Fréttablaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 18
KYNNING − AUGLÝSINGRekstrarráðgjöf MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, s. 512-5446,
jonatan@365.is Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Þjónusta sú, sem Firma Con-sulting veitir, er í meginat-riðum þríþætt. Í fyrsta lagi
er veitt aðstoð við kaup, sölu og
sameiningu fyrirtækja oftast að
millistærð, en Firma Consulting
skilgreinir millistærð fyrirtækja
í áætluðu verðmæti eða veltu frá
tvö hundruð milljónum króna upp
í tvö þúsund milljónir. „Í öðru lagi
framkvæmum við verðmöt á fyr-
irtækjum af öllum stærðum. Í
þriðja lagi veitum við marghátt-
aða rekstrarráðgjöf, ef við teljum
okkur geta orðið að gagni,“ segir
Magnús Hregg viðsson, aðal-
ráðgjafi fyrirtækisins. „Sú ráðgjöf
getur verið margháttuð. Má þar
nefna almenna rekstrarráðgjöf,
ráðgjöf við uppstokkun, endur-
skipulagningu og margt f leira
tengt rekstri fyrirtækja.
Það sem einkennir þjónustu
Firma Consulting er að sögn
Magnúsar vönduð vinnubrögð
með góða fagmennsku. „Þá má
vekja athygli á því að við erum
sjálfstætt lítið ráðgjafarfyrirtæki,
sem er óháð öðrum, þar með talið
fjármálastofnunum.“
Víðtæk reynsla
Magnús er Cand. Oecon. úr Há-
skóla Íslands og hefur víðtæka
reynslu úr viðskiptalífinu. Hann
starfaði sem endurskoðandi, ráð-
gjafi og fyrirtækja- og fasteigna-
sali í rúman áratug. Síðar at-
hafnamaður og frumkvöðull í
útgáfu, fasteignarekstri og „land-
development“ ( Smárahvammi
) til fjölda ára. Fyrir rúmum tíu
árum ákvað hann að nýta marg-
háttaða reynslu sína, stofnaði ráð-
gjafarfyrirtækið Firma Consulting
og sneri sér að ráðgjöf við kaup,
sölu og sameiningu fyrirtækja
auk margháttaðra ráðgjafarstarfa.
„Reynsla mín úr athafnalíf-
inu, fyrst sem sérfræðingur og
síðar athafnamaður í viðamikl-
um rekstri, hefur komið mörgum
að notum í verkefnum Firma Con-
sulting. Vegna mikillar reynslu
minnar tel ég mig geta sett mig
betur í spor viðskiptavina í marg-
háttuðum viðfangsefnum þeirra,“
segir Magnús.
Magnús hefur mótað nákvæmt
söluferli í meðferð Firma Consult-
ing við sölu fyrirtækja. Þar legg-
ur hann ríka áherslu á nákvæma
skilgreiningu verkefna fyrir við-
skiptavini og fyrirfram sem ná-
kvæmasta verðlagningu á þjón-
ustunni. Mikil áhersla er lögð
á nákvæmni í sölumeðferð og
vandaðan frágang við kaup, sölu
og sameiningu fyrir tækja. Sölu-
ferli Firma Consulting er skil-
greint á vef félagsins, www.firma-
consulting.is, og er í meginatrið-
um þannig:
A) Nákvæmur samningur um sölu
(eða kaup/sameiningu), sem skil-
greinir vel skyldur beggja.
B) Heildarúttekt Firma Consult-
ing á stöðu félagsins og verðmat.
C) Vönduð sölumeðferð og sölu-
viðræður.
D) Nákvæmir og vandaðir samn-
ingar við kaup, sölu og samein-
ingu með alla enda hnýtta.
Magnús segir flesta viðskipta-
vini óska eftir því sem hann nefnir
hljóðláta sölumeðferð. „Við búum
í litlu samfélagi og er ósk flestra
viðskiptavina okkar að við finnum
traustan kaupanda án þess að við-
skiptavinir og starfsmenn frétti til
að skapa ekki möguleika á óróa í
rekstri fyrirtækisins. Þetta getur
verið vandasamt í litlu samfélagi
þar sem flest fréttist.
Traust í viðskiptalífinu
heldur að aukast
Aðspurður segist Magnús sjá
merki þess að traust í viðskipta-
lífinu sé heldur að aukast. Hann
segir umhverfi við sölu fyrirtækja
hafa breyst mikið á síðustu árum.
„Fyrst eftir hrun fjármálakerf-
isins árið 2008 versnaði afkoma
fyrirtækja mjög. Traust einstak-
linga í viðskiptalífinu minnkaði
innbyrðis til muna vegna óvand-
aðrar og glannalegrar framgöngu
margra helstu og þekktustu við-
skiptamanna landsins. Eins vegna
slakara viðskiptasiðferðis margra
annarra en áður var. Traust fjár-
málastofnana á viðskiptamönn-
um minnkaði og traust einstak-
linga á fjármálastofnunum sömu-
leiðis,“ Nú er ástandið hvað varðar
sölu fyrirtækja heldur að lagast.
Afkoma fyrirtækja hefur batnað
og segir Magnús að traust í við-
skiptalífinu sé að aukast. Traust
viðskiptamanna á stjórnvöldum
eykst sömuleiðis, en það minnk-
aði mikið við hrunið og fyrstu árin
eftir það.
Að sögn Magnúsar þarf að gæta
fyllstu varúðar við kaup, sölu og
sameiningu fyrirtækja og viðhafa
vönduð vinnubrögð í hvívetna.
„Þannig má koma í veg fyrir að
eitthvað fari úrskeiðis í viðskipt-
um með fyrirtæki. Okkar helsti
styrkur eru vönduð vinnubrögð,
nákvæmi og áreiðanleiki í allri
þjónustu fyrirtækisins. Hið vand-
aða söluferli og frágangur sölu á
fyrirtækjum hjá Firma Consult-
ing hefur á fyrsta áratug félags-
ins skilað sér í að engin vandamál
hafa komið upp í kring um og/eða
eftir frágang þeirra viðskipta. Sú
viðleitni okkar að freista þess að
gera bæði seljendur og kaupendur
ánægða með viðskiptin hefur tek-
ist, að því er ég best veit, í öllum
tilvikum á þessum tíma,“ segir
Magnús.
Firma Consulting er til húsa
að Þingaseli 10, 109 Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að finna
á firmaconsulting.is og einnig í
símum 896-6665 eða 820-8800.
Veffang Magnúsar er magnus@
firmaconsulting.is
Vandvirkni í hávegum höfð
Ráðgjafarfyrirtækið Firma Consulting sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf. Það veitir m.a. aðstoð og ráðgjöf við kaup, sölu og sameiningu
fyrirtækja. Firma Consulting veitir jafnframt margháttaða rekstrarráðgjöf. Vönduð vinnubrögð eru aðalsmerki fyrirtækisins.
Magnús hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu sem hefur komið viðskiptavinum hans að góðum notum. MYND/GVA
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
D
-F
0
0
C
1
7
7
D
-E
E
D
0
1
7
7
D
-E
D
9
4
1
7
7
D
-E
C
5
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K