Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 14

Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 14
FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 14 Takk hreinlæti ehf hefur flutt alla starfsemi sína fráViðarhöfða 2 í Skútuvog 3, gengið inn frá Barkarvogi Skútuvogi 3 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is Erum flutt FYLKIR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Síðsta leiktíð var mikil rússíbanareið hjá Fylkismönnum. Lengi vel átti Árbæjarliðið á hættu að kveðja deild þeirra bestu eftir 15 ára samfellda veru en á endanum tókst liðinu að bjarga sér frá falli. Og gott betur en það því þegar 25 mínútur voru eftir af Íslandsmótinu var liðið með far- seðil í Evrópukeppnina í höndunum. En tvö mörk frá fallliði Fram á loka- kaflanum og tap á móti Safamýr- arliðinu gerðu hins vegar Evr- ópudrauminn að engu og niðurstaðan varð sjötta sætið, einu sæti ofar en tímabilin fjögur þar á undan Skilaboðin skýr úr Lautinni Skýr skilaboð hafa borist úr „Lautinni“ á undirbúningstímabilinu þess efnis að markmið Fylkismanna í ár sé að komast í Evrópukeppnina og þeir appelsínugulu höfðu hraðar hendur þegar mótinu lauk í fyrra. Fylkismenn voru fljótir að hasla sér völl á leikmannamarkaðnum og nældu sér í góða „bita“ sem þeir þekkja þó vel til. „Týndu“ synirnir Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Ingi- mundur Níels Óskarsson sneru aft- ur í Árbæinn og fylgdu þar fordæmi Alberts Brynjars Ingasonar, sem kom aftur til félagsins frá FH um mitt tímabil í fyrra og fann þar gömlu góðu markaskóna. Albert Brynjar skoraði 6 mörk í þeim 10 leikjum sem hann spilaði í deildinni. Innkoma hans breytti miklu til hins betra hvað sóknarleikinn varðar og átti sinn þátt í þeim mikla viðsnún- ingi sem varð á gengi Fylkis-liðisins þegar leið á síðustu leiktíð. Óhræddir að taka Jóa Kalla Fylkismenn veðjuðu líka á Jó- hannes Karl Guðjónsson og fengu hann til liðs við sig. Það truflaði ekki þjálfarann Ásmund Arnarsson að fá Jóa Kalla þó svo að Skagamaðurinn hafi fallið úr Pepsi-deildinni með tveimur liðum á jafnmörgum árum, ÍA og Fram. Ásmundur ætlar Jó- hannesi mikilvægt hlutverk í liðinu og það er vonandi að þessi fyrrver- andi landsliðsmaður og atvinnumað- ur til margra ára nái að sýna hvað í honum býr. Hann skuldar betri frammistöðu en undanfarin ár. Þá er miðvörðurinn Kristján Hauksson kominn aftur á fulla ferð en hann tók fram skóna þegar leið á síðustu leik- tíð eftir stutt hlé. Með tilkomu þess- ara leikmanna leikur enginn vafi á að Fylkisliðið mætir öflugra til leiks í ár og er betur tilbúið heldur en á síðustu leiktíð enda leikmannahóp- urinn nánast fullmótaður snemma á undirbúningstímabilinu ólíkt því sem hefur verið undanfarin ár. Þó varð miðvörðurinn öflugi Kristján Valdimarsson að leggja skóna á hill- una vegna þrálátra meiðsla. Króatinn síðasta púslið Síðasta púslið hjá Ásmundi var svo að næla í króatíska miðvörðinn Tonci Radovnikovic en hann er eini erlendi leikmaðurinn sem Fylkir teflir fram í sumar. Í fyrra voru þeir hins vegar þrír og voru þeir ekki í neinu uppáhaldi hjá stuðnings- mönnum félagsins. Stór kostur í liði Fylkismanna er sá að margir leik- menn liðsins eru uppaldir hjá félag- inu og fari liðið vel af stað, ólíkt und- angengnum árum, er aldrei að vita nema að hin nýja og fallega stúka þeirra Fylkismanna verði full af fólki á Evrópuleik sumarið 2016. Markmiðin skýr í Árbæ Morgunblaðið/Ómar Öflugur Andrés Már Jóhannesson gæti leikið stórt hlutverk í Fylkisliðinu en hann hefur spilað margar stöður, á miðju, kanti eða sem bakvörður. Leikmenn árið 2015 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Bjarni Þórður Halldórsson 1983 155 0 0 Stjörnunni ‘11 12 Ólafur Íshólm Ólafsson 1995 1 0 0 Markverðir 3 Ásgeir Börkur Ásgeirsson 1987 88 1 0 GAIS ‘15 6 Oddur Ingi Guðmundsson 1989 50 5 0 Þrótti R. ‘10 8 Jóhannes Karl Guðjónsson 1980 67 11 34 Fram ‘15 10 Andrés Már Jóhannesson 1988 115 11 0 Haugesund ‘14 13 Kolbeinn Birgir Finnsson 1999 0 0 0 17 Ásgeir Örn Arnþórsson 1990 70 7 0 *Aftureldingu ‘13 21 Daði Ólafsson 1994 13 0 0 24 Elís Rafn Björnsson 1992 50 4 0 25 Hinrik Atli Smárason 1995 0 0 0 *Elliða ‘14 27 Orri Sveinn Stefánsson 1996 0 0 0 *Elliða ‘14 29 Axel Andri Antonsson 1998 0 0 0 Miðjumenn 7 Ingimundur Níels Óskarsson 1986 134 38 0 FH ‘15 9 Ragnar Bragi Sveinsson 1994 18 0 0 Kaiserslautern‘14 14 Albert Brynjar Ingason 1986 154 50 0 FH ‘14 15 Hákon Ingi Jónsson 1995 13 1 0 22 Davíð Einarsson 1992 12 0 0 KR ‘13 Sóknarmenn 2 Kristján Hauksson 1986 144 4 0 Fram ‘13 4 Tonci Radovnikovic 1988 0 0 0 NK Solin ‘15 5 Ásgeir Eyþórsson 1993 42 3 0 11 Kjartan Ágúst Breiðdal 1986 134 19 0 16 Tómas Þorsteinsson 1988 109 2 0 *Aftureldingu ‘09 19 Reynir Haraldsson 1995 0 0 0 ÍR ‘15 20 Stefán Ragnar Guðlaugsson 1991 64 4 0 Val ‘14 23 Andri Þór Jónsson 1991 37 1 0 New Orleans ‘15 26 Ari Leifsson 1998 0 0 0 28 Sigurvin Reynisson 1995 0 0 0 *Elliða ‘14 Varnarmenn  Fylkismenn ætla sér að ná Evrópu- sæti  Góður liðsstyrkur í „Lautina“ Fjórða tímabilið í röð er Ásmundur Arnarsson við stjórnvölinn hjá Fylkismönnum en hann kom til félagsins frá Fjölni úr Graf- arvogi þar sem hann starfaði í sjö ár. Fyrstu tvö tímabilin undir stjórn Ásmundar höfnuðu Fylk- ismenn í sjöunda sæti en sjötta sæt- ið varð hlutskipti Árbæjarliðsins í fyrra. Breyting hefur orðið á aðstoðar- þjálfarastarfinu. Sálfræðingurinn Haukur Ingi Guðnason sem hefur aðstoðað Ásmund undanfarin ár er nú orðinn afreksþjálfari og yfirþjálf- ari yngri flokka hjá Fylki en við starfi hans tók Skagamaðurinn Reynir Leósson, margreyndur leik- maður hér heima og erlendis. Hinn þrautreyndi Bjarni Þórður Halldórsson hefur varið mark Fylk- ismanna undanfarin ár en hann og hinn tvítugi Ólafur Íshólm Ólafsson munu berjast um markvarðarstöð- una í sumar. Þeir hafa skipt leikj- unum bróðurlega á milli sín á und- irbúningstímabilinu. Stefán Ragnar Guðlaugsson lék í stöðu hægri bakvarðar á síð- ustu leiktíð og mun líklega gera það áfram í sum- ar. Ásgeir Ey- þórsson, Króat- inn Tonci Radovnikovic og Kristján Hauks- son eru miðverðir Árbæjarliðsins og í vinstri bakvarðarstöðunni hafa Fylkismenn þá Tómas J. Þor- steinsson og hinn unga Reyni Har- aldsson sem kom frá ÍR-ingum í vetur. Þá er hinn reyndi Kjartan Ágúst Breiðdal til staðar og hann getur leyst nokkrar stöður á vell- inum. Jóhannes Karl Guðjónsson og Ásgeir Börkur Ásgeirsson koma til með að gegna stórum og mikil- vægum hlutverkum á miðjunni og þar eru líka til staðar Oddur Ingi Guðmundsson, Andrés Már Jó- hannesson, sem reyndar getur leyst margar stöður, og Daði Ólafsson, allir gegnheilir Fylkismenn. Í sóknarsveitinni eru Fylkismenn með markaskorarann mikla Albert Brynjar Ingason sem og þá Ingi- mund Níels Óskarsson og Ásgeir Örn Arnþórsson og fleiri valkosti hafa Fylkismenn með framherjana Ragnar Braga Sveinsson og Hákon Inga Jónsson. Þá gætum við fengið að sjá unga og efnilega Fylkismenn spreyta sig í sumar. Þeirra meðal hinn 16 ára gamla Kolbein Finnsson og einnig Sigurvin Reynisson. Fylkir Ásmundur Arnarsson Kjartan Ágúst Breiðdal Breytingar á liði Fylkis KOMNIR: Andri Þór Jónsson frá New Orleans Jesters (Bandar.) Ásgeir Börkur Ásgeirsson frá GAIS (Svíþjóð) Egill T. Ómarsson í Elliða (lán) Ingimundur N. Óskarsson frá FH Jóhannes K. Guðjónsson frá Fram Reynir Haraldsson frá ÍR Tonci Radovnikovic frá NK Solin (Króatíu) FARNIR: Agnar Bragi Magnússon, hættur Andrew Sousa, óvíst Björn Hákon Sveinsson í Völsung Davíð Þór Ásbjörnsson í Þrótt R. Finnur Ólafsson í Víking R. Gunnar Örn Jónsson í Augnablik Kristján Valdimarsson, hættur Magnús Otti Benediktsson í HK Ryan Maduro til Bandaríkjanna Sadmir Zekovic í Kristianstad (Sv.) Viktor Örn Guðmundss. í Fjarðab.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.