Fréttablaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 2
26. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Sigurjón, eruð þið búnir að
yfirtaka Siglufjörð?
Já, þetta er svokölluð vinsamleg
yfirtaka.
Hátt í 70 manna hópur kvikmyndagerðar-
manna og leikara er kominn til Siglufjarðar
til að taka upp sjónvarpsþáttaröðina Ófærð.
ATVINNA „Mannauðsstjórinn sagði
við mig að þetta væri ekki starf
sem hentaði konum,“ segir Guð-
björg Perla Jónsdóttir sem síðasta
vetur ákvað að sækja um vinnu hjá
Elkem Íslandi.
„Ég sótti um framtíðarstarf hjá
fyrirtækinu og fékk synjun um
tímabundið starf. Ég var viss um
að einhver misskilningur hefði
orðið svo ég ákvað að hringja í
mannauðsstjórann og þá sagði
hún mér að þetta starf hentaði ekki
konum.“
Hún bætir því við að góð með-
mæli hafi fylgt umsókninni en við
nánari eftirgrennslan hafi komið í
ljós að þau voru ekki könnuð. „Ég
var með meðmæli víða úr fram-
leiðslunni, frá þremur liðsstjór-
um skautsmiðju og vaktstjóra.
Þeir sögðu mér að ekki hefði verið
haft samband við þá. Þá var einnig
gerð grein fyrir getu minni í verk-
smiðjuvinnu sem er mikil. Ekkert
af þessu var athugað,“ staðhæfir
Guðbjörg Perla og ítrekar að ekki
sé um mat eða ályktun að ræða.
Orð mannauðsstjórans hafi verið
skýr.
Þóra Ásgeirsdóttir, mannauðs-
stjóri Elkem, segist ekki muna
nákvæmlega orðaskipti sín við
Guðbjörgu Perlu. „Við metum
umsóknir með tilliti til reynslu og
hæfni. Kannski hef ég orðað þetta
klaufalega en hún hentaði ekki í
starfið.“ Forstjóri Elkem, Gestur
Pétursson, segist handviss um að
um misskilning sé að ræða.
„Hún sótti um framtíðarstarf.
Við vorum ekki að leita að starfs-
krafti í framtíðarstarf heldur
aðeins í tímabundna stöðu. Við
auglýsum, síðan fáum við fullt
af umsóknum og það er valið úr
hverjir fá að fara í viðtal. Eins og
með flest störf þá fá ekki allir við-
tal sem sækja um. Án þess að vita,
af hverju hún fékk ekki viðtal þá
dettur mér í hug að sú staðreynd
að hún hafi óskað eftir framtíðar-
starfi hafi gert það að verkum að
hún hentaði ekki. Þær þyrftu að
ræða saman um þetta.“
Gestur segir rangt að mismuna
eftir kynferði og hefur það að
sjónar miði í rekstri fyrirtækisins.
„Það að mismuna fólki eftir kyni
er ekki rétt. Það er ekki það orð-
spor sem við viljum hafa á okkur.
Við hvetjum fólk af báðum kynj-
um til að sækja um störf hjá fyrir-
tækinu. Blandaðir vinnustaðir eru
alltaf betri en kynjaskiptir vinnu-
staðir. Þú færð meiri dýnamík,
framþróun verður meiri og þú
færð miklu fjölbreyttari nálgun í
öllum málum,“ segir hann.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Segir að Elkem hafi
ekki viljað konu
Guðbjörg Perla Jónsdóttir sótti um vinnu hjá Elkem Íslandi. Hún segir mannauðs-
stjóra fyrirtækisins hafa synjað umsókninni og sagt henni að starfið hentaði ekki
konum. Mannauðsstjóri segist hafa komist klaufalega að orði.
Ég var viss um að
einhver misskilningur
hefði orðið svo ég ákvað
að hringja í mannauðs-
stjórann og þá sagði hún
mér að þetta starf hentaði
ekki konum.
Guðbjörg Perla Jónsdóttir.
ERFITT AÐ FÁ VINNU Guðbjörg Perla segir mannauðsstjóra hafa sagt sér að starf
sem hún sótti um í framleiðslu hentaði ekki konum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EYJÓLFSSON.
SLYS Konunni, sem fannst í
Reykjavíkurhöfn á sunnudaginn
fyrir viku, er enn haldið sof-
andi í öndunarvél á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Konunni var
bjargað úr sjónum um fimmleytið
síðdegis á sunnudag fyrir viku
eftir að lögreglu barst tilkynning
um að bíl hefði verið ekið í höfn-
ina. Talið er að konan hafi verið
allt að hálftíma í sjónum. Í kjöl-
farið hófst leit lögreglu, slökkvi-
liðs og kafara í höfninni til þess
að ganga úr skugga um að ekki
hefðu verið fleiri í bílnum. Konan
reyndist hafa verið ein í bílnum.
Sjónarvottar sögðu skott bílsins
hafa verið opið þegar bíllinn fór
fram af brúninni. - vh
Bjargað úr Reykjavíkurhöfn:
Haldið sofandi
í öndunarvél
Gengið fram hjá grámyglulegum sjónum
Á GÖNGU Það var leiðindaveður í gær og margir kusu að vera heima með góða bók.
Það átti þó ekki við um þennan mann sem fékk sér göngu við Ánanaust. Til þess að
eiga minningar frá göngunni hafði hann meðferðis svokallaða sjálfustöng, svo hann
gæti tekið gönguna upp á myndskeið með símanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓLK „Það er verið að reyna finna
lyf sem hentar Þórunni en það er
ekkert að ganga frekar en síð-
ustu sex mánuði,“ segir Krist-
björg Kristjánsdóttir, móðir ein-
eggja tvíburasystranna Þórunnar
Bjargar og Sonju Óskar sem á
síðasta ári greindust með sjald-
gæfan litningagalla.
Fréttablaðið sagði sögu systr-
anna í lok síðasta árs. Þær eru
níu ára gamlar en önnur þeirra
greindist með litningagallann
Ring chromosome 20 syndrome í
júní en hin í ágúst. Sjúkdómurinn
lýsir sér með miklum flogaköst-
um en einnig hefur atferli þeirra
gjörbreyst.
Systurnar hafa þurft að vera
mikið á spítala vegna veikinda
sinna og núna er Þórunn á Barna-
spítala Hringsins vegna mikilla
floga.
„Hún er farin að blána oft
vegna súrefnisskorts,“ segir
Kristbjörg en náið er fylgst með
henni á spítalanum. Verið er að
vinna að því að finna lyf sem
henta henni betur en það hefur
ekki gengið jafn vel og hjá Sonju
systur hennar þar sem sömu lyfin
virðast ekki virka eins á þær.
„Við erum að bíða eftir sneið-
myndatöku. Vegna lyfjabreytinga
hjá henni er hún að mestu bund-
in við hjólastól því hún er mikið
lyfjuð og fæturnir gefa eftir,“
segir Kristbjörg.
Þórunn er á sex lyfjum núna en
vonir eru bundnar við að lyf, sem
hún byrjaði nýlega, á muni virka.
- vh
Tvíburasysturnar Þórunn og Sonja eru með sjaldgæfan litningagalla:
Systurnar standa enn í ströngu
SONJA ÓSK OG ÞÓRUNN BJÖRG Syst-
urnar voru báðar greindar með litninga-
galla. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND MYND
MENNTUN Sigurvegarar fyrsta
Hnakkaþonsins í Háskólanum í
Reykjavík sækja stærstu sjávar-
útvegssýningu Norður-Ameríku
sem fram fer í Boston í mars
næstkomandi.
Keppnin fór fram um helgina
og höfðu nemendur sólar-
hring til að setja fram áætlun
um hvernig koma má ferskum
íslenskum þorskhnökkum á
markað á austurströnd Banda-
ríkjanna og skapa þar eftirspurn
eftir vörunni. Það voru þau Egill
Sigurðarson, Heiðrún Ingrid
Hlíðberg, Helgi Már Hrafn-
kelsson, Jóhanna Edwald og
Rebekka Rut Gunnarsdóttir sem
sigruðu. - vh
Sigurliðið fer til Boston:
Sigruðu í fyrsta
Hnakkaþoninu
STJÓRNSÝSLA Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við
lagadeild Háskóla Íslands, hyggst senda Ólöfu
Nordal innanríkisráðherra minnisblað fyrir
vikulokin. Ólöf fól Hafsteini á föstudaginn að
fara yfir með hvaða hætti innanríkisráðuneytið
gæti brugðist við þeim ábendingum sem sneru að
ráðuneytinu og komu fram í áliti umboðsmanns
Alþingis vegna samskipta Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, og
Stefáns Eiríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á
höfuð borgarsvæðinu.
Hafsteinn vill ekki tjá sig efnislega um álit
umboðsmanns fyrr en hann skilar Ólöfu minnis-
blaðinu.
Meðal þess sem fram kemur í álitinu er að
Hanna Birna hafi ekki getað sýnt fram á að hún
hafi fylgt 20. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnar ráð
Íslands, þar sem kveðið er á um skyldu ráðherra
til að leita sér ráðgjafar. Umboðsmaður beinir því
þeim tilmælum til innan ríkisráðherra að gæta
þess að þessu atriði verði fylgt.
Þá bendir umboðsmaður á að Hanna Birna hafi
ekki veitt sér réttar upplýsingar varðandi máls-
atvik. Hann biðlar því til Ólafar Nordal, núver-
andi innanríkisráðherra, að þess verði framvegis
gætt að umboðsmaður fái réttar upplýsingar um
þau mál sem hann hefur til athugunar. - ih
Umboðsmaður bendir á að innanríkisráðherra beri að leita sér ráðgjafar:
Skilar minnisblaði í vikunni
UMBOÐSMAÐUR Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis,
kynnti þingnefnd niðurstöðu sína á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS
BÍLTÆKIMP3 SPILARAR ÚTVÖRPHLJÓMBORÐ
HEYRNARTÓL
REIKNIVÉLAR
SJÓNVÖRP
FERÐATÆKI MAGNARARBÍLMAGNARAR
ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
MEIRA EN 2000 VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI
ALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
Sjá
úrvalið
á ht.is
ELDAVÉLAR
ÍSSKÁPAR
ÞVOTTAVÉLAR
OFNAR
ENGIN VÖRUGJÖLD!
7 VERSLANIR UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
C
-F
E
1
C
1
7
7
C
-F
C
E
0
1
7
7
C
-F
B
A
4
1
7
7
C
-F
A
6
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K