Fréttablaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Rekstrarráðgjöf26. JANÚAR 2015 MÁNUDAGUR 5
Nú sem fyrr eru í fullu gildi lögmálin um að kaupa inn í „réttu“ magni og á rétt-
um tíma þar sem viðfangsefn-
ið er að lágmarka óvæntan vöru-
skort og á sama tíma koma í veg
fyrir að birgðir úreldist og seljist
ekki af þeim sökum,“ segir Krist-
ján M. Ólafsson, verkefnastjóri á
ráðgjafarsviði KPMG. „Það eru
heldur engin ný sannindi að leið-
in til að hámarka nýtingu í að-
fangakeðjunni er að vera f ljót-
ur að greina þarfir viðskiptavina
og stilla af öll innkaup og birgð-
ir miðað við það,“ bætir hann við.
Neysluvenjur breytast
„Í fréttum birtast upplýsing-
ar um að netverslun dafni og að
í sumum greinum hafa verslanir
sem ekki reka hefðbundnar búðir
á Íslandi, náð umtalsverðri mark-
aðshlutdeild. Aukið öryggi í net-
verslun og breytt neyslumynstur
hjá yngri kynslóðinni hefur þar
mikil áhrif. Miklir möguleikar
felast í þessum breytingum sem
hafa áhrif á alla aðfangakeðjuna,“
greinir hann frá.
„Nýjar“ áskoranir
Ólafur Örn Ólafsson segir að
góðir stjórnendur spyrji sig að því
hvernig best sé að tryggja virði
fyrir viðskiptavini í síbreytilegu
umhverfi. „Ef neytendur eru til-
búnir að bíða eftir vörum frá er-
lendum netverslunum eru þá úr-
eltir viðskiptahættir að halda
birgðir svo hægt sé að afgreiða
vöruna strax? Ef magninnkaup
og f lutningar í stórum eining-
um duga ekki til að bjóða vörur
á samkeppnishæfu verði, hvaða
leiðir eru þá færar í að veita þeim
þjónustu? Þetta eru meðal þeirra
áskorana sem viðskiptavinir
okkar standa frammi fyrir,“ segir
hann.
„Til að mæta þessum breyting-
um leggur KPMG mikla áherslu á
stjórnendaráðgjöf af margvíslegu
tagi og aðstoð við stjórnendur í að
nálgast þær upplýsingar sem þeir
þurfa til að sinna sínu starfi. Má
hér nefna hluti eins og viðskipta-
greind, sviðsmyndagreiningu,
stefnumótun og margt f leira. Í
hröðu og síbreytilegu umhverfi,
með kröfuhörðum viðskiptavin-
um, er nauðsynlegt að hafa raun-
tímasýn á fjárbindingu og veltu-
hraða birgða, krafna og annarra
liða. Í allri okkar ráðgjöf leggjum
við áherslu á að auka virði í rekstri
fyrir okkar viðskiptavini.“
Ráðgjöf og mælaborð
stjórnandans
„Viðskiptagreind (e. Business In-
telligence) og ráðgjöf eða lausn-
ir henni tengdar eru ekki nýjar
af nálinni frekar en stýring inn-
kaupa og birgða. Góð rauntíma-
yfirsýn yfir stöðu þeirra þátta sem
mestu máli skipta, t.d. við stýr-
ingu, veltufjármuna er góðum
stjórnendum mikilvæg, hvort
sem um er að ræða veltuhraða
birgða, greining viðskiptakrafna
eða heildaráhrif þessara þátta á
sjóðsstreymi frá degi til dags,“
segir Ólafur enn fremur.
Á ráðgjafarsviði KPMG starfa
reyndir sérfræðingar. „Í sama
ráðgjafahópnum höfum við víð-
tæka þekkingu á skilvirkri stýr-
ingu þeirra atriða sem fjallað er
um hér að framan og auk þess
mikla reynslu í útfærslu við-
skiptagreindarlausna þar sem
stillt er upp skýrum mælikvörð-
um til að tryggja árangur í rekstri.
Möguleikum í notkun og út-
færslum viðskiptagreindarlausna
og mælaborða fyrir stjórnendur er
alltaf að fjölga.
Mikið magn upplýsinga er til
nú þegar í upplýsinga- og fjár-
hagskerfum fyrirtækja og stofn-
ana. Við erum sérfræðingar í að
draga fram lykilatriði og setja fram
með skýrum hætti öfluga stjórn-
endasýn, og hámarka þá fjárfest-
ingu sem þegar hefur verið lagt í.“
Aðfangastýring og öflug stjórnendasýn
Verkefnastjórar hjá ráðgjafarsviði KPMG aðstoða viðskiptavini í að takast á við breytingar í starfsumhverfinu og bæta stýringu
vöruflæðis út frá mælikvörðum og upplýsingum sem henta áskorunum í rekstri.
Ólafur Örn Ólafsson og Kristján M. Ólafsson, verkefnastjórar á ráðgjafarsviði KPMG. MYND/GVA
Sviðsmyndagreining er ein af þeim aðferðum sem fram-sýnir stjórnendur geta nýtt
sér við undirbúning stefnumót-
unar, áætlanagerðar og áhættu-
greiningar en hún byggist á því
að dregnar eru upp nokkrar en
ólíkar lýsingar á þeim aðstæðum
sem upp geta komið í starfsum-
hverfinu. Með aðferðafræði sviðs-
mynda er varpað ljósi á það hvaða
ákvarðanir þarf að taka í náinni
framtíð og hvaða hugsanlegar af-
leiðingar þær geta haft.
Markmið sviðsmyndagrein-
inga er að meta mögulega fram-
tíðarþróun og ná utan um helstu
óvissuþætti sem nauðsynlegt er
að hafa í huga við stefnumark-
andi ákvarðanir og aðra þætti í
undirbúningi stjórnenda áður
en kemur að ákvarðanatöku.
Ráðgjafar svið KPMG hefur sér-
hæft sig á þessu sviði og er leið-
andi í notkun aðferðafræðinnar
hér á landi. Sem dæmi má nefna
að sérfræðingar KPMG hafa nýtt
hana til að meta hvaða áhrif mis-
munandi aðferðir við afnám fjár-
magnshafta gætu haft bæði á ein-
stök fyrirtæki og eins þjóðarhag
(sjá nánar á www.kpmg.is)
Nauðsynlegur undirbúningur
„Öll þekking okkar er úr fortíð-
inni en allar ákvarðanir sem við
tökum snerta framtíðina. Við
mótum framtíð okkar með þeim
ákvörðunum sem við tökum eða
tökum ekki í dag. Það er því bæði
rökrétt og eðlilegt að skilja sem
best hvernig möguleg framtíð
getur litið út – áður en kemur að
ákvarðanatöku. Þetta getur í dag-
legu amstri, t.d. í rekstri fyrir-
tækja, stofnana og sveitarfélaga
snúist um það hvort stjórnendur
eigi að stækka rekstur eða ráðast
í áhættusamar fjárfestingar eða
ákvarðanir af öðru tagi,“ segir
Sævar Kristinsson, verkefnastjóri
á ráðgjafarsviði KPMG.
Sævar, sem er einn af höf-
undum bókarinnar Framtíðin –
frá óvissu til árangurs og fjallar
um notkun sviðsmynda, segir
að sviðsmyndaaðferðin sé nýtt
af f lestum stærstu fyrirtækjum
heims og ekki síður af sveitarfé-
lögum og opinberum stofnunum.
Hér á landi hefur þessi aðferða-
fræði verið notuð lengi af við-
bragðsaðilum eins og björgunar-
sveitum, Almannavörnum og
slökkviliði til undirbúnings fyrir
óvænta atburði.
„Aðferðin hentar afar vel í
rekstri fyrirtækja en með því að
nýta sviðsmyndir sem grunn að
stefnumótun, áætlanagerð eða
áhættugreiningu, má koma í veg
fyrir að óvæntir hlutir komi mönn-
um í opna skjöldu.“
Ekki nein kristalskúla
Að sögn Sævars hentar sviðs-
myndaaðferðin mjög vel til að
stilla saman skoðanir ólíkra hópa
og leggja grunn að sameiginlegri
stefnumótun. „Að skoða umhverfi
dagsins í dag með gleraugum
framtíðarinnar auðveldar okkur
að koma auga á nýja möguleika
og gefur okkur heildstæðari sýn
til ákvarðanatöku. Þannig nýtast
sviðsmyndir bæði sem undirbún-
ingur við mótun nýrrar stefnu og/
eða til að prófa hvort núverandi
stefna standist mismunandi stöðu
sem mögulega gæti komið upp í
framtíðinni.“
Sævar bendir á að sviðsmynda-
aðferðin sé engin kristalskúla og
alls ekki trygging fyrir því að við
getum séð fyrir alla óvænta at-
burði í samfélaginu.
„Hins vegar getum við undir-
búið okkur undir mismunandi
atburði og þannig skapað betri
skilning stjórnenda á því hvernig
eigi að bregðast við ógnunum, en
ekki síður hvernig hægt sé að nýta
tækifæri sem möguleg kunna að
koma upp í framtíðinni.
Þannig er hægt með viður-
kenndum aðferðum að greina og
leggja mat á mögulegar aðstæður
sem geta komið upp fremur en að
trúa í blindni á eina tiltekna fram-
tíð sem oft er sú sem við viljum
eða væntum þess að verði,“ segir
Sævar.
Verum viðbúin hinu óvænta
Sævar Kristinsson, verkefnastjóri á ráðgjafarsviði KPMG: „Öll þekking okkar er úr fortíðinni en allar ákvarðanir sem við tökum snerta
framtíðina.“
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
E
-4
3
F
C
1
7
7
E
-4
2
C
0
1
7
7
E
-4
1
8
4
1
7
7
E
-4
0
4
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K