Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 31
31 EVRÓPUKEPPNI Jóhann Ólafsson sport@mbl.is Íslensku liðin sem taka þátt í Evr- ópumótunum í sumar eru Stjarnan, FH, KR og Víkingur. Það verður gaman að sjá hvernig þau fylgja eft- ir árangri liðanna í fyrra en FH og Stjarnan náðu glæsilegum árangri. Sérstaklega var árangur Garðbæ- inga eftirtektarverður en þeir urðu fyrsta íslenska liðið til að spila í fjór- um umferðum í Evrópukeppni á sama tímabilinu. Þeir komust í úr- slitaumferð forkeppni Evrópu- deildar UEFA þar sem þeir spiluðu um sæti í riðlakeppninni. FH komst í sömu úrslitaumferð árið 2013, fyrst íslenskra liða, en fór styttri leið eftir að hafa byrjað í 2. umferð forkeppni Meistaradeild- arinnar. Frábær árangur Stjörnunnar Stjarnan hóf leik á því að slá út lið Bangor City frá Wales en Garðbæ- ingar unnu báða leikina 4:0. Í 2. um- ferð sló Stjarnan lið Motherwell út eftir framlengingu á heimavelli. Báðum leikjunum lauk 2:2 eftir 90 mínútur en Stjarnan vann heima- leikinn með glæsimarki Atla Jó- hannssonar í framlengingu. Í 3. umferð skelltu Stjörnumenn pólska stórliðinu Lech Poznan, 1:0 samanlagt. Í 4. umferð mætti Stjarnan loks ofjörlum sínum þegar ítalska stórveldið Inter sigraði þá, 3:0 á Laugardalsvellinum og 6:0 í Mílanó. FH sló út Norður-Íra og Hvít-Rússa Árangur FH var ekki síður góður en liðið féll út í þriðju umferð for- keppni Evrópudeildarinnar. Í 1. um- ferð mættu FH-ingar Glenavon frá Norður-Írlandi og sigruðu þá örugg- lega, 3:0 og 3:2. Í 2. umferð sló FH lið Neman Grodno frá Hvíta-Rússlandi út. Lið- in gerðu 1:1 jafntefli í Hvíta- Rússlandi og FH vann heimaleikinn 2:0. Í 3. umferð mættu Hafnfirðingar Elfsborg frá Svíþjóð og urðu að sætta sig við tap. Þeir töpuðu leiknum í Svíþjóð 4:1 en unnu heimaleikinn 2:1, sem dugði ekki til að komast áfram í keppninni. Fram og KR náðu ekki að sigra mótherja sína síðasta sumar. Fram- arar féllu út gegn eistneska liðinu Nömme Kalju í fyrstu umferð for- keppni Evrópudeildarinnar. Heimaleikurinn tapaðist 1:0 og því dugði 2:2 jafntefli í síðari leiknum Frömurum ekki til að komast áfram. KR mætti skoska stórveldinu Cel- tic í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. KR-ingar áttu við ofurefli að etja og töpuðu báðum leikjunum, þó aðeins 1:0 í Frostaskjólinu, en síðan 4:0 í seinni leiknum í Edinborg. Fyrsti Evrópuleikur Víkings í 23 ár Stjarnan, FH og KR mæta því aft- ur til leiks í Evrópumótunum í sum- ar og Stjörnumenn keppa í fyrsta skipti í forkeppni Meistaradeild- arinnar. Víkingar taka einnig þátt í for- keppni Evrópudeildarinnar og er það í fyrsta skipti síðan 1992 sem þeir taka þátt í Evrópukeppni. Þá mættu þeir liði CSKA frá Moskvu og töpuðu báðum leikjum sínum. Reyndar hafa Víkingar leikið tíu Evrópuleiki frá 1972 til 1992 og tap- að þeim öllum. KR-ingar eiga 66 Evrópuleiki að baki, næstflesta allra íslenskra liða en ÍA hefur leikið 72. Þetta verður sjöunda árið í röð sem KR tekur þátt í Evrópukeppni en félagið tók fyrst þátt fyrir 51 ári þegar það mætti Liverpool í tveimur leikjum. Tólfta Evrópuár FH í röð FH tekur þátt tólfta árið í röð og heldur þar með áfram að bæta eigið Íslandsmet sem liðið setti í fyrra. Skagamenn áttu gamla metið en þeir tóku þátt í Evrópukeppni tíu ár í röð, frá 1993 til 2002. Stjarnan leikur í Evrópukeppni í annað sinn í sögu félagsins en Evr- ópuævintýri liðsins í fyrra voru átta fyrstu Evrópuleikir liðsins. Erfitt að gera betur í ár  Stjarnan og FH léku samtals 14 Evrópuleiki á síðasta ári  Stjarnan fyrst til að spila átta leiki á sama árinu  Langþráðir Evrópuleikir hjá Víkingum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ævintýri Ólafur Karl Finsen skoraði fimm mörk fyrir Stjörnuna í Evrópukeppninni í fyrra og er hér í kapphlaupi við Nemanja Vidic, miðvörð Inter Mílanó og fyrrverandi fyrirliða Manchester United, á Laugardalsvellinum. FÓTBOLTINN 2015 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015 INSTINCT 10 YEAR ANNIVERSARY Íslandsmeistarar Stjörnunnar fá 37 milljónir króna frá Knattspyrnu- sambandi Evrópu fyrir að hafa tryggt sér sæti í forkeppni Meist- aradeildar Evrópu. Stjarnan fær svo 44 milljónir króna til viðbótar fyrir að spila í 2. umferð, en fulltrúi Ís- lands fer beint í 2. umferðina. Kom- ist Stjarnan í þriðju umferð fær fé- lagið 59 milljónir til viðbótar. Með því að komast alla leið í 4. umferð, hið svokallaða umspil um sæti í riðlakeppninni, væru Stjörnumenn búnir að tryggja sér að lágmarki 630 milljónir króna að auki, þó að þeir töpuðu. Tap í umspili myndi skila lið- inu í riðlakeppni Evrópudeildar. Tapi Stjarnan í 3. umferð færi lið- ið í umspil Evrópudeildarinnar, en þessa leið fór FH árið 2013 og féll þá út gegn Genk. FH, KR og Víkingur R. leika í 1. umferð forkeppni Evrópudeild- arinnar og fá fyrir það 59 milljónir króna hvert félag. Fyrir að leika í 2. umferð fást 62 milljónir, 65 milljónir fyrir að leika í 3. umferð og 68 millj- ónir fyrir að leika í umspilinu um sæti í riðlakeppninni. Með því að komast í riðlakeppnina eru talsvert hærri tekjur í boði, að lágmarki 190 milljónir króna. sindris@mbl.is Gullið glóir í Evrópu Jæja, er ekki komið að því? Hverju? Jú, því að markametið í efstu deild á Íslandi falli. Það er frekar vandræðalegt að enginn hafi komist nálægt því að slá metið nú þegar sjö leiktíðir hafa verið spilaðar í 12 liða deild. Það þýðir að leikirnir sem leik- menn fá eru 22 talsins en ekki 18 eins og áður. Fjórir leikir í viðbót til að skora, en það dug- ar ekki til. Tryggvi Guðmunds, Þórð- ur Guðjóns, Gummi Torfa og Pétur Péturs deila enn marka- metinu, skoruðu 19 mörk hver, og við bíðum enn eftir því að 20 marka múrinn verði rofinn. Hver gæti breytt því í sumar? Mér detta helst í hug framherjar sterkustu liðanna. Ég myndi setja minn pening á að Steven Lennon í FH verði markakóngur, en ég er hræddur um að hann bæti ekki marka- metið frekar en aðrir. Jeppe Hansen gæti einnig skorað hell- ing fyrir Stjörnuna ef hann er í sama formi og í fyrra, og Gary Martin varð markakóngur með 13 mörk í fyrra og leiðir fram- línu svakalegs KR-liðs. Mun fleiri eru líklegir til að skora að minnsta kosti tug marka. Þá er ég að tala um menn eins og Jonathan Glenn, Albert Brynjar Ingason, Hörð Sveins, Ólaf Karl, Patrick Ped- ersen og jafnvel Rolf Toft, Garð- ar Gunnlaugs eða Ellert Hreins- son. Annars bíð ég ekki síður spenntur eftir því að sjá hvaða matvæli félögin bjóða okkur blaðamönnum upp á. Helstu höfðingjar deildarinnar, Stjörnu- menn, munu eflaust standa áfram undir nafni. Þar er jafnan tvírétta matseðill fyrir okkur. Spurning hvort að beint sam- band sé á milli þessarar gest- risni og árangurs liðsins í fyrra? En hvað með nýliðana? Verða bara þurrar tebollur á Skag- anum eins og síðast þegar ÍA var uppi? Og hvernig er grill- menningin í Breiðholti? Ég mun svara þessu síðar í sumar. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.