Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 29
Morgunblaðið/Eva Björk
Sigursæll Leikmenn KR tolleruðu Rúnar Kristinsson eftir sigurinn á Kefl-
víkingum í úrslitaleiknum í fyrrasumar. Þriðji titillinn undir hans stjórn.
artíma gegn Keflavík. Hörður
Sveinsson hafði komið Keflavík yfir
snemma leiks en Grétar Sigfinnur
Sigurðarson jafnað metin. Sig-
urmark Kjartans kom eftir und-
irbúning Gary Martin þegar ekkert
annað en framlenging blasti við eft-
ir tíðindalitlar lokamínútur. Þar
með stýrði Rúnar Kristinsson KR í
þriðja sinn til bikarmeistaratitils á
þeim fjórum heilu tímabilum sem
liðið lék undir hans stjórn.
Keflavík mistókst að
endurtaka leikinn
Keflvíkingar voru ekki langt frá
því að landa sínum fimmta bik-
armeistaratitli, þrátt fyrir að hafa á
sama tíma átt erfitt uppdráttar í
Pepsi-deildinni. Þeir unnu titilinn
síðast árið 2006, einmitt með sigri á
KR-ingum og undir stjórn Krist-
jáns Guðmundssonar en tókst ekki
að endurtaka leikinn í fyrra.
Bikarkeppnin var fyrst haldin ár-
ið 1960. KR vann bikarmeistaratit-
ilinn fimm fyrstu árin og alls sjö
sinnum fram til ársins 1967 en þá
tók við 27 ára bið félagsins eftir
næsta titli. Alls hafa ellefu lið land-
að bikarmeistaratitlinum en það var
Breiðablik sem síðast bættist í hóp-
inn, árið 2009, með sigri á Fram í
vítaspyrnukeppni. Meðfylgjandi
tafla sýnir bikarmeistaratitla lið-
anna ellefu. Af liðunum tólf sem
leika í Pepsi-deildinni í sumar eru
þrjú sem aldrei hafa landað bik-
armeistaratitlinum; Fjölnir, Leiknir
R. og Stjarnan.
Fyrsta umferð bikarkeppninnar í
ár hefst í dag með sex leikjum og
segja má að það séu fyrstu leikir
tímabilsins. Þar eru á ferð lið úr 2.,
3. og 4. deild, sem og utandeildalið.
Einnig er spilað á morgun og á
sunnudag, og alls taka 50 lið þátt í
fyrstu umferðinni.
Í 2. umferð bætast við 15 lið, með-
al annars liðin tólf sem leika í 1.
deild karla, og eru því alls 20 leikir í
þeirri umferð. Í 3. umferð, sem leik-
in verður í byrjun júní, koma liðin
12 úr Pepsi-deildinni inn í keppnina,
sem sagt í 32 liða úrslitum en dag-
setningar má sjá í leikjatöflunni á
bls. 2.
Þriðji sigur KR-inga í
bikarnum á fjórum árum
Hafa leikið til úrslita sex sinnum á níu árum Sigursælastir frá upphafi
BIKARKEPPNIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
KR-ingar hafa leikið til úrslita um
bikarmeistaratitilinn á sex af síð-
ustu níu keppnistímabilum. Fjórum
sinnum hefur liðið landað bik-
armeistaratitlinum, þar af þrisvar á
síðustu fjórum árum, og þar með
undirstrikað stöðu sína sem sig-
ursælasta liðið í sögu bikarkeppn-
innar með alls 14 bikarmeist-
aratitla, fimm fleiri en næstu lið,
Valur og ÍA.
Það var Kjartan Henry Finn-
bogason sem tryggði KR bikarinn í
fyrra með sigurmarki í uppbót-
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 - Fæst í helstu raftækjaverslunum
Remington rakvélar Gæði - Gott verð - Frábær ending
Sex leikmenn hefja leiktíðina í
Pepsi-deildinni á því að taka út leik-
bann. Kassim Doumbia, miðvörður
FH, þarf raunar að bíða 23 dögum
lengur en liðsfélagar hans með það
að spila fyrsta leik sumarsins. Do-
umbia var úrskurðaður í fjögurra
leikja bann síðastliðið haust vegna
framferðis síns eftir að flautað var til
leiksloka hjá FH og Stjörnunni í úr-
slitaleiknum um Íslandsmeistaratit-
ilinn.
Hann missir af leikjum gegn KR
(ú), Keflavík (h), Val (ú) og ÍA (h) en
getur tekið upp þráðinn þar sem frá
var horfið, ef svo má segja, með því
að mæta Stjörnunni í Garðabæ 26.
maí.
Veigar Páll Gunnarsson missir af
fyrsta leik Stjörnunnar, gegn ÍA á
Akranesi, vegna rauða spjaldsins
sem hann fékk í fyrrnefndum úr-
slitaleik.
ÍBV verður án Ian Jeffs í fyrstu
tveimur leikjum tímabilsins en Jeffs
fékk rauða spjaldið í tapinu gegn
Fjölni í lokaumferðinni í fyrra, í leik
sem skipti litlu sem engu máli fyrir
Eyjamenn. Jeffs missir af endur-
komu í Grafarvoginn og heimaleik
við Íslandsmeistarana.
Valsmenn verða án Kristins Freys
Sigurðssonar og Ragnars Þórs
Gunnarssonar í heimaleik gegn
Leikni R. í fyrstu umferð. Ragnar
var í láni hjá Selfossi í 1. deildinni í
fyrra en fékk þar rauða spjaldið í
lokaumferðinni.
Loks tekur Ósvald Jarl Trausta-
son, leikmaður Breiðabliks, út eins
leiks bann eftir að hafa fengið rautt
spjald í búningi Fram í lokaumferð-
inni í fyrra. Hann missir af leik við
Fylki á útivelli. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Bann Kassim Doumbia spilar ekki
fyrstu fjóra leiki FH-inga í vor.
Kassim Doumbia bíður
23 dögum lengur
Aukablað vegna Íslandsmóts-
ins, eins og það sem þú ert með
í höndunum, lesandi góður, á sér
nokkuð langa sögu hjá Morgun-
blaðinu myndi ég halda. Ég
minnist þess að þetta aukablað
var svo gott sem heilagt þegar
ég var púki. Ég og frændi minn
Halli Pé, sem smitaði mig af
íþróttabakteríunni, lásum það
upp til agna í villta vestrinu og
héldum því til haga fram á
haust.
Fyrir vikið gátum við alltaf
flett upp leikjaplani sumarsins.
Auk þess færðum við samvisku-
samlega inn öll úrslit í deildinni.
Ef til vill höfum við gert þetta ef
ske kynni að Víðir Sigurðsson
myndi ekki nenna að gefa út
bókina sína í lok árs. Internets-
uppfinningin er nefnilega svo ná-
lægt okkur í tíma að hún var
meira að segja ekki komin til
sögunnar þegar ég var að alast
upp, kornungur maðurinn.
Foreldrar mínir lærðu fljótt
að þetta aukablað átti ekki að
verða eldinum í arninum að
bráð. Þessu blaði væri mikilvægt
að halda til haga. Til öryggis
handskrifaði ég utan á blaðið:
„Má ekki henda.“ Snemma varð
maður skipulagður. Þau voru nú
alltaf furðu umburðarlynd gagn-
vart þessum íþróttanördisma
mínum, gamla settið.
Morgunblaðið er vitaskuld
eini fjölmiðilinn sem fjallað hefur
um Íslandsmótið frá því það hóf
göngu sína. Í dag er það líklega
sá fjölmiðill sem enn fjallar mest
um Pepsi-deildina, þ.e.a.s ef um-
fjöllun blaðsins og mbl.is er lögð
saman. Umfjöllunin breytist þó
eðlilega í tímans rás enda frétta-
flutingur orðinn hraður. Þeir sem
lengi hafa fylgt Mogganum verða
að sætta sig við að umfjöllun um
leiki daginn eftir er ekki leiklýs-
ing eins og áður. Hún er afgreidd
á mbl.is sem fyrst en reynt að
finna aðra vinkla í blaðinu.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
29
Bikarmeistarar karla
Skipti Lið Ár
14 KR 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995,
1999, 2008, 2011, 2012, 2014
9 ÍA 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000, 2003.
9 Valur 1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005.
8 Fram 1970, 1973, 1979, 1980, 1985, 1987, 1989, 2013.
4 ÍBV 1968, 1972, 1981, 1998.
4 Keflavík 1975, 1997, 2004, 2006.
2 FH 2007, 2010
2 Fylkir 2001, 2002.
1 Breiðablik 2009.
1 Víkingur R. 1971.
1 ÍBA 1969.
KR 2014