Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 24
ÍBV
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Eftir vonbrigðatímabil í fyrra sem
litlu munaði að endaði með falli niður
í 1. deild, vilja Eyjamenn gera betur í
sumar. Miklar breytingar hafa hins
vegar orðið á ÍBV-liðinu auk þess
sem nýtt þjálfarateymi er tekið til
starfa og því erfitt að staðsetja það á
spákortinu nú þegar tímabilið er að
hefjast.
Eyjamenn þurftu að bíða fram í júlí
með að fagna sínum fyrsta sigri í
Pepsi-deildinni í fyrra, á fyrsta og
eina tímabili sínu undir stjórn Sig-
urðar Ragnars Eyjólfssonar sem
hætti um haustið. Sætið var ekki
öruggt fyrr en í næstsíðustu umferð
og á endanum var ÍBV einu stigi frá
fallsæti. Sú niðurstaða var í hróplegu
ósamræmi við árangur áranna þar á
undan en árið 2013, undir stjórn Her-
manns Hreiðarssonar og David
James, varð liðið í 6. sæti, og árin
2010-2012 hlaut ÍBV bronsverðlaun á
hverju tímabili, undir stjórn Heimis
Hallgrímssonar landsliðsþjálfara sem
hafði stýrt liðinu aftur upp úr 1. deild
árið 2008.
Jóhannes kom frá Noregi
ÍBV varð síðast Íslandsmeistari ár-
ið 1998, landaði þá titlinum annað árið
í röð, eftir að hafa fyrst orðið meistari
árið 1979. Fátt bendir til þess að liðið
keppi um titilinn í ár en Eyjamenn
horfa til uppbyggingar á næstu árum
undir handleiðslu Skagamannsins Jó-
hannesar Harðarsonar sem er snúinn
aftur til landsins frá Noregi. Jóhann-
es valdi Tryggva Guðmundsson sér
til aðstoðar, sem er auðvitað öllum
hnútum kunnugur í Eyjum, en báðir
voru afar sigursælir sem leikmenn og
léku fyrir landsliðið. Jóhannes hafði
áður stýrt Flekkeröy frá árinu 2010 í
norsku C-deildinni, með fínum ár-
angri. Hvort tvíeykið hafi það sem til
þarf til að stýra liði í rétta átt í Pepsi-
deildinni þarf hins vegar að skýrast.
Ný varnarlína
Varnarlína skipuð Matt Garner,
Eiði Aroni Sigurbjörnssyni, Brynjari
Gauta Guðjónssyni og Arnóri Eyvari
Ólafssyni er ekkert slor. Þannig átti
vörn ÍBV að vera á síðasta tímabili en
Arnór meiddist og missti af því öllu.
Hann er nú farinn, sem og Eiður og
Brynjar, og Matt verður frá keppni
vegna meiðsla langt fram á tímabilið.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem
kom aftur úr atvinnumennsku á
miðju sumri, er einnig farinn. Jó-
hannes þjálfari þarf því að setja sam-
an nýja varnarlínu og spurning
hversu langan tíma tekur fyrir menn
að ná saman. Hann hefur nýtt sam-
bönd sín í Noregi og fengið þaðan
miðvörðinn Avni Pepa sem hefur leik-
ið fimm síðustu tímabil í norsku úr-
valsdeildinni og ætti að geta plumað
sig vel, og hinn 22 ára gamla Tom
Skogsrud úr norsku 1. deildinni, en
hann var á mála hjá Manchester City
og Glasgow Rangers á táningsaldri.
Hollendingurinn Mees Siers gæti
reynst mikill liðsstyrkur en hann er
sterkur miðjumaður sem síðast var á
mála hjá SönderjyskE í dönsku úr-
valsdeildinni, og lék áður um árabil í
næstefstu deild Hollands. Hafsteinn
Briem, Aron Bjarnason komu líkt og
Benedikt Októ Bjarnason komu allir
frá Fram, og þeir tveir fyrstnefndu
voru einna skástir í Safamýrarliðinu
sem féll síðasta haust. Eyjamenn eiga
gullmola í framherjanum Jonathan
Glenn ef hann heldur áfram eins og í
fyrra þegar hann bjó oft til mörk upp
úr engu.
Eyjamenn í
uppbyggingu
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Frískur Víðir Þorvarðarson skorar af vítapunktinum og Jonathan Glenn
fylgist með. Þeir skoruðu 17 af 28 mörkum liðsins í deildinni í fyrra.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Abel Dhaira 1987 49 0 13 Simba ‘14
25 Guðjón O. Sigurjónsson 1992 11 0 0 *KFS ‘13
Markverðir
2 Tom Even Skogsrud 1993 0 0 0 Kongsvinger ‘15
3 Matt Garner 1984 149 3 0 Northwich ‘06
5 Avni Pepa 1988 0 0 1 FlamurtariVlore‘15
8 Jón Ingason 1995 34 1 0
15 Devon Már Griffin 1997 0 0 0
16 Mees Junior Siers 1987 0 0 0 Sönderjyske ‘15
23 Benedikt Októ Bjarnason 1995 6 0 0 Fram ‘15
24 Óskar Elías Óskarsson 1995 7 0 0 *BÍ/Bolungarvík‘15
Varnarmenn
4 Hafsteinn Briem 1991 27 4 0 Fram ‘15
6 Gunnar Þorsteinsson 1994 39 1 0 Ipswich ‘13
20 Hafsteinn G. Valdimarsson 1996 1 0 0
30 Ian Jeffs 1982 184 26 0 Val ‘11
32 Andri Ólafsson 1985 143 21 0 Grindavík ‘14
Miðjumenn
7 Aron Bjarnason 1995 25 5 0 Fram ‘15
10 Bjarni Gunnarsson 1993 22 1 0 Fjölni ‘13
11 Víðir Þorvarðarson 1992 78 14 0 Stjörnunni ‘12
17 Jonathan Glenn 1987 21 12 0 Jacksonville U.‘14
21 Dominic Adams 1988 7 0 0 ColoradoRapids‘14
22 Gauti Þorvarðarson 1989 28 1 0 *KFS ‘15
Sóknarmenn
Erfitt að staðsetja liðið í byrjun móts
Jóhannes nýtti samböndin í Noregi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
24
Styðjum
okkar lið!
Skagamaðurinn
Jóhannes Harð-
arson er nýr
þjálfari ÍBV.
Hann hafði áður
þjálfað norska C-
deildarliðið
Flekkeröy frá
árinu 2010, eftir
farsælan feril
sem leikmaður.
Honum til að-
stoðar verður heimamaðurinn
Tryggvi Guðmundsson, einn hand-
hafa markametsins í efstu deild.
Þeir taka við af Sigurði Ragnari
Eyjólfssyni, sem fór til aðstoðar
Rúnars Kristinssonar hjá Lilleström
í Noregi, og Dean Martin sem er
tekinn við 2. flokki Breiðabliks.
Abel Dhaira og Guðjón Orri Sig-
urjónsson berjast um markvarð-
arstöðuna líkt og í fyrra, en þá hafði
Abel yfirhöndina.
Í miðri vörninni koma þeir Andri
Ólafsson og norski Kosóvóinn Avni
Pepa til með að mynda miðvarðapar,
en Andri getur einnig leikið á miðj-
unni. Norðmaðurinn Tom Skogsrud
verður í stöðu vinstri bakvarðar í
fjarveru Matt Garner, sem verður
líklega frá keppni vegna fótbrots
langt fram á sumarið. Skogsrud get-
ur einnig leyst
stöðu miðvarðar,
og Jón Ingason
stöðu vinstri bak-
varðar. Benedikt
Októ Bjarnason,
sem kom frá
Fram, mun leika
sem hægri bak-
vörður en sú
staða var hálf-
gerð vandræða-
staða í fyrra.
Á miðri miðju verður Hollending-
urinn Mees Siers, sem var síðast á
mála hjá SönderjyskE í dönsku úr-
valsdeildinni. Með honum leikur
væntanlega Gunnar Þorsteinsson
en Hafsteinn Briem gerir sömuleiðis
tilkall til sætis í byrjunarliði. Fyrir
framan þá verður líklega Bjarni
Gunnarsson til að byrja með, á með-
an að Ian Jeffs tekur út leikbann, en
Jeffs og Bjarni geta einnig leikið á
köntunum.
Víðir Þorvarðarson á sæti víst á
vinstri kantinum en hann hefur verið
afar drjúgur í sóknarleik ÍBV síð-
ustu tvö tímabil. Á hægri kantinum
er sennilegast að Aron Bjarnason
spili fyrir framan liðsfélaga sinn frá
því í fyrra hjá Fram, Benedikt.
Dominic Adams, frá Trínidad og Tó-
bagó, getur einnig leikið þar en hann
missti af stórum hluta síðasta tíma-
bils vegna hnémeiðsla.
Fremsti sóknarmaður ÍBV verður
landi Adams, markahrókurinn Jo-
nathan Glenn, sem var með gullskó-
inn í höndunum þar til að Gary
Martin skoraði þrennu í lokaumferð
deildarinnar í fyrra. Glenn skoraði
12 af 28 mörkum ÍBV.
ÍBV
Jóhannes
Harðarson
Mees
Siers
Breytingar á liði ÍBV
FARNIR:
Arnar Bragi Bergsson í GAIS
(Svíþjóð)
Arnór Eyvar Ólafsson í Fjölni
Atli Fannar Jónsson í Víking R.
Brynjar Gauti Guðjónsson í
Stjörnuna
Dean Martin, hættur
Isak Nylén í Brommapojkarna
(Svíþjóð) (úr láni)
Jökull I. Elísabetarson í KV
Þórarinn Ingi Valdimarsson í FH
KOMNIR:
Anvi Pepa frá Flamurtari (Alb)
Aron Bjarnason frá Fram
Benedikt O. Bjarnason frá Fram
Gauti Þorvarðarson frá KFS
(úr láni)
Hafsteinn Briem frá Fram
Mees Siers frá SönderjyskE
(Danmörku)
Óskar Elías Óskarsson frá
BÍ/Bolungarvík (úr láni)
Tom Skogsrud frá Kongsvinger
(Noregi)
FÓTBOLTINN 2015