Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 37
FÓTBOLTINN 2015
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
37
SPÁIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FH-ingar fengu nokkuð afgerandi
kosningu sem líklegasta liðið til að
landa Íslandsmeistaratitlinum, í ár-
legri spá fyrirliða, þjálfara og for-
ráðamanna liðanna 12 í Pepsi-
deildinni. Spáin var kynnt frammi
fyrir fulltrúum allra liða í Ölgerðinni
á þriðjudag og greinilegt var að
margir biðu spenntir eftir því að sjá
við hverju kollegarnir byggjust á
komandi leiktíð.
FH fékk 43 stigum meira en Ís-
landsmeistarar Stjörnunnar í
spánni. Bikarmeisturum KR er spáð
3. sætinu en þar skammt á eftir
koma deildabikarmeistarar Breiða-
bliks, og ef marka má spána munu
þessi fjögur lið skera sig mikið úr í
sumar.
Eins stigs munur á ÍA og ÍBV
Að sama skapi verður jöfn barátta
fjögurra liða um að bjarga sér frá
falli miðað við þessa spá. ÍA fékk
einu stigi meira en ÍBV sem er spáð
næstneðsta sæti eftir sjö ára sam-
fellda veru í efstu deild. Leiknis-
mönnum, sem unnu 1. deildina í
fyrra, er spáð botnsætinu. Fjölnir
kemur til með að þurfa að berjast
fyrir lífi sínu, fékk 9 stigum meira en
ÍBV í spánni.
Valur, Víkingur, Fylkir og Kefla-
vík raða sér í sæti 5-8 og ættu að
sigla nokkuð lygnan sjó samkvæmt
spánni.
Spáin gengur hins vegar aldrei eftir
að öllu leyti, og missir stundum alveg
marks. Í fyrra var Víkingi og Fjölni til
að mynda spáð falli en Víkingar náðu
Evrópusæti og Fjölnir hélt sér uppi.
KR var spáð Íslandsmeistaratitlinum
en ekki Stjörnunni sem menn bjugg-
ust við að myndi hafna í 4. sæti.
Menn veðjuðu rétt á FH í 2. sæti
og Val í 5. sæti, og Keflavík hafnaði í
8. sæti eftir að hafa verið spáð 7.
sæti. Að öðru leyti gekk spáin illa
eftir. Auk þess sem áður er nefnt má
geta þess að Breiðabliki var spáð 3.
sæti en lenti í 7. sæti og ÍBV var spáð
6. sæti en lenti í 10. sæti. Fallliðunum
Fram og Þór hafði verið spáð 9. og 10.
sæti.
FH hefur nú verið spáð titlinum
fjórum sinnum frá því að Heimir Guð-
jónsson tók við sem aðalþjálfari liðs-
ins eftir tímabilið 2007, eða árin 2009,
2011, 2013 og nú 2015. Í eitt þessara
skipta hefur liðið staðið uppi sem Ís-
landsmeistari en það var árið 2009, og
aðeins framtíðin getur leitt í ljós hver
niðurstaðan verður 2015.
Fjögurra liða hópar á toppi og botni
FH fékk afgerandi kosningu hjá fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum Spáin hefur ekki
gengið eftir síðan Heimir og FH unnu 2009 Stjarnan númer tvö Skiptist deildin í þrjá hópa?
Morgunblaðið/Eva Björk
Fararsnið? Ian Jeffs og félagar í ÍBV eru á leið niður í 1. deild samkvæmt þessari spá en Fjölnir heldur sér uppi.
Enski framherjinn Gary Martin
krækti í markakóngstitilinn á síð-
asta keppnistímabili þegar hann
skoraði þrennu fyrir KR gegn
Þór í lokaumferð Pepsi-deildar
karla.
Martin hafði skorað 10 mörk
áður en að leiknum kom en Jonat-
han Glenn, sóknarmaður ÍBV,
stóð vel að vígi með að hreppa tit-
ilinn. Glenn hafði skorað 12 mörk,
tveimur fleiri en næstu menn.
En þrennan þýddi að Martin
stóð uppi með 13 mörk þegar
flautað var til leiksloka. Glenn
náði ekki að skora fyrir ÍBV gegn
Fjölni og varð að sætta sig við
silfurskóinn með 12 mörk. Ólafur
Karl Finsen, sem skoraði bæði
mörk Stjörnunnar gegn FH í úr-
slitaleiknum í lokaumferðinni, náði
þriðja sætinu með 11 mörk.
Martin er aðeins þriðji erlendi
leikmaðurinn í sögunni sem
hreppir markakóngstitilinn í efstu
deild karla.
Mihajlo Bibercic frá Júgóslavíu
varð sá fyrsti þegar hann skoraði
14 mörk fyrir Skagamenn árið
1994.
Gilles Mbang Ondo frá Gabon
varð markakóngur árið 2010 þegar
hann skoraði 14 mörk fyrir Grind-
víkinga. Ondo skoraði tvö mörk
gegn Selfossi í lokaumferðinni og
fór með því framúr Alfreð Finn-
bogasyni hjá Breiðabliki og Atla
Viðari Björnssyni hjá FH, sem
gerðu jafnmörg mörk og hann en í
fleiri leikjum. vs@mbl.is
Martin þriðji erlendi
markakóngurinn
1. FH 416
2. Stjarnan 373
3. KR 348
4. Breiðablik 331
5. Valur 257
6. Víkingur R. 242
7. Fylkir 228
8. Keflavík 189
9. Fjölnir 116
10. ÍA 108
11. ÍBV 107
12. Leiknir R. 93
Spá fyrirliða,
þjálfara og
forráðamanna
fyrirtækjafánar • hátíðarfánar
þjóðfánar • borðfánar • bannerar
www.me
rkismen
n.is
Markakóngar síðasta áratuginn
2014
Gary Martin
Ár Leikmaður Mörk
2014 Gary Martin, KR 13
2013 Atli Viðar Björnsson, FH 13
2012 Atli Guðnason, FH 12
2011 Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 15
2010 Gilles Mbang Ondo, Grindavík 14
2009 Björgólfur Takefusa, KR 16
2008 Guðmundur Steinarsson, Keflavík 16
2007 Jónas Grani Garðarsson, Fram 13
2006 Marel Baldvinsson, Breiðabliki 11
2005 Tryggvi Guðmundsson, FH 16
Methafar með 19 mörk á tímabili:
Pétur Pétursson (ÍA) 1979
Guðmundur Torfason (Fram) 1986
Þórður Guðjónsson (ÍA) 1993
Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) 1997