar á milli ára en þegar á hólminn er komið ætti FH-liðið að mæta sterkara til leiks í ár heldur en í fyrra. Vissulega hafa góðir og reynslumiklir leikmenn horf- Heimir Guð- jónsson er áfram í brúnni hjá FH- ingum en hann hefur verið að- alþjálfari FH- liðsins frá haust- dögum 2007 eftir að hafa verið að- stoðarmaður Ólafs Jóhann- essonar tvö tíma- bil og leikmaður liðsins þar áður. Undir stjórn Heimis hafa FH- ingar hampað þremur Íslandsmeist- aratitlum, einum bikarmeistaratitli og tvisvar sinnum hefur hann stýrt liðinu til sigurs í deildabikarnum. Guðlaugur Baldursson er hægri hönd Heimis líkt og síðustu tímabil en hann hefur þjálfað hjá FH um langt árabil og þjálfaði einnig lið ÍR í nokkur ár. Róbert Örn Óskarsson er að- almarkvörður liðsins. Traustur og góður markvörður þar á ferð sem fékk á sig fæst mörk allra mark- varða í Pepsi-deildinni á síðustu leik- tíð. Honum til trausts og halds er „gamli maðurinn“ og reynsluboltinn Kristján Finnbogason. Það er gott mannval hvað varn- arstöðurnar varðar. Malímaðurinn Kassim Doumbia byrjar mótið í fjögurra leikja banni en á meðan munu Pétur Við- arsson og Guð- mann Þórisson skipa miðvarð- arstöðurnar. Jo- nathan Hend- rickx og Jón Ragnar Jónsson eru valkostirnir í hægri bakvarð- arstöðuna og vinstra megin þeir Sam Tillen og Böðvar Böðvarsson en Hendrickx getur einnig leyst þá stöðu. Brynjar Ásgeir Guðmunds- son er einnig til staðar. Fjölhæfur leikmaður þar á ferð sem getur spil- að sem miðvörður, bakvörður eða á miðjunni. Davíð Þór Viðarsson, Sam Hew- son og Bjarni Þór Viðarsson verða í hlutverkum á miðri miðjunni og þar getur líka leikmaður eins og Böðvar Böðvarsson látið ljós sitt skína. Steven Lennon og markvélin Atli Viðar Björnsson koma til með að spila í fremstu víglínu og þá er Kristján Flóki Finnbogason til stað- ar í þeirri stöðu en hann getur líka spilað sem kantmaður. Atli Guðnason verður líklegast mest í „holunni“ góðu en getur líka brugðið sér á kantana og spilað sem fremsti maður ef því er að skipta. Þórarinn Ingi Valdimarsson, Belg- inn Jérémy Serwy og Sengalinn Amath Diedhiou eru góðir kostir í kantstöðunum en þeir geta líka hæg- lega skellt sér á miðjuna. Eins og sést á þessu verður varamannabekk- urinn oft vel skipaður. FH Heimir Guðjónsson Guðmann Þórisson KOMNIR: Bjarni Þór Viðarsson frá Silkeborg (Danmörku) Eggert G. Tómasson frá Leikni F. Guðmann Þórisson frá Mjällby (Svíþjóð) Jérémy Sewry frá Újpest (Ung.) Kristján Flóki Finnbogason frá FC Köbenhavn (Danmörku) Þórarinn Ingi Valdimarsson frá ÍBV FARNIR: Ási Þórhallsson í Sindra Emil Pálsson í Fjölni (lán) Guðjón Árni Antoníusson í Keflavík Hólmar Örn Rúnarsson í Keflavík Indriði Áki Þorláks. í Keflavík (lán) Ingimundur Níels Óskarsson í Fylki Ingvar Ásbjörn Ingvarsson í Fjarðabyggð (lán) Kristján P. Þórarinss. í Vík. Ó. (lán) Ólafur Páll Snorrason í Fjölni Sean Reynolds í Louisville (Band.) Breytingar á liði FH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.