Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 36
eitt&
annað
Daníel Laxdal, miðvörður Stjörn-
unnar, hefur spilað síðustu 63 leiki
Garðabæjarliðsins í deildinni. Hann
missti síðast af leik gegn Keflavík í
maí árið 2012 en þá þurfti hann að
taka út eins leiks banns vegna
rauðs spjalds. Gunnleifur Gunn-
leifsson, markvörður Breiðabliks,
kemur næstur en hann hefur spilað
45 leiki í röð í deildinni.
Atli Guðnason úr FH lagði upp
flest mörk í deildinni á síðasta tíma-
bili, 11 talsins. Einu meira en þeir
Ólafur Páll Snorrason úr FH, sem
nú er spilandi aðstoðarþjálfari
Fjölnis, og Ragnar Leósson úr
Fjölni.
Atli Guðnason var líka útnefndur
leikmaður ársins hjá Morg-
unblaðinu en hann fékk flest M í
einkunnagjöf blaðsins. Atli fékk 17
M samtals á tímabilinu en Elías
Már Ómarsson úr Keflavík fékk 16
og þeir Árni Vilhjálmsson úr
Breiðabliki og Igor Taskovic úr
Víkingi komu næstir með 15 M
hvor.
Ingvar Jónsson, markvörður
Stjörnunnar, sem nú leikur með
Start í Noregi, var valinn leikmaður
ársins í deildinni 2014, í kosningu
leikmannanna. Elías Már Ómarsson
úr Keflavík var valinn efnilegasti
leikmaðurinn en hann leikur nú með
Vålerenga í Noregi. Rúnar Páll Sig-
mundsson úr Stjörnunni var valinn
þjálfari ársins.
Albert Brynjar Ingason þarf að
skora fimm mörk fyrir Fylki í sum-
ar til að fara uppfyrir Sævar Þór
Gíslason og verða markahæstur
Fylkismanna í deildinni frá upphafi.
Kjartan Ágúst Breiðdal setur
nýtt leikjamet hjá Fylki í deildinni
ef hann spilar alla 22 leiki Árbæj-
arliðsins. Ólafur Stígsson er efstur
með 155 leiki.
Olgeir Sigurgeirsson þarf að
spila 13 leiki með Breiðabliki til að
slá leikjamet þjálfarans, Arnars
Grétarssonar, sem lék 143 leiki
fyrir félagið í deildinni.
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
36
MOGGINN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FH var nálægt því að fá fullt hús í
spá Morgunblaðsins fyrir Pepsi-
deildina í ár. Alls komu 22 starfs-
menn Morgunblaðsins að spánni;
starfsmenn íþróttafréttadeildar og
fleiri sparkspekingar, og hlaut FH
259 stig af 264 mögulegum. Alls
spáðu 18 manns FH titlinum, þrír
spáðu liðinu 2. sæti, og einn spáði því
3. sæti, en frá árinu 2003 hafa FH-
ingar ávallt endað í 1. eða 2. sæti í
deildinni.
Tveimur liðum til viðbótar var
spáð titlinum af hluta þeirra sem
kusu. KR fékk þrjú atkvæði og að-
eins einn hafði trú á því að Íslands-
meistarar Stjörnunnar næðu að
verja titil sinn. Stjarnan fékk hins
vegar flest atkvæði allra í 2. sæti eða
9 talsins, og KR 7. Séu öll stig talin
fengu Stjarnan og KR nákvæmlega
sama stigafjölda. Enginn spáði
Stjörnunni neðar en í 4. sæti en tveir
settu KR í 5. sæti.
Breiðablik fékk flest atkvæði í 4.
sæti eða 8 talsins, en dreifingin var
nokkur hjá liðinu því það fékk at-
kvæði í hvert sætanna frá 2-7. Flest-
ir voru á því að Valur myndi enda í 6.
eða 7. sæti en einn spáði liðinu þó 9.
sæti.
Dreifingin var mest hjá Víkingi og
ljóst að skiptar skoðanir eru um það
hvernig fara muni á þessu Evrópu-
ári hjá liðinu. Tveir spáðu liðinu til
að mynda 2. sæti en aðrir tveir falli
niður í 1. deild.
Skrautleg kosning Fylkis
Fylkir fékk einnig frekar skraut-
lega kosningu en enginn spáði liðinu
þó falli. Liðið fékk atkvæði frá 3.
sæti og niður í 10. sæti. Keflavík
fékk tvö atkvæði í fallsæti en aðrir
voru á því að Keflvíkingar héldu sér
uppi. Þeir fengu þrjú atkvæði í 6.
sæti en var hvergi spáð ofar.
Nýliðar ÍA halda sér uppi sam-
kvæmt spánni og raunar fékk liðið
tvö atkvæði í 6. sæti. Fimm voru þó á
því að liðið félli. ÍBV hafnar í 10. sæti
samkvæmt spánni en átta spáðu lið-
inu falli. Einn spáði liðinu 6. sæti.
Fjölnir og Leiknir kveðja deildina
samkvæmt þessari spá. Langflestir
spáðu Leikni botnsætinu eða 10, en
Fjölnir fékk næstflest atkvæði í það
sæti eða 5. Tíu af þeim 22 sem komu
að spánni telja að Fjölnir haldi sér
uppi, og þar af voru tveir á því að lið-
ið næði 7. sæti. Leikni var hvergi
spáð ofar en 10. sæti en sjö voru á
því að sú yrði niðurstaðan hjá liðinu.
Nokkuð mikið samræmi er á milli
þessarar spár og þeirrar sem þjálf-
arar, fyrirliðar og forráðamenn
Pepsi-deildarliðanna komu að. Mun-
urinn er helst sá að Fjölni er spáð
falli en ekki ÍBV.
Morgunblaðið/Golli
Fagnað FH-ingar fá fullt erindi til að fagna í sumar samkvæmt spánni.
Langflestir tippa á FH
Nálægt því að fá fullt hús stiga hjá Morgunblaðsmönnum Reikna
með því að Fjölnismenn falli með Leikni Skiptar skoðanir um gengi Víkings
1. FH 259
2. Stjarnan 227
3. KR 227
4. Breiðablik 190
5. Valur 155
6. Víkingur R. 153
7. Fylkir 143
8. Keflavík 101
9. ÍA 82
10. ÍBV 75
11. Fjölnir 61
12. Leiknir R. 41
Spá Morgun-
blaðsins
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
25ÁRA
1988-2013
PIPER
Piper er ný gerð
eftirlitsmyndavéla
og öryggiskerfa fyrir
heimili, sumarhús og
smærri fyrirtæki
•Vaktar heimilið
• Kveikir ljósin
• Fylgist með hita- birtu- og rakastigi
• Fylgist með allri hreyfingu og hljóði
Allt þetta er hægt að skoða hvaðan sem
er úr heiminum í snjallsímanum þínum!
Morgunblaðið bauð áhugafólki um
Pepsi-deildina að spá í spilin fyrir
komandi leiktíð á samskiptamiðl-
inum Twitter, líkt og undanfarin ár.
Þar var FH-ingum spáð Íslands-
meistaratitlinum af meirihluta
þeirra sem tóku þátt, en 63% þeirra
35 sem tóku þátt voru þeirrar skoð-
unar. Sautján prósent töldu að KR
yrði meistari, 11% að Stjarnan næði
að verja titilinn, og Breiðablik og
Víkingur R. fengu einnig atkvæði í
efsta sæti.
Stjarnan fékk langflest atkvæði í
2. sæti en flestir voru á því að KR
næði 3. sætinu. Breiðablik fékk
besta kosningu í 4. sæti, sem er í
samræmi við aðrar kannanir. Allir
settu FH og Stjörnuna í að minnsta
kosti 4. sæti, en KR fékk tvö atkvæði
í 6. sæti og einn spáði Breiðabliki 7.
sæti, en enginn neðar.
Líkt og í flestum öðrum spám var
Leikni R. spáð botnsætinu en 37%
voru þeirrar skoðunar. Fjörutíu pró-
sent töldu þó að Leiknir héldi sér
uppi. Eyjamenn þurfa að gera sér að
góðu að falla niður með Leikni, sam-
kvæmt spánni, en ÍA heldur sér
uppi. Fjölnir fékk talsvert hærri
stigafjölda en þessi lið en 34% þátt-
takenda voru þó þeirrar skoðunar að
leikið yrði í 1. deild í Grafarvogi að
ári. Keflavík var hæst spáð 5. sæti
en falli af 20% þátttakenda.
Víkingur R., Valur og Fylkir
koma til með að sigla nokkuð lygnan
sjó samkvæmt spánni. Enginn spáði
Val og Fylki falli en einn spáði Vík-
ingi reyndar titlinum. Tveir spáðu
Val falli en einn því að liðið næði 2.
sæti. sindris@mbl.is
Telja meistarana
fá silfurverðlaun
FH-ingum spáð titlinum á Twitter
1. FH 401
2. Stjarnan 370
3. KR 348
4. Breiðablik 322
5. Víkingur R. 248
6. Valur 237
7. Fylkir 230
8. Keflavík 152
9. Fjölnir 141
10. ÍA 114
11. ÍBV 88
12. Leiknir R. 79
Spá áhuga-
fólks á Twitter