Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 22
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
22
mannaðar hjá Fjölni í fyrra og því
gæti koma Eyjamannsins Arnórs
Eyvars Ólafssonar reynst vel, og
svo er spurning hve vel Makedón-
íumaðurinn Daniel Ivanovski plum-
ar sig í miðri vörninni. Fjölnismenn
hafa hins vegar ekki misst neina
lykilmenn.
Í öðru lagi eru ungir og góðir leik-
menn á borð við Bergsvein fyrirliða,
Aron Sigurðarson, Guðmund Karl
Guðmundsson og Þóri Guðjónsson
orðnir árinu eldri og reyndari.
Bergsveinn sló í gegn í fyrra og er
máttarstólpi í liðinu ásamt Gunnari
Má Guðmundssyni, Þórði Ingasyni
markverði og nú Ólafi Páli. Ekki má
gleyma Ragnari Leóssyni sem stóð
sig afar vel í fyrra og átti 10 stoð-
sendingar, rétt eins og Ólafur Páll,
og voru þeir meðal þriggja efstu
manna í þeim efnum í allri Pepsi-
deildinni.
Vantar helst markaskorara
Þórir var einnig afar drjúgur í
sóknarleik liðsins og ekki var van-
þörf á því hvorki Christopher Tson-
is né Mark Magee reyndist hafa það
sem til þurfti til að hrella markverði
andstæðinganna. Raunar virðist öfl-
ugur markaskorari það helsta sem
upp á vantar hjá Fjölni fyrir sum-
arið.
Þriðji þátturinn, í að halda sætinu
í efstu deild, gæti falist í þjálf-
aranum Ágústi Þór Gylfasyni, sem
líkt og lærisveinar hans stóð af sér
djúpa lægð þegar leið á tímabilið í
fyrra og stóð uppi sem sigurvegari í
fallslagnum.
Fjölnismenn munu þó væntanlega
berjast í neðri hluta deildarinnar í
sumar líkt og í fyrra, og vel gæti
farið svo að þeir glími aftur við fall-
drauginn fram í lokaumferð. „Tíma-
bil tvö“ hefur oft reynst mönnum
erfitt, þó að Grafarvogspiltar séu
sjálfsagt staðráðnir í að troða þeim
orðum upp í ofanritaðan og fleiri.
Árinu eldri
og reyndari
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirliði Bergsveinn Ólafsson sló í gegn í fyrra og skipaði sér í hóp bestu
miðvarða deildarinnar, ásamt því að skora 4 mörk í Pepsi-deildinni.
Leikmenn
árið 2015
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Steinar Örn Gunnarsson 1991 0 0 0 *Aftureldingu ‘11
12 Þórður Ingason 1988 57 0 0 BÍ/Bolungarvík‘13
30 Jökull Blængsson 1997 0 0 0
Markverðir
3 Daniel Ivanovski 1983 0 0 0 Mjällby ‘15
5 Bergsveinn Ólafsson 1992 21 4 0
6 Atli Már Þorbergsson 1992 12 0 0
14 Ísak Atli Kristjánsson 1999 0 0 0
15 Haukur Lárusson 1987 15 1 0
19 Arnór Eyvar Ólafsson 1989 85 1 0 ÍBV ‘15
21 Brynjar Steinþórsson 1996 0 0 0
28 Hans Viktor Guðmundsson 1996 0 0 0
Varnarmenn
4 Gunnar Már Guðmundsson 1983 121 30 1 ÍBV ‘14
7 Viðar Ari Jónsson 1994 10 0 0
8 Ragnar Leósson 1991 39 3 0 ÍBV ‘13
11 Ægir Jarl Jónasson 1998 0 0 0
16 Guðmundur B. Guðjónsson 1989 48 1 0 ÍA ‘13
22 Ólafur Páll Snorrason 1982 190 25 1 FH ‘15
23 Emil Pálsson 1993 65 7 0 FH ‘15
27 Anton Freyr Ársælsson 1996 0 0 0
29 Guðmundur K. Guðmundsson 1991 32 2 0
Miðjumenn
9 Þórir Guðjónsson 1991 45 7 0 Val ‘13
10 Aron Sigurðarson 1993 18 3 0
17 Magnús Pétur Bjarnason 1996 1 0 0
18 Mark Magee 1989 8 1 0 Tindastóli ‘14
20 Birnir Snær Ingason 1996 0 0 0
Sóknarmenn
Fjölnir blés á hrakspárnar í fyrra
Komnir með sterkari hóp í ár
FJÖLNIR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var „sokkur“ upp í alla helstu
miðla landsins, og bara nánast alla
sem tjá sig um íslenskan fótbolta.
Ég heyrði ekki einn mann segja að
við myndum halda okkur uppi.“
Svona komst Bergsveinn Ólafsson,
fyrirliði Fjölnis, að orði við ofanrit-
aðan eftir að liðið tryggði sér áfram-
haldandi veru í Pepsi-deildinni í
lokaumferðinni síðasta haust.
Það er hárrétt hjá Bergsveini.
Enginn spáði því að nýliðarnir, sem
létu lítið til sín taka á leik-
mannamarkaðnum, næðu því tak-
marki sínu. En það gekk, ekki síst
vegna frábærrar byrjunar á tíma-
bilinu, og liðið getur nú byggt ofan á
þann árangur.
Tímabilið í fyrra var það þriðja
hjá Fjölni í efstu deild. Félagið er
ungt, stofnað 1988, og lék fyrst í
deild þeirra bestu á 20 ára afmæl-
isárinu, 2008, en féll svo niður aftur
eftir tveggja ára veru þar. Nú er
ætlunin að staldra mun lengur við í
efstu deild, festa liðið þar í sessi, og
þó að sumarið geti vissulega orðið
erfitt fyrir Fjölnismenn má færa
góð rök fyrir því að það takist.
Ólafur getur lagt upp mörkin
Í fyrsta lagi virðist leik-
mannahópurinn sterkari í ár en í
fyrra. Til liðsins er snúinn aftur
Ólafur Páll Snorrason, með fjölda
verðlaunapeninga um hálsinn eftir
veruna í Hafnarfirði, og ljóst að þar
er um mikinn liðsstyrk að ræða.
Hann er mikill spyrnusérfræðingur
og það gæti nýst vel með höfuðin á
Bergsveini og Gunnari Má í vítat-
eignum. Ásamt Ólafi kemur Emil
Pálsson einnig frá FH, að láni, og sá
er mjög lunkinn miðjumaður. Bakv-
arðastöðurnar voru hvað verst
Ágúst Þór Gylfa-
son er aðalþjálf-
ari Fjölnis líkt og
undanfarin ár.
Ágúst tók við af
Ásmundi Arnars-
syni í lok árs
2011, eftir að
hafa verið aðstoð-
armaður hans og
leikmaður Fjöln-
is. Kristófer Sig-
urgeirsson var Ágústi til aðstoðar
en er farinn til Breiðabliks, og mun
Ólafur Páll Snorrason því verða
spilandi aðstoðarþjálfari eftir að
hafa snúið aftur í Grafarvoginn.
Þórður Ingason verður áfram að-
almarkvörður Fjölnis líkt og und-
anfarin tvö ár. Öflugur markvörður
þar á ferð. Steinar Örn Gunnarsson
verður honum til halds og trausts.
Í vörninni verða ný andlit frá síð-
asta tímabili. Fyrirliðinn Berg-
sveinn Ólafsson verður þó sem fyrr
í hjarta hennar, en nú með Daniel
Ivanovski sér við hlið. Sá er 31 árs
og býr yfir mikilli reynslu úr
sænsku úrvalsdeildinni. Haukur
Lárusson er öflugur miðvörður en
mikill „meiðslapési“ og missir af
byrjun mótsins. Atli Már Þorbergs-
son er einnig til taks.
Í stöðu hægri
bakvarðar er
kominn Eyja-
maðurinn Arnór
Eyvar Ólafsson,
sem missti af síð-
asta tímabili
vegna meiðsla en
ætti að vera góð-
ur liðsstyrkur.
Vinstra megin
verður vænt-
anlega Guð-
mundur Karl Guðmundsson, sem
er vanari að leika sem kantmaður
en leysti stöðuna í Lengjubikarnum.
Fjölnismenn skiptu 4-5-1 leik-
kerfi sínu út fyrir 4-4-2 kerfi þegar
leið á tímabilið í fyrra, sem gaf góða
raun. Því má ætla að þeir noti það
áfram. Á miðjunni verður vænt-
anlega herra Fjölnir, hinn stóri og
stæðilegi Gunnar Már Guðmunds-
son, ásamt hugsanlega Emil Páls-
syni sem kom að láni frá FH. Ólaf-
ur Páll Snorrason hefur leikið
mikið á miðjunni á undirbúnings-
tímabilinu en var alla jafna kant-
maður hjá FH. Guðmundur Böðvar
Guðjónsson er varnarsinnaður
miðjumaður og Illugi Þór Gunn-
arsson gæti aukið breiddina frekar
þegar hann kemur til landsins úr
háskólanámi.
Ragnar Leósson verður vænt-
anlega á hægri kantinum með sínar
stoðsendingar líkt og í fyrra og
vinstra megin gæti hinn leikni Aron
Sigurðarson fengið enn stærra
hlutverk. Viðar Ari Jónsson gæti
einnig leyst aðra kantstöðuna.
Fremstir verða Þórir Guðjónsson,
sem átti gott tímabil í fyrra, og
Mark Magee sem skoraði 1 mark í 8
leikjum.
Fjölnir
Ágúst Þór
Gylfason
Gunnar Már
Guðmundsson
KOMNIR:
Arnór Eyvar Ólafsson frá ÍBV
Daniel Ivanovski frá Mjällby
(Svíþjóð)
Emil Pálsson frá FH (lán)
Guðmundur Þór Júlíusson frá
HK (úr láni)
Ólafur Páll Snorrason frá FH
FARNIR:
Arnar Freyr Ólafsson í Leikni R.
Árni K. Gunnarsson í Augnablik
Chris Tsonis til Bandaríkjanna
Gunnar Valur Gunnarsson í
Vængi Júpíters (lán)
Illugi Þór Gunnarsson, erlendis
Matt Ratajczak til Bandaríkjanna
Breytingar á liði Fjölnis
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frysitgeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma