Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 30
LEIKJAHÆSTIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kristján Finnbogason, varamark-
vörður FH-inga, sem verður 44 ára
gamall í þessum mánuði, er bæði
elsti leikmaður Pepsi-deildar karla í
ár og leikjahæstur þeirra sem skipa
leikmannahópa liðanna tólf í deild-
inni.
Kristján hefur spilað 268 leiki í
efstu deild með ÍA, KR og Fylki en
hann hefur ekki náð að spila leik í
deildinni fyrir FH-inga enn sem
komið er. Kristján lék síðast í deild-
inni undir lok tímabilsins 2013, þá
með Fylki, en var varamarkvörður
fyrir Róbert Örn Óskarsson hjá FH
á síðasta tímabili án þess að þurfa að
hlaupa í skarðið.
Aðeins tveir leikmenn í sögu ís-
lenskrar knattspyrnu hafa spilað
fleiri leiki í efstu deild hérlendis en
Kristján. Birkir Kristinsson lék 321
leik í markinu hjá KA, ÍA, Fram og
ÍBV og Gunnar Oddsson spilaði 294
leiki í deildinni með Keflavík, Leiftri
og KR.
Þeir sem hafa leikið 200 leiki og
meira í efstu deild í upphafi tímabils-
ins, og eru í leikmannahópum lið-
anna tólf í deildinni 2015, eru sjö
talsins.
Atli leikjahæsti útispilarinn
Atli Jóhannsson, miðjumaður
Stjörnunnar, er leikjahæstur af úti-
spilurunum í deildinni í ár. Atli hefur
leikið 233 leiki með ÍBV, KR og
Stjörnunni. Hann er í 13.-14. sæti yf-
ir þá leikjahæstu frá upphafi og gæti
farið upp í 5.-6. sætið í ár, nái hann
að spila alla leiki Stjörnunnar á
tímabilinu.
Magnús S. Þorsteinsson, sóknar-
maður Keflvíkinga, kemur næstur af
þeim sem spila í deildinni í ár. Hann
hefur leikið 220 leiki með Keflavík
og Grindavík.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson,
miðvörður KR-inga, kemur næstur
með 218 leiki fyrir Val, Víking og
KR.
Atli Viðar Björnsson, framherji
FH-inga, hefur spilað 205 leiki í
deildinni, alla fyrir Hafnarfjarð-
arliðið.
Hólmar Örn Rúnarsson, miðju-
maður Keflvíkinga, sem er kominn
aftur þangað frá FH, er með 204
leiki fyrir þessi tvö félög.
Óskar Örn Hauksson, kantmaður
úr KR, komst á listann yfir 200
leikja mennina í lokaumferð Íslands-
mótsins í fyrra en þá lék hann sinn
200. leik í efstu deild.
Einn 200 leikja maður hefur lagt
skóna á hilluna frá því í fyrra. Fjalar
Þorgeirsson, sem þá varði mark
Vals, á að baki 227 leiki í deildinni.
Hann er nú markvarðaþjálfari hjá
Stjörnunni.
Kristján áfram sá leikjahæsti
Varamarkvörður FH er að verða 44 ára og er þriðji hæstur frá upphafi
Atli efstur útispilaranna og sjö 200 leikja menn spila í deildinni í ár
Morgunblaðið/Golli
233 Stjörnumaðurinn Atli Jóhannsson, til hægri, í baráttu við Chris Tsonis hjá Fjölni á síðasta tímabili. Hann er
leikjahæstur af þeim útispilurum sem leika í efstu deild á þessu keppnistímabili.
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
30
KOMDU Í
FÓTBOLTA
#komduifotbolta
www.ksi.is
MARKAHÆSTIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Atli Viðar Björnsson, sóknar-
maðurinn reyndi úr FH, getur orð-
ið fjórði leikmaðurinn frá upphafi
til að skora 100 mörk í efstu deild.
Atli, sem er 35 ára gamall, skoraði
8 mörk fyrir FH í deildinni í fyrra
og hefur nú samtals gert 98 mörk,
öll fyrir Hafnarfjarðarliðið, enda
hefur hann ekki spilað með öðru
félagi í efstu deild.
Tryggvi Guðmundsson á marka-
metið sem hann sló árið 2012 og
bætti um tvö mörk árið 2013, en
hann gerði 131 mark fyrir ÍBV,
KR, FH og Fylki.
Ingi Björn Albertsson hafði átt
metið í aldarfjórðung en hann
skoraði 126 mörk fyrir Val og FH
á árunum 1970 til 1987.
Guðmundur Steinsson er sá
þriðji sem hefur náð hundrað
mörkum en hann gerði 101 mark
fyrir Fram og Víking á árunum
1978 til 1993.
Næstir á eftir Atla Viðari á
markalista allra tíma eru Her-
mann Gunnarsson sem skoraði 95
mörk fyrir Val og ÍBA og Matthías
Hallgrímsson sem skoraði 94 mörk
fyrir ÍA og Val.
Langt í næstu menn
Þess verður hinsvegar langt að
bíða að aðrir leikmenn komist í
tæri við 100 mörkin. Af þeim sem
nú leika í efstu deild er Hörður
Sveinsson úr Keflavík næstur á
eftir Atla Viðari en Hörður hefur
gert 54 mörk. Atli Guðnason úr
FH er með 53 mörk og Albert
Brynjar Ingason úr Fylki, sonur
Inga Björns, hefur skorað 50 mörk
í efstu deild.
Skorar Atli 100. markið?
Vantar aðeins tvö til að verða sá fjórði sem nær hundraðinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
98 Atli Viðar Björnsson er marka-
hæstur FH-inga frá upphafi.
Tryggvi Guðmundsson 131
Ingi Björn Albertsson 126
Guðmundur Steinsson 101
Atli Viðar Björnsson 98
Hermann Gunnarsson 95
Matthías Hallgrímsson 94
Hörður Magnússon 87
Björgólfur Takefusa 83
Ragnar Margeirsson 83
Arnar Gunnlaugsson 82
Steingrímur Jóhannesson 81
Guðmundur Steinarsson 81
Ríkharður Jónsson 78
Pétur Pétursson 72
Steinar Jóhannsson 72
Flest mörk í
efstu deild
Birkir Kristinsson 321
Gunnar Oddsson 294
Kristján Finnbogason 268
Sigurður Björgvinsson 267
Guðmundur Steinarsson 255
Heimir Guðjónsson 254
Andri Marteinsson 246
Júlíus Tryggvason 243
Tryggvi Guðmundsson 241
Sigurbjörn Hreiðarsson 240
Þormóður Egilsson 239
Guðmundur Benediktsson 237
Atli Jóhannsson 233
Sigursteinn Gíslason 233
Pálmi Haraldsson 231
Pétur Ormslev 231
Flestir leikir
í efstu deild