Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 20
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
20
MEISTARAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Það telst alltaf til tíðinda þegar nýtt
félag vinnur Íslandsmeistaratitil.
Slíkt hafði ekki gerst í karlafótbolt-
anum hérlendis í fimmtán ár þegar
FH-ingar urðu meistarar í fyrsta sinn
árið 2004. En hópurinn hefur stækkað
síðan og eftir að Hafnarfjörður komst
á meistarakortið hafa nágranna-
byggðarlögin Kópavogur og Garða-
bær bæst í hópinn. Breiðablik vann
titilinn árið 2010 og síðasta haust var
komið að Stjörnunni sem vann óvænt-
an og magnaðan sigur þar sem liðið
fór taplaust í gegnum 22 leiki Íslands-
mótsins og lagði FH í hádramatískum
úrslitaleik í Kaplakrika í síðustu um-
ferðinni.
Óhætt er að segja að þar hafi verið
um að ræða sögulegasta endi á Ís-
landsmóti í manna minnum – allavega
í minni þeirra sem yngri eru. Ólafur
Karl Finsen skoraði sigurmarkið úr
vítaspyrnu í uppbótartíma, eftir að
Stjörnumenn höfðu misst mann af
velli snemma í seinni hálfleik og síðan
lent marki undir.
Stjarnan varð með þessu fyrsta lið-
ið frá 1978 til að fara taplaust í gegn-
um deildina, og það fyrsta til að leika
þann leik í 22 leikjum. Valsmenn töp-
uðu ekki leik þegar þeir urðu meist-
arar 1978 og unnu þá sautján leiki af
átján.
Einokun Reykjavíkur til 1950
En rifjum nú upp sögu meist-
aratitlanna.
Reykjavíkurfélögin KR, Valur,
Fram og Víkingur einokuðu Íslands-
meistaratitilinn fyrri hluta síðustu
aldar, eða til ársins 1950 þegar KR
vann hann þriðja skiptið í röð.
KR varð fyrsti Íslandsmeistarinn
árið 1912 þegar Vesturbæingar sigr-
uðu Fram í úrslitaleik á Melavellinum
en Eyjamenn voru þriðja liðið sem
tók þátt í þessu fyrsta móti.
Fram varð meistari næstu sex ár í
röð, frá 1913 til 1918, reyndar án
keppni fyrstu tvö árin vegna ósættis
félaganna.
Um miðja síðustu öld voru Fram og
KR jöfn með 13 meistaratitla hvort
félag.
Framarar komu aftur upp með
blómaskeið frá 1986 til 1990 þegar
þeir urðu þrisvar meistarar en hafa
ekki unnið titilinn í 24 ár sem er lang-
lengsta bið þeirra frá upphafi.
Víkingur varð þriðja félagið til að
verða meistari árið 1920, og vann aft-
ur 1924, en varð að bíða til 1981 eftir
þriðja titlinum af þeim fimm sem fé-
lagið hefur unnið. Víkingur varð síð-
ast meistari fyrir 23 árum.
Valsmenn komust loks fram úr hin-
um Reykjavíkurliðunum árið 1930. Þá
upphófst mikil sigurganga því Valur
varð 11 sinnum meistari á 16 árum og
innbyrti þá meirihluta titlanna sem
félagið hefur unnið til þessa. Valur
hefur unnið titilinn einu sinni síðustu
27 árin en það var 2007.
Sögulegur sigur Skagamanna
Söguleg umskipti urðu árið 1951
þegar Akurnesingar, undir stjórn
Ríkharðs Jónssonar, fóru með Ís-
landsbikarinn út fyrir borgarmörkin í
fyrsta skipti.
Þeir voru komnir til að vera því ÍA
varð meistari sex sinnum næstu tíu
árin og er það félag sem hefur oftast
orðið Íslandsmeistari frá 1951, eða 18
sinnum.
Keflvíkingar voru næstir en þeir
unnu sinn fyrsta titil árið 1964.
Þeirra blómatími stóð í tíu ár og
skilaði fjórum titlum en Keflavík hef-
ur ekki náð að sigra síðan 1973.
Sjöunda meistarafélagið í sögunni
varð ÍBV en Eyjamenn lönduðu sín-
um fyrsta titli árið 1979. Þeir bættu
tveimur við rétt fyrir aldamótin.
KA varð áttunda félagið til að verða
Íslandsmeistari. KA-menn komu öll-
um á óvart, með Guðjón Þórðarson
við stjórnvölinn, árið 1989 og stóðu
uppi sem meistarar eftir mikla
dramatík í lokaumferðinni þar sem
FH var lengi vel í lykilstöðu.
Sex titlar FH frá 2004
Árið 2004 var röðin hinsvegar loks-
ins komin að FH-ingum. Þeir hafa
heldur betur sett svip sinn á Íslands-
mótið síðasta áratuginn en Hafnfirð-
ingarnir hafa innbyrt sex meistara-
titla og endað fimm sinnum í öðru
sæti á undanförnum ellefu árum. Þeir
hafa á þessum árum skotist framfyrir
fimm félög í fjölda meistaratitla og
eru nú næstir á eftir þeim fjórum sig-
ursælustu, KR, Val, ÍA og Fram.
Breiðablik varð tíunda félagið sem
hampaði Íslandsmeistaratitlinum árið
2010 en Íslandsbikarinn fór þá í
Kópavog í fyrsta sinn eftir æsispenn-
andi baráttu Blikanna við ÍBV og FH.
Stjarnan bættist síðan í hópinn
haustið 2014 eftir sigurinn drama-
tíska gegn FH.
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsmeistarar Michael Præst og Veigar Páll Gunnarsson fyrirliðar Stjörnunnar tóku við Íslandsbikarnum í Kaplakrika eftir hinn dramatíska sigur á FH í lokaumferðinni síðasta haust.
Nýir meistarar krýndir
Stjarnan varð ellefta félagið til að vinna Íslandsmeistaratitil karla Fyrsta liðið frá 1978 til að fara tap-
laust í gegnum deildina Hafnarfjörður, Kópavogur og Garðabær hafa bæst á meistarakortið síðustu ár
Íslandsmeistarar karla
Skipti Lið Ár
26 KR 1912, 1919, 1926, 1927, 1928, 1929, 1931, 1932, 1934,
1941, 1948, 1949, 1950, 1952, 1955, 1959, 1961, 1963,
1965, 1968, 1999, 2000, 2002, 2003, 2011, 2013.
20 Valur 1930, 1933, 1935, 1936, 1937, 1938, 1940, 1942, 1943,
1944, 1945, 1956, 1966, 1967, 1976, 1978, 1980, 1985,
1987, 2007.
18 ÍA 1951, 1953, 1954, 1957, 1958, 1960, 1970, 1974, 1975,
1977, 1983, 1984, 1992, 1993, 1994, 1995, 1996, 2001.
18 Fram 1913, 1914, 1915, 1916, 1917, 1918, 1921, 1922, 1923,
1925, 1939, 1946, 1947, 1962, 1972, 1986, 1988, 1990.
6 FH 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012.
5 Víkingur R. 1920, 1924, 1981, 1982, 1991.
4 Keflavík 1964, 1969, 1971, 1973.
3 ÍBV 1979, 1997, 1998.
1 KA 1989.
1 Breiðablik 2010.
1 Stjarnan 2015.
Stjarnan 2015